Ferill 477. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 747  —  477. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um refsibrot sem varða framleiðslu áfengis til einkaneyslu.

Frá Snæbirni Brynjarssyni.


     1.      Hversu margir einstaklingar hafa hlotið refsingu fyrir framleiðslu áfengis til einkaneyslu, sem er refsivert skv. a-lið 2. mgr. 4. gr. áfengislaga, nr. 75/1998, frá gildistöku laganna 1. júlí 1998? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Telur ráðherra tímabært að endurskoða eða afnema framangreint ákvæði áfengislaga?


Skriflegt svar óskast.