Ferill 68. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 759 — 68. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á þinglýsingalögum, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu og lögum um aukatekjur ríkissjóðs (rafrænar þinglýsingar).
(Eftir 2. umræðu, 14. desember.)
I. KAFLI
Breyting á þinglýsingalögum, nr. 39/1978, með síðari breytingum.
1. gr.
Um þinglýsingu með rafrænni færslu fer eins og greinir í 1. mgr. eftir því sem við á.
2. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Einnig er heimilt að þinglýsa með rafrænni færslu.
b. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Rafræn þinglýsingarfærsla skal staðfest með fullgildum rafrænum hætti.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um framkvæmd þinglýsinga með rafrænni færslu, m.a. um rafrænt öryggi, vottun, tímastimplanir, auðkenni, innsigli, greiðslu og önnur atriði sem varða framkvæmd og kröfur til þinglýsinga með rafrænni færslu.
3. gr.
a. Á eftir 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Skilyrði a–f-liðar 2. mgr. gilda um beiðni um þinglýsingu með rafrænni færslu.
Móttaka beiðni um rafræna þinglýsingu skal staðfest með rafrænum hætti.
b. Við 2. málsl. 3. mgr. bætist: og -tíma.
4. gr.
5. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Þinglýsing fer fram með þeim hætti að meginatriði skjals eru færð í þinglýsingabók, auk tímastimplunar dagbókarfærslu. Við þinglýsingu er stöðu skjals breytt úr „dagbókarfært“ í „þinglýst“.
b. Við 2. mgr. bætist: eða staðfest er að þinglýsing hafi farið fram með rafrænni færslu.
6. gr.
a. Við 1. málsl. bætist: og er þá heimilt að gera það með rafrænni færslu.
b. Í stað orðanna „Verður þá“ í 2. málsl. kemur: Ef um handhafabréf er að ræða verður.
7. gr.
a. 3. og 4. málsl. 1. mgr. orðast svo: Aflýsing skjals í þinglýsingabók fer þannig fram að stöðu skjals er breytt úr „þinglýst“ í „aflýst“. Upplýsingar um aflýst skjöl og yfirlýsingu rétthafa skulu varðveittar í ferilskrá viðkomandi eignar í þinglýsingabók.
b. 1. og 2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Hafi skjal verið afhent með áritaðri yfirlýsingu rétthafa um að því megi aflýsa skal rita vottorð um aflýsinguna á það eintak skjalsins og geta þess hvenær hún fór fram og hvar hennar sé getið. Þinglýsingarstjóri vistar hið áritaða eintak um aflýsingu í þinglýsingabók.
8. gr.
a. 2. mgr. orðast svo:
Skjal sem er afhent til þinglýsingar fær tímastimplun kl. 21 þann dag sem það telst afhent. Skjöl sem berast eftir skrifstofutíma teljast afhent næsta virka dag.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Rafræn þinglýsingarfærsla í dagbók er tímastimpluð þegar hún berst og telst afhent til þinglýsingar á þeirri stundu.
9. gr.
a. Orðin „eða fær stöðuna „þinglýst“ í tölvu“ í 1. málsl. falla brott.
b. Í stað orðanna „þeim degi“ í 1. málsl. kemur: þeirri tímasetningu.
c. Í stað orðanna „þeim degi, sem tilgreindur“ í 2. málsl. kemur: þeirri tímasetningu, sem tilgreind.
d. Í stað orðsins „samdægurs“ í 3. málsl. kemur: samtímis.
e. 4. málsl. fellur brott.
10. gr.
Fullgild rafræn undirskrift á beiðni um þinglýsingu með rafrænni færslu staðfestir dagsetningu og undirskrift. Fjárræði útgefanda skal sannreynt í skrá yfir lögræðissvipta menn.
11. gr.
12. gr.
a. Við 1. málsl. bætist: eða þinglýst sé staðfestingu þinglýsts rétthafa um aflýsingu skjals, enda hafi skráning kröfuhafa verið leiðrétt, sbr. ákvæði til bráðabirgða II í lögum um aukatekjur ríkissjóðs.
b. 2. málsl. fellur brott.
13. gr.
14. gr.
15. gr.
Ráðherra ákveður í reglugerð hvaða tegundum skjala má þinglýsa með rafrænni færslu, hvaða upplýsingar teljast meginatriði skjala og á hvaða tegundir eigna skv. IV.–VII. kafla má þinglýsa með rafrænni færslu.
16. gr.
Leiðrétta skal skráningu kröfuhafa samkvæmt veðbréfum öðrum en handhafabréfum í þinglýsingabók. Ef kröfuhafi er ríkissjóður, opinber stofnun, banki, sparisjóður, lífeyrissjóður, tryggingafélag eða verðbréfasjóður má leiðrétta skráningu kröfuhafa án þess að frumriti eða ljósriti veðbréfs sé framvísað til sönnunar á framsali. Í öðrum tilvikum þarf að framvísa árituðu frumriti eða endurriti veðbréfs í samræmi við 12. og 39. gr. Stefnt skal að því að leiðréttingu skráningar kröfuhafa verði lokið innan árs frá gildistöku laga þessara.
II. KAFLI
Breyting á lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nr. 30/2002, með síðari breytingum.
17. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, með síðari breytingum.
18. gr.
Ekki skal greiða þinglýsingargjald fyrir leiðréttingu á skráningu kröfuhafa vegna rafrænna þinglýsinga.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991, með síðari breytingum.
19. gr.
20. gr.