Ferill 468. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 826 — 468. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Inga Kristinssyni um skráðar hópbifreiðar með aðgengi fyrir fatlað fólk.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu margar hópbifreiðar hafa verið skráðar frá gildistöku laga um farþegaflutninga og farmflutninga, nr. 28/2017, og hversu margar af þeim hafa uppfyllt ákvæði laganna um aðgengi fyrir fatlað fólk, svo sem fólk sem notar hjólastól?
Lög nr. 28/2017, um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, tóku gildi 1. júlí 2017. Frá gildistöku laganna hefur eftirfarandi fjöldi hópbifreiða verið skráður í ökutækjaskrá Samgöngustofu:
| ESB-flokkur ökutækis | Fjöldi ökutækja |
| Hópbifreið II (M3) | 176 |
| Hópbifreið I (M2) | 91 |
| Samtals | 267 |
Í 19. gr. laga nr. 28/2017 er fjallað um réttindi fatlaðra og hreyfihamlaðra einstaklinga. Ákvæðið á rætur að rekja til reglugerðar ESB nr. 181/2011, um réttindi farþega í hópbifreiðum, sem var innleidd með lögunum. Meðal markmiða reglugerðarinnar er að tryggja rétt fatlaðra og hreyfihamlaðra einstaklinga þannig að þeir hafi sambærilega möguleika og aðrir á að nota hópbifreiðar. Reglugerðin kveður m.a. á um bann við mismunun fatlaðra og hreyfihamlaðra og skyldubundna aðstoð við þá. Þá er kveðið á um skyldur flutningsaðila að því er varðar aðgengisskilyrði og að tryggt sé að upplýsingar um verð og flutningsskilyrði séu tiltækar fötluðum og hreyfihömluðum farþegum. Ákvæði laga nr. 28/2017 og reglugerðar ESB nr. 181/2011 snúa hins vegar ekki að neinu leyti að gerð og búnaði ökutækja sem ætluð eru til að flytja fatlaða og hreyfihamlaða einstaklinga. Því er ekki um það að ræða að gerð og búnaður ökutækja uppfylli skilyrði laga nr. 28/2017.
Öll ökutæki skulu hins vegar uppfylla kröfur í reglugerð nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja. Þetta á við um ökutæki sem ætluð eru til að flytja fatlað fólk sem önnur ökutæki. Ákvæði reglugerðar 822/2004 gilda um hópbifreiðar sem önnur ökutæki. Með breytingum á reglugerðinni hafa gildandi ákvæði gerða Evrópusambandsins um gerð og búnað ökutækja verið innleidd eftir því sem þær hafa verið settar í sambandinu.
Ekki er um það að ræða að ökutæki séu flutt inn sérstaklega sem ökutæki sem nota á til að flytja fatlað fólk. Því þarf að gera breytingar á ökutækjum sem nota á til slíkra flutninga. Ökutæki sem breyta á frá upphaflegri gerð þarf að skoða og votta skal sérstaklega að þau uppfylli allar kröfur eftir breytinguna. Skoðunin, svokölluð breytingaskoðun, fer fram á skoðunarstöð. Uppfylli ökutækið allar kröfur fær það sérstaka skráningu í ökutækjaskrá í samræmi við það. Ökutæki, sem breytt hefur verið þannig að það henti til að flytja fatlað fólk og er ætlað fyrst og fremst til slíkrar notkunar, er skráð í notkunarflokkinn Flutningur hreyfihamlaðra. Fjöldi hópbifreiða sem skráðar eru í þann flokk er nú 59.
Þrátt fyrir að upplýsingar liggi fyrir um fjölda hópbifreiða í flokknum Flutningur hreyfihamlaðra eru þær upplýsingar þó ekki tæmandi. Á skrá er fjöldi ökutækja sem ætluð eru fyrst og fremst til annarra nota en flutnings hreyfihamlaðra en eru með ýmiss konar búnað sem gerir þeim mögulegt að flytja slíka farþega. Þar má t.d. nefna ökutæki sem eru fyrst og fremst notuð í leiguakstri. Skráður notkunarflokkur ökutækjanna er ekki Flutningur hreyfihamlaðra en ökutækin henta samt sem áður til flutnings fatlaðra.
Ekki eru tök á að svara því á tæmandi hátt hve margar hópbifreiðar eru búnar til flutnings á fötluðu fólki sé skráður notkunarflokkur þeirra annar. Skráning í bifreiðaskrá er ekki með þeim hætti að hægt sé að kalla fram fjölda þeirra ökutækja sem hefur verið breytt þannig að þau henti til að flytja fatlað fólk þegar flutningur fatlaðra er viðbót við skráðan notkunarflokk.