Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 995  —  594. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um hugbúnaðarkerfið Sögu.


Frá Smára McCarthy.


     1.      Hver er formlegur eigandi höfundarréttar að hugbúnaðarkerfinu Sögu?
     2.      Hver er heildareignarhaldskostnaður ríkisins af hugbúnaðarkerfinu Sögu, sundurliðað eftir upprunalegum þróunarkostnaði, viðhaldskostnaði og kostnaði við útvíkkun á eiginleikum?
     3.      Hvers vegna hefur kóðinn að hugbúnaðinum ekki verið gefinn út opinberlega, í samræmi við stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað?
     4.      Er auðkenningarkerfi notað til að stýra aðgangi að hugbúnaðinum og ef svo er, hvert er það kerfi?


Skriflegt svar óskast.