Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 680  —  381. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um útgáfu á ársskýrslum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða stofnanir og fyrirtæki sem heyra undir ráðuneytið gefa út ársskýrslu á pappírsformi og hver var kostnaðurinn sem lagðist á ráðuneytið vegna þessa árið 2017?

    Af stofnunum sem heyra undir ráðuneytið gáfu Seðlabanki Íslands og embætti umboðsmanns barna út ársskýrslur á pappírsformi árið 2017. Enginn kostnaður lagðist á ráðuneytið vegna þessa.