Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 674 — 459. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um setu í stjórn dómstólasýslunnar.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Hver er þóknunin fyrir setu í stjórn dómstólasýslunnar?
2. Er heimilt fyrir starfsmann dómstólasýslunnar að sitja einnig í stjórn hennar? Ef svo er, fær viðkomandi bæði greidda þóknun fyrir setu í stjórninni og greidd laun sem starfsmaður dómstólasýslunnar?
Skriflegt svar óskast.