Ferill 76. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 717  —  76. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um bókanir í kjarasamningum við íslenska ríkið.


     1.      Hver er fjöldi bókana við hvern núgildandi kjarasamning sem ríkið hefur gert? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda bókana við hvern samning.
    Í gildi eru samtals 55 kjarasamningar milli ríkisins og 92 stéttarfélaga. Í þessu samningum eru 371 bókun eða ríflega sjö bókanir í hverjum kjarasamningi að meðaltali. Þess má þó geta að í nánast öllum þeirra eru tvær samhljóða bókanir sem snúa að heildstæðri endurskoðun á vinnutíma- og veikindakafla kjarasamninga. Einnig eru tvær nánast samhljóða bókanir er snúa að stofnanasamningum í flestum þessara kjarasamninga. Því eru fjórar bókanir að meðaltali sem eru almennt viðfangsefni allra samningsaðila sameiginlega. Aðrar bókanir eru því í raun þrjár að meðaltali.

Kjarasamningar og bókanir eftir bandalögum og stéttarfélögum.

Fjöldi
ASÍ stéttarfélaga kjarasamninga bókana
Félag vélstjóra og málmtæknimanna 1 2 10
Flóabandalagið 3 1 9
MATVÍS 1 1 5
Rafiðnaðarsambandið 3 1 6
Samiðn 4 1 6
Starfsgreinasambandið 16 1 9
BSRB
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins 1 1 7
Félag íslenskra flugumferðarstjóra 1 1 1
Félag starfsmanna Stjórnarráðsins 1 1 9
Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu 1 1 11
Landssamband lögreglumanna 1 1 8
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna 1 2 15
Samflot bæjarstarfsmanna 10 1 10
SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu 1 1 13
Sjúkraliðafélag Íslands 1 1 11
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 1 1 10
Tollvarðafélag Íslands 1 1 8
BHM
Dýralæknafélag Íslands 1 1 7
Félag geislafræðinga 1 1 8
Félag háskólakennara 1 1 5
Félag háskólakennara á Akureyri 1 1 5
Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins 1 1 7
FÍF, FG, SBU, SL 4 1 11
Félag íslenskra náttúrufræðinga 1 1 11
Félag lífeindafræðinga 1 1 7
Félag prófessora við ríkisháskóla 1 1 5
Félag sjúkraþjálfara 1 1 7
Félagsráðgjafafélag Íslands 1 1 8
Iðjuþjálfafélag Íslands 1 1 7
Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga 1 1 7
Leikarafélag Íslands 1 1 7
Ljósmæðrafélag Íslands 1 1 9
Sálfræðingafélag Íslands 1 1 7
Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands 1 1 9
Þroskaþjálfafélag Íslands 1 1 8
Utan bandalaga
Félag íslenskra atvinnuflugmanna 1 1 2
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 1 1 6
Félag íslenskra hljómlistarmanna 1 1 2
Félag ísl. leikara v. leikmynda- og búningahöfunda 1 1 1
Félag leikstjóra á Íslandi 1 1 3
Félag skipstjórnarmanna 1 2 11
Flugvirkjafélag Íslands 1 2 5
Kennarasamband Íslands 1 1 8
Lyfjafræðingafélag Íslands 1 1 5
Læknafélag Íslands 1 1 6
Samband stjórnendafélaga 9 1 7
Sjómannafélag Íslands 1 2 12
Skurðlæknafélag Íslands 1 1 5
Stéttarfélag tölvunarfræðinga 1 1 8
Stéttarfélag verkfræðinga 1 1 7

     2.      Hversu langur tími leið frá því að hver bókun birtist fyrst í kjarasamningi uns hún var afgreidd?
     3.      Hvaða bókanir hafa ekki verið afgreiddar og hvenær birtust þær fyrst í kjarasamningi?

    Við kjarasamningsgerð er fjallað um ýmis mál í bókunum þar sem umfjöllun um þau þykja ekki eiga heima í kjarasamningstextanum sjálfum eða ekki hefur náðst samstaða um þau eða ekki er vilji til að hafa þau þar. Lok bókana geta því verið háð samkomulagi aðila sem ekki næst alltaf.
    Umfjöllunarefni bókana eru fjölbreytt. Þau eru oft ágreiningsefni sem ætlunin er að skoða á samningstímanum eða að geyma til næstu samninga, einnig mál sem ekki er endilega ágreiningur um en ætlunin er að skoða, sameiginlegur skilningur aðila á efni sem um hefur verið deilt, aðgerð sem ráðist er í einu sinni, samstaða um að afla upplýsinga um mál sem ætlunin er að nýta í næstu samningalotu o.fl.
    Allar þessar bókanir, 371 talsins, eru í gildandi kjarasamningum sem gerðir voru á árunum 2015–2018 og birtust flestar fyrst við síðustu samningsgerð en einstaka bókun kann að hafa verið endurnýjuð úr eldri samningum.
    Vegna fjölda samninga og bókana er ómögulegt að taka saman í stuttu svari við fyrirspurn hversu margar bókanir hafi verið uppfylltar. Eins og kemur fram hér á undan eru sumar bókanir þess eðlis að ekki er ætlunin að uppfylla þær og oft er ekki samstaða meðal samningsaðila um hvenær bókun telst uppfyllt, sbr. texta á heimasíðu ríkissáttasemjara: „Bókanir með kjarasamningi taka til ágreiningsefna, sem ekki eru leyst í eiginlegum kjarasamningi. Bókanir hafa sama gildi og kjarasamningurinn sjálfur samkvæmt úrskurði Félagsdóms.“
    Einnig þarf oft að ná breiðri samstöðu meðal allra aðila vinnumarkaðarins svo hægt sé að afgreiða bókanir, sbr. bókanir sem minnst var á hér að framan um endurskoðun vinnutíma- og veikindakafla kjarasamninga. Aðilar hafa ekki verið samstiga um hvaða breytingar skuli gera á þessum köflum kjarasamninga og því ólíklegt að þær bókanir verði afgreiddar á yfirstandandi samningstímabili. Þar með er ekki sagt að þær hafi ekki náð tilgangi sínum.