Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 751  —  268. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur um fjárfestingarstefnu sjóða.


     1.      Hafa opinberir íslenskir lífeyrissjóðir og fjárfestingarsjóðir á vegum ríkisins virka samfélags- og jafnréttisstefnu í sinni fjárfestingarstefnu?
    Við vinnslu svarsins aflaði ráðuneytið upplýsinga frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, vegna ábyrgðar ríkisins á B-deild sjóðsins, og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
    Í upplýsingum frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins kom fram að verðbréfaeignum sjóðsins sé stýrt hjá sjóðnum sjálfum, þ.e. starfsmenn eignastýringar lífeyrissjóðsins sjái annars vegar um að kaupa beint hlutabréf og skuldabréf á innlendum markaði og eftir atvikum í innlendum sérhæfðum verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum og hins vegar að greina og meta erlenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóði. Við eignastýringu lífeyrissjóðsins sé unnið eftir jafnréttisáætlun sem sjóðurinn hefur sett sér.
    Jafnframt kom fram að lífeyrissjóðurinn hafi undirgengist reglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar. Með aðild að reglunum skuldbindur sjóðurinn sig til að leggja til grundvallar við mat á fjárfestingum sínum þætti sem snúa að umhverfi, samfélagi og stjórnarháttum. Á heimasíðu lífeyrissjóðsins má finna umfjöllun um ábyrgar fjárfestingar í fjárfestingarstefnu sjóðsins.
    Samkvæmt svörum frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins er samfélagsleg skírskotun verkefna í fjárfestingarstefnu sjóðsins og unnið er að verkefnum sem tengjast heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Sjóðurinn leitist ávallt við að tryggja samfélagslegt gildi verkefna og að jafnréttis sé gætt í hvívetna í fyrirtækjum sem fjárfest er í. Því sé m.a. framfylgt með stjórnarsetu í félögum sem fjárfest er í og eftirfylgd með góðum stjórnarháttum. Einnig hafi sjóðurinn sett sér markmið um samfélagslega ábyrgð sem meðal annars felast í stuðningi við ýmis félagasamtök og málefni.

     2.      Gera opinberir íslenskir lífeyrissjóðir og fjárfestingarsjóðir á vegum ríkisins kröfu til þeirra sjóða sem sjá um eignastýringu fyrir þá að ákveðinn hluti starfsmanna sem starfa beint við fjárfestingar sé kvenkyns?
    Líkt og fram kom hér að ofan fer mat á fjárfestingarkostum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins fram hjá eignastýringu sjóðsins sjálfs, en þar vinna tvær konur og tveir karlar. Samkvæmt sjóðnum er verklagsreglum um fjárfestingar fylgt við mat á verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum. Þá skoðar sjóðurinn hvort viðkomandi sjóður/rekstrarfélag sé aðili að reglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar og hvort að sett hafi verið stefna í ábyrgum fjárfestingum. Jafnframt kannar sjóðurinn hvernig unnið sé eftir þeirri stefnu og árangur metinn.
    Samkvæmt upplýsingum frá Nýsköpunarsjóði fjárfestir sjóðurinn almennt beint í fyrirtækjum en hefur þó í gegnum árin átt hlutdeild í sjóðum eins og Frumtaki 1. Fram kom að kynjahlutfall starfsmanna hjá sjóðnum væri jafnt. Í Frumtaki eru þrír starfsmenn, þarf af tvær konur. Þá greinir að sjóðurinn geri þá kröfu til sjóða sem fjárfest er í, eins og allra fyrirtækja, að lögum og reglum um jafnréttismál sé fylgt.

     3.      Gera opinberir íslenskir lífeyrissjóðir og fjárfestingarsjóðir á vegum ríkisins kröfu til þeirra sjóða sem þeir fjárfesta í að þeir séu með virka samfélags- og jafnréttisstefnu í sínum fjárfestingum, þegar kemur að því að fjárfesta í fyrirtækjum þar sem konur eru meirihlutaeigendur eða framkvæmdastjórar?
    Samkvæmt upplýsingum frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins hefur sjóðurinn sett sér stefnu um samfélagsleg markmið og jafnrétti til viðmiðunar í fjárfestingum. Fram kom að eitt af þeim atriðum sem könnuð væru við mat á hugsanlegum fjárfestingum sé hvort viðkomandi sjóður sé með virka samfélagsstefnu. Þar undir falli m.a. jafnréttisstefna. Lífeyrissjóðurinn hafi þó ekki gert skýran greinarmun á því hvort konur séu meirihlutaeigendur, minnihlutaeigendur eða framkvæmdastjórar í viðkomandi fyrirtækjum. Hið sama gildir hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
    Að lokum má þess geta að Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með að starfsemi lífeyrissjóða og fjárfestingarsjóða sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og reglna settar samkvæmt þeim og er eftirlit með fjárfestingarstefnu hluti þess.