Ferill 461. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 676  —  461. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um birtingu upplýsinga um fjölda og afgreiðslu mála við dómstóla.

Frá Jóni Þór Ólafssyni.


    Hvernig miðar vinnu dómstólasýslunnar við að birta upplýsingar um fjölda og afgreiðslu mála við dómstóla eins og henni ber að gera skv. 4. tölul. 8. gr. laga um dómstóla?


Skriflegt svar óskast.