Ferill 421. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 923 — 421. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um kærur og málsmeðferðartíma.
1. Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
a. úrskurðaraðila um sjávarútveg og fiskeldi,
b. úrskurðaraðila um matvæli og landbúnað,
c. matsnefnd um lax- og silungsveiði?
a. Úrskurðaraðili um sjávarútveg og fiskeldi.
Á tímabilinu sem fyrirspurnin tekur til barst skrifstofu sjávarútvegs og fiskeldis í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, sá fjöldi stjórnsýslukæra í skilningi VII. kafla stjórnsýslulaga, sem hér segir:
| Ár | Fjöldi |
| 2013 | 24 |
| 2014 | 14 |
| 2015 | 13 |
| 2016 | 14 |
| 2017 | 26 |
| 2018 | 29 |
b. Úrskurðaraðili um matvæli og landbúnað.
Á tímabilinu sem fyrirspurnin tekur til barst skrifstofu matvæla- og landbúnaðar í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, sá fjöldi stjórnsýslukæra í skilningi VII. kafla stjórnsýslulaga, sem hér segir:
| Ár | Fjöldi |
| 2013 | 9 |
| 2014 | 11 |
| 2015 | 9 |
| 2016 | 7 |
| 2017 | 12 |
| 2018 | 14 |
c. Matsnefnd um lax- og silungsveiði.
Á tímabilinu sem fyrirspurnin tekur til barst matsnefnd um lax- og silungsveiði sá fjöldi stjórnsýslukæra í skilningi VII. kafla stjórnsýslulaga, sem hér segir:
| Ár | Fjöldi |
| 2013 | 3 |
| 2014 | Engar kærur bárust |
| 2015 | 1 |
| 2016 | Engar kærur bárust |
| 2017 | 1 |
| 2018 | 3 |
d. Úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla.
Á tímabilinu sem fyrirspurnin tekur til barst úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla sá fjöldi stjórnsýslukæra í skilningi VII. kafla stjórnsýslulaga, sem hér segir:
| Ár | Fjöldi |
| 2016 | 5 |
| 2017 | 2 |
| 2018 | 3 |
2. Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
a. Úrskurðaraðili um sjávarútveg og fiskeldi.
| Ár | Meðalafgreiðslutími | Stysti tími | Lengsti tími |
| 2013 | 291 dagar | 17 dagar | 1.114 dagar |
| 2014 | 320 dagar | 30 dagar | 1.014 dagar |
| 2015 | 276 dagar | 1 dagur | 787 dagar |
| 2016 | 261 dagar | 33 dagar | 655 dagar |
| 2017 | 175 dagar | 20 dagar | 624 dagar |
| 2018 | 145 dagar | 12 dagar | 300 dagar |
b. Úrskurðaraðili um matvæli og landbúnað.
| Ár | Meðalafgreiðslutími | Stysti tími | Lengsti tími |
| 2013 | 256 dagar | 32 dagar | 957 dagar |
| 2014 | 155 dagar | 82 dagar | 260 dagar |
| 2015 | 237 dagar | 35 dagar | 1267 dagar |
| 2016 | 127 dagar | 44 dagar | 213 dagar |
| 2017 | 174 dagar | 37 dagar | 321 dagar |
| 2018 | 157 dagar | 12 dagar | 288 dagar |
c. Matsnefnd um lax- og silungsveiði.
Til matsnefndar skv. 44. gr. laga um lax- og silungsveiði nr. 61/2006 verður skotið ágreiningi um arðskrá veiðifélags. Um er að ræða umfangsmikil mál þar sem safna þarf verulegum gögnum. Gagnaöflun þarf að vera lokið áður en fyrsta fyrirtaka vegna matsbeiðnar fer fram. Eftir að málsmeðferð hefst hjá matsnefnd er öllum veiðiréttarhöfum gefinn kostur á að skila inn greinargerð með sínum sjónarmiðum. Fjöldi þeirra er mjög mismikill og getur verið um nokkra tugi manna að ræða. Kynna þarf sjónarmið þeirra öðrum aðilum að matinu. Þá þarf matsnefnd einnig að fara vettvangsgöngu um félagssvæði veiðifélags og þá auðvitað þegar snjóa hefur leyst og helst áður en eða eftir að veiðitímabil hefst eða því lýkur. Af þessum ástæðum er málsmeðferðartími nefndarinnar óvenjulega langur.
| Ár | Meðalafgreiðslutími | Stysti tími | Lengsti tími |
| 2013 | 1.215 dagar | 664 dagar | 2.100 dagar |
| 2015 | 755 dagar | 755 dagar | 755 dagar |
| 2017 | 616 dagar | 616 dagar | 616 dagar |
d. Úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla.
| Ár | Meðalafgreiðslutími | Stysti tími | Lengsti tími |
| 2016 | 105 dagar | 72 dagar | 146 dagar |
| 2017 | 333 dagar | 333 dagar | 333 dagar |
| 2018 | 54 dagar | 14 dagar | 135 dagar |
3. Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?
| Úrskurðaraðili | Fjöldi |
| Úrskurðaraðili um sjávarútveg og fiskeldi | 22 |
| Úrskurðaraðili um matvæli og landbúnað | 5 |
| Matsnefnd um lax- og silungsveiði | 3 |
| Úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla | 0 |