Ferill 465. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Prentað upp.

Þingskjal 686  —  465. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar


um heimavist á höfuðborgarsvæðinu.


Flm.: Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Þórunn Egilsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir, Willum Þór Þórsson, Björn Leví Gunnarsson.


    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra, í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, að beita sér fyrir stofnun heimavistar á höfuðborgarsvæðinu fyrir framhaldsskólanema.

Greinargerð.

    Á Íslandi bjóða 37 skólar upp á nám á framhaldsskólastigi en mest fjölbreytni í námi er á höfuðborgarsvæðinu og þar eru líka sérskólar á framhaldsskólastigi. Má þar nefna nýjan menntaskóla í tónlist, en auk þess eru margar námsbrautir einungis í boði í Reykjavík, t.d. tilteknar iðn- og listgreinar. Því er skiljanlegt að margir nemendur leiti þangað til að stunda nám við framhaldsskóla. Nemendum á landsbyggðinni stendur víða til boða að búa á heimavist eða nemendagörðum gegn vægu gjaldi. Á landinu öllu eru 11 skólar sem bjóða upp á heimavist en Hússtjórnarskólinn í Reykjavík er eini skólinn á höfuðborgarsvæðinu sem býður upp á heimavist.
    Húsnæðisvandi ungs fólks sem flytur af landsbyggðinni til að stunda nám í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu hefst gjarnan að loknum grunnskóla við 16 ára aldur. Algengt er að foreldrar þeirra ungmenna leiti á náðir ættingja og vinafólks. Þeir sem eru ekki í aðstöðu til þess verða að leigja á almennum markaði með tilheyrandi kostnaði.
    Húsnæðisvandi ungs fólks einskorðast ekki við stúdenta og barnafjölskyldur því að hann á einnig við um ungt fólk sem flytur utan af landi til að stunda nám í framhaldsskóla. Lög um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, kveða á um skilyrði fyrir húsnæðisbótum, þ.e. að „um sé að ræða íbúðarhúsnæði hér á landi sem felur í sér venjulega og fullnægjandi heimilisaðstöðu þar sem að lágmarki er eitt svefnherbergi ásamt séreldhúsi eða séreldunaraðstöðu, sérsnyrtingu og baðaðstöðu“, sbr. 9. gr. þeirra laga.
    Samkvæmt lögum um námsstyrki, nr. 79/2003, eiga nemendur á framhaldsskólastigi, sem uppfylla tiltekin skilyrði, rétt á námsstyrk til að jafna fjárhagslegan aðstöðumun vegna búsetu. Réttar til námsstyrkja njóta íslenskir ríkisborgarar eða tilteknir erlendir ríkisborgarar sem stunda reglubundið framhaldsskólanám hér á landi eða erlendis ef ekki er unnt að stunda sambærilegt nám frá lögheimili hér á landi eða öðrum jafngildum dvalarstað.
    Enn fremur hafa þeir nemendur rétt á námsstyrk sem ekki hafa náð 18 ára aldri og stunda reglubundið nám sem miðar að skilgreindum námslokum við fræðasvið háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu ráðherra samkvæmt lögum um háskóla. Réttar til námsstyrks njóta þeir sem er torvelt um nám sakir efnaleysis eða þeir sem verða að dveljast fjarri fjölskyldu sinni vegna námsins, enda sé ekki unnt að stunda sambærilegt nám frá lögheimili eða öðrum dvalarstað.
    Styrkurinn skiptist í dvalarstyrk, skólaakstursstyrk og sérstakan styrk fyrir efnalitla nemendur, sbr. 3. gr. laganna. Akstursstyrkur er ætlaður nemendum sem keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu og sömuleiðis þeim sem búa ekki í foreldrahúsum en geta ekki sýnt fram á leigugreiðslur. Dvalarstyrkur er ætlaður nemendum sem flytja a.m.k. 30 km frá lögheimili sínu til að geta stundað nám. Á námsárinu 2017–2018 fengu alls 2.537 manns jöfnunarstyrk. Upphæð akstursstyrks fyrir námsárið 2017–2018 var 86.000 kr. á misseri en upphæð dvalarstyrks var 151.000 kr. á misseri.
    Samkvæmt 46. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, er heimilt að kveða á um rekstur heimavistar við framhaldsskóla í samningum milli ráðuneytis og framhaldsskóla. Enn fremur segir í greininni: ,,Ráðherra leitar heimilda í fjárlögum til þess að mæta kostnaði við umsjón og almennan rekstur. Nemendur bera sjálfir hluta sérgreinds kostnaðar í heimavistum sem skilgreindur er í reglugerð sem ráðherra setur. Skólameistari ber ábyrgð á starfsemi heimavistar, en getur með samningi falið öðrum að annast daglega umsýslu og rekstur.“
    Í núverandi fyrirkomulagi á nemandi á höfuðborgarsvæðinu betri möguleika á að stunda nám hvar sem er á landinu en nemandi af landsbyggðinni sem ákveður að stunda nám á höfuðborgarsvæðinu. Flutningsmenn telja mikilvægt að bæta stöðu aðfluttra framhaldsskólanema með stofnun heimavistar á höfuðborgarsvæðinu.