Ferill 456. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 903  —  456. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um kvartanir vegna forstöðumanna dómstóla.


     1.      Hafa dómstólasýslunni borist kvartanir vegna forstöðumanns dómstóls skv. 46. gr. laga um dómstóla eða hefur hún tekið upp slík mál að eigin frumkvæði? Ef svo er, hversu mörg mál hafa borist?
    Dómstólasýslunni hefur borist ein kvörtun vegna forstöðumanns dómstóls á grundvelli 46. gr. laga um dómstóla, nr. 50/2016. Þá hefur stofnunin tekið upp eitt mál að eigin frumkvæði á grundvelli ákvæðisins.

     2.      Hversu oft hefur tilmælum eða skriflegri áminningu verið beint til forstöðumanns í þessum málum og hversu oft hefur dómstjóra verið veitt lausn á grundvelli 2. mgr. fyrrnefnds ákvæðis?
    Dómstólasýslan hefur hvorki beint tilmælum til forstöðumanns dómstóls á grundvelli 2. mgr. 46. gr. laga um dómstóla né veitt áminningu á grundvelli ákvæðisins.