Ferill 461. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 908 — 461. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um birtingu upplýsinga um fjölda og afgreiðslu mála við dómstóla.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig miðar vinnu dómstólasýslunnar við að birta upplýsingar um fjölda og afgreiðslu mála við dómstóla eins og henni ber að gera skv. 4. tölul. 8. gr. laga um dómstóla?
Dómstólasýslan tók til starfa 1. janúar 2018 við gildistöku laga um dómstóla, nr. 50/2016. Yfirlit yfir fjölda mála hjá héraðsdómstólum árið 2017 hafa þegar verið birtar á heimasíðu þeirra og er verið að ljúka vinnslu sömu upplýsinga fyrir árið 2018. Þær verða birtar á vef dómstólasýslunnar ásamt sömu málatölum Landsréttar og Hæstaréttar Íslands. Þá er vinna við ársskýrslu fyrsta starfsárs dómstólasýslunnar og Landsréttar hafin. Þar verður gerð ítarleg grein fyrir starfsemi dómstólasýslunnar ásamt mikilvægustu málatölum frá öllum dómstigum.