Ferill 457. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 672  —  457. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um tilnefningu sérfróðra meðdómsmanna og kunnáttumanna.

Frá Jóni Þór Ólafssyni.


     1.      Hverja hefur dómstólasýslan tilnefnt sem sérfróða meðdómsmenn á grundvelli 1. mgr. 39. gr. laga um dómstóla?
     2.      Hversu oft hefur verið óskað eftir að dómstólasýslan tilnefni kunnáttumann á grundvelli 2. málsl. 1. mgr. 40. gr. laga um dómstóla og hversu oft hefur dómstólasýslan tilnefnt slíkan meðdómsmann?


Skriflegt svar óskast.