Ferill 592. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 993  —  592. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um hugbúnaðarkerfið Mentor.


Frá Smára McCarthy.


     1.      Hver er formlegur eigandi höfundarréttar að hugbúnaðarkerfinu Mentor?
     2.      Hver er heildareignarhaldskostnaður ríkisins af hugbúnaðarkerfinu Mentor, sundurliðað eftir upprunalegum þróunarkostnaði, viðhaldskostnaði og kostnaði við útvíkkun á eiginleikum?
     3.      Hvers vegna hefur kóðinn að hugbúnaðinum ekki verið gefinn út opinberlega, í samræmi við stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað?
     4.      Er auðkenningarkerfi notað til að stýra aðgangi að hugbúnaðinum og ef svo er, hvert er það kerfi?


Skriflegt svar óskast.