Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 904 — 454. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um Haag-samning um gagnkvæma innheimtu meðlags.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur verið unnið að því eða stendur til að Ísland gerist aðili að Haag-samningi frá 23. nóvember 2007 um gagnkvæma innheimtu meðlags sem miðar að því að gera innheimtu meðlags skilvirkari milli aðildarríkja samningsins?
Á vegum Haag-stofnunarinnar um alþjóðlegan einkamálarétt hafa verið gerðir á fjórða tug samninga og viðauka, en Ísland er í dag aðili að sex samningum. Á síðasta ári sendi Innheimtustofnun sveitarfélaga áskorun til utanríkisráðuneytisins um að Ísland mundi gerast aðili að Haag-samningi um viðurkenningu og fullnustu meðlagsákvarðana frá 23. nóvember 2007. Í erindinu kemur m.a. fram að stofnunin telji ríkt tilefni til þess að fullgilda samninginn, en helsta markmið hans er að tryggja virka og árangursríka alþjóðlega innheimtu meðlaga. Utanríkisráðuneytið framsendi erindið til dómsmálaráðuneytisins þar sem utanríkisráðuneytið taldi það falla undir verksvið dómsmálaráðuneytisins að taka efnislega afstöðu til þess hvort fullgilda ætti samninginn.
Fyrirséð er að ef íslensk stjórnvöld ákveða að Ísland gerist aðili að umræddum samningi þyrfti að breyta lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga, nr. 54/1971, og leggja auknar skyldur á stofnunina. Í samningnum felst jafnframt að unnt er að óska eftir að ákvörðun verði tekin um greiðslu meðlags.
Í ljósi þess að meðlagsákvarðanir á grundvelli barnalaga, nr. 76/2003, falla undir verkefnasvið dómsmálaráðuneytisins en Innheimtustofnun sveitarfélaga og lög um Innheimtustofnun sveitarfélaga heyra undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið þykir verkefnið fela í sér að samstarf þurfi að eiga sér stað milli ráðuneytanna.
Er málið nú í skoðun hjá dómsmálaráðuneytinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, en ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort stefnt verði að aðild að umræddum samningi.