Ferill 588. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 989 — 588. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um hugbúnaðarkerfið Orra.
Frá Smára McCarthy.
1. Hver er formlegur eigandi höfundaréttar að hugbúnaðarkerfinu Orra?
2. Hver er heildareignarhaldskostnaður ríkisins af hugbúnaðarkerfinu Orra, sundurliðað eftir upprunalegum þróunarkostnaði, viðhaldskostnaði og kostnaði við útvíkkun á eiginleikum?
3. Hvers vegna hefur kóðinn að hugbúnaðinum ekki verið gefinn út opinberlega, í samræmi við stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað?
4. Er auðkenningarkerfi notað til að stýra aðgangi að hugbúnaðinum og ef svo er, hvert er það kerfi?
Skriflegt svar óskast.