Ferill 581. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 978  —  581. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um fjölda þeirra sem hafa hreyfihömlunarmat og fjölda þeirra sem nota hjálpartæki.

Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.


     1.      Liggja fyrir upplýsingar hjá Sjúkratryggingum Íslands og Tryggingastofnun um fjölda hreyfihamlaðra hér á landi?
     2.      Hversu margir voru með svokallað hreyfihömlunarmat í lok árs 2017 og 2018?
     3.      Hversu margir einstaklingar hafa fengið hjólastól (raf- og handknúna), göngugrind eða hækjur úthlutað af Sjúkratryggingum Íslands árin 2017 og 2018?


Skriflegt svar óskast.