Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 867 — 476. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Steinunni Þóru Árnadóttur um umhverfisáhrif heræfinga.
1. Hver er áætluð árleg losun gróðurhúsalofttegunda vegna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér?
Slík losun hefur ekki verið áætluð sérstaklega eða mæld af íslenskum stjórnvöldum sem bera ábyrgð á bókhaldi um losun gróðurhúsalofttegunda. Mögulega geta forsvarsmenn loftrýmisgæslunnar gefið upplýsingar um eldsneytisþörf og losun vegna hennar, en umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur ekki þær upplýsingar.
2. Hefur ráðuneytið lagt mat á helstu mögulegu umhverfisáhrif heræfinga á Íslandi?
Ráðuneytið hefur ekki lagt mat á umhverfisáhrif heræfinga. Heræfingar falla ekki undir ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum og ráðuneytið hefur ekki sjálft lagt mat á umhverfisáhrif þeirra.