Ferill 595. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 996  —  595. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um hugbúnaðarkerfið Veru.


Frá Smára McCarthy.


     1.      Hver er formlegur eigandi höfundarréttar að hugbúnaðarkerfinu Veru?
     2.      Hver er heildareignarhaldskostnaður ríkisins af hugbúnaðarkerfinu Veru, sundurliðað eftir upprunalegum þróunarkostnaði, viðhaldskostnaði og kostnaði við útvíkkun á eiginleikum?
     3.      Hvers vegna hefur kóðinn að hugbúnaðinum ekki verið gefinn út opinberlega, í samræmi við stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað?
     4.      Er auðkenningarkerfi notað til að stýra aðgangi að hugbúnaðinum og ef svo er, hvert er það kerfi?


Skriflegt svar óskast.