Ferill 457. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 902  —  457. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um tilnefningu sérfróðra meðdómsmanna og kunnáttumanna.

     1.      Hverja hefur dómstólasýslan tilnefnt sem sérfróða meðdómsmenn á grundvelli 1. mgr. 39. gr. laga um dómstóla?
    Dómstólasýslan hefur nú tilnefnt alls rúmlega hundrað einstaklinga með sérkunnáttu á öðrum sviðum en lögfræði til fimm ára í senn til að gegna störfum sem sérfróðir meðdómsmenn í samræmi við 1. mgr. 39. gr. laga um dómstóla, nr. 50/2016. Lista með nöfnum þeirra og fagsviðum er að finna á vef dómstólasýslunnar og er hann jafnframt meðfylgjandi, sbr. fylgiskjal.

     2.      Hversu oft hefur verið óskað eftir að dómstólasýslan tilnefni kunnáttumann á grundvelli 2. málsl. 1. mgr. 40. gr. laga um dómstóla og hversu oft hefur dómstólasýslan tilnefnt slíkan meðdómsmann?
    Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga um dómstóla skal dómstóll kveðja til sérfróða meðdómendur, úr hópi þeirra sem dómstólasýslan hefur tilnefnt skv. 39. gr. laganna. Telji sá sem vill kveðja til sérfróðan meðdómanda, þ.e. dómari eða dómsformaður, engan þeirra sem dómstólasýslan hefur þegar tilnefnt búa yfir nauðsynlegri sérkunnáttu til úrlausnar máls skal hann leita til dómstólasýslunnar sem þá skal finna mann með viðeigandi sérkunnáttu. Í alls 22 skipti hefur dómari óskað þess að tiltekinn einstaklingur, sem ekki hafði þegar verið tilnefndur, yrði tilnefndur til setu í tilteknu máli af þessum sökum. Hafa þeir einstaklingar í kjölfarið verið tilnefndir til fimm ára, sbr. 1. mgr. 39. gr. laga um dómstóla. Í fimm skipti til viðbótar hefur dómstólasýslan fundið kunnáttumenn til að sitja sem sérfróðir meðdómendur í einstöku máli á grundvelli 2. málsl. 1. mgr. 40. gr., en viðkomandi einstaklingar ekki sóst eftir eða viljað taka tilnefningu til fimm ára.


Fylgiskjal.


Sérfróðir meðdómsmenn sem tilnefndir hafa verið á grundvelli 39. gr. laga um dómstóla, nr. 50/2016.


Nafn Starfsheiti
Aðalsteinn Sigfússon Sálfræðingur
Andri Ísak Þórhallsson Efnaverk- og efnafræðingur
Anton Örn Brynjarsson Byggingaverkfræðingur
Ari Guðmundsson Byggingaverkfræðingur
Arnar Már Jóhannesson Löggiltur endurskoðandi
Atli Rútur Þorsteinsson Bygginga- og brunaverkfræðingur
Auðunn Elíson Byggingafræðingur og húsasmíðameistari
Ágúst Örn Sverrisson Hjartalæknir
Ágúst Þórðarson Byggingafræðingur
Ágústa Gunnarsdóttir Sálfræðingur
Álfheiður Steinþórsdóttir Klínískur sálfræðingur
Áskell Örn Kárason Sálfræðingur
Ásmundur Ingvarsson Byggingaverkfræðingur
Bárður Hafsteinsson Skipaverkfræðingur
Birgir Rafn Þráinsson Tölvunarfræðingur
Birkir Leósson Löggiltur endurskoðandi
Björgvin Fjelsted Skipstjórnarmaður
Björn Óli Guðmundsson Löggiltur endurskoðandi
Björn Jónsson Sérfræðingur í upplýsingatækni
Brynjar Emilsson Sérfræðingur í klínískri sálfræði
Brynjar Þór Jónasson Skipulagsfræðingur
Einar Guðbjartsson Viðskiptafræðingur
Eiríkur Blöndal Landbúnaðarverkfræðingur
Eiríkur Ásþór Ragnarsson Hagfræðingur
Erling Magnússon Húsasmíðameistari, byggingastjóri og lögfræðingur
Eymundur Sveinn Einarsson Löggiltur endurskoðandi
Eyþór Rafn Þórhallsson Byggingaverkfræðingur
Finnur Sturluson MBA, vélstjóri og véltæknifræðingur
Frímann Haukur Ómarsson Doktor í efnafræði
Gísli Baldursson Barna- og unglingageðlæknir
Guðfinna Eydal Klínískur sálfræðingur
Guðjón Baldursson Sérfræðingur í heimilislækningum
Guðjón Karlsson Læknir
Guðjón Kárason Rafmagnsverkfræðingur
Guðni Arinbjarnar Bæklunarlæknir
Guðrún Oddsdóttir Sérfræðingur í klínískri barnasálfræði
Gunnar Hrafn Birgisson Sérfræðingur í klínískri sálfræði
Gunnar Fannberg Gunnarsson Pípulagningameistari, BSc. í byggingafræði
Gunnar Júlíusson Grafískur hönnuður
Gunnar Svanbergsson Löggiltur sjúkraþjálfari
Gústaf Vífilsson Byggingaverkfræðingur
Gyða Sigurlaug Haraldsdóttir Doktor í sálfræði
Halldór Baldursson Doktor í bæklunarlækningum
Haraldur Sigþórsson Umferðarverkfræðingur
Helgi H. Viborg Sálfræðingur
Hersir Sigurgeirsson Dósent í fjármálum
Hilma Hólm Hjartalæknir
Hjalti Már Björnsson Bráðalæknir – FACEP
Hjalti Sigmundsson Húsasmíðameistari og byggingatæknifræðingur
Hjálmar Ingvarsson Byggingafræðingur og húsasmíðameistari
Hrefna Sigríður Briem Viðskiptafræðingur
Hreggviður Ingason Fjármálastærðfræðingur
Hrönn Garðarsdóttir Sérfræðingur í heimilislækningum
Ingi Tryggvason Löggiltur fasteignasali og hrl.
Jóhann Viðar Ívarsson MBA
Jóhann Tómas Sigurðsson Löggiltur verðbréfamiðlari
Jóhann Unnsteinsson Löggiltur endurskoðandi
Jón Ellert Lárusson Viðskiptafræðingur, meistarapróf í skattarétti og reikningsskilum
Jón Magnússon Byggingaverkfræðingur
Jón Ingvar Pálsson Skipatæknifræðingur
Jón Ágúst Pétursson Byggingatæknifræðingur og húsasmíðameistari
Jón Haukur Steingrímsson Jarðverkfræðingur
Kristinn Hugason Búfjárkynbótafræðingur og stjórnsýslufræðingur
Kristinn Tómasson Doktor í geðlækningum
Kristján Arinbjarnar Byggingaverkfræðingur
Lárus Finnbogason Löggiltur endurskoðandi
Magnús Þór Arnarson Efnaverkfræðingur
Margret G. Flóvenz Löggiltur endurskoðandi
Magnús Gottfreðsson Dósent og sérfræðingur í lyflækningum og smitsjúkdómum
Magnús Þór Jónsson Vélaverkfræðingur og prófessor í vélhlutafræði
Maríus Þór Jónasson Byggingatæknifræðingur
Oddi Erlingsson Sérfræðingur í klínískri sálfræði
Pálmi Kristinsson Verkfræðingur
Ragna Ólafsdóttir Sálfræðingur
Rúnar Helgi Andrason Doktor í klínískri sálfræði
Sighvatur Óttar Elefsen Vélaverkfræðingur
Sigmundur Sigfússon Geðlæknir
Sigríður Guðrún Suman Efnafræðingur
Sigrún Sveinbjörnsdóttir Prófessor emerita í sálfræði
Sigurbjörn Árni Arngrímsson Íþróttafræðingur
Sigurbjörn Einarsson Viðskiptafræðingur
Sigurbjörn Skarphéðinsson Löggiltur fasteignasali
Sigurður Freyr Magnússon MSc. í hagfræði og verkfræðingur
Sigurður R. Ragnarsson Byggingaverkfræðingur
Sigurður Sigurðsson Byggingaverkfræðingur og byggingatæknifræðingur
Sjöfn Ágústsdóttir Sálfræðingur
Sólveig Jónsdóttir Klínískur sálfræðingur
Sveinbjörn Jónsson Verkfræðingur
Tómas Högni Unnsteinsson Byggingafræðingur
Trausti Ragnar Einarsson Meistari í múrsmíði, vélvirkjun og bifvélavirkjun
Tryggvi Jakobsson Byggingafræðingur
Tryggvi Tryggvason Arkitekt
Valgerður Magnúsdóttir Sálfræðingur
Vilhjálmur Rafnsson Læknir
Vífill Oddsson Byggingaverkfræðingur
Þorgeir Magnússon Sálfræðingur
Þorgils Arason Byggingaverkfræðingur
Þorkell Magnússon Arkitekt og löggiltur húsasmíðameistari
Þorvaldur Ingvarsson Bæklunarskurðlæknir
Þorvarður Gunnarsson Löggiltur endurskoðandi
Þórður Árnason Húsasmíðameistari og matsfræðingur
Þröstur Guðmundsson Vélaverkfræðingur og Ph.D. í efnisverkfræði
Ævar Harðarson Ph.D. arkitekt og skipulagsfræðingur