Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1001 — 600. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um ábyrgð á vernd barna gegn einelti.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
Hvaða aðilar sem heyra undir ráðherra bera ábyrgð á því að börn verði ekki fyrir einelti í ljósi þess að ráðherra fer með jafnréttismál og málefni umboðsmanns barna, auk þess sem hann ber ábyrgð á stjórnskipan Stjórnarráðs Íslands í heild, sbr. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 119/2018? Óskað er eftir því að tilgreindir verði allir aðilar sem bera ábyrgð á því að koma í veg fyrir einelti og vernda þolendur þess, hvernig ábyrgð þeirra skiptist og samkvæmt hvaða lögum og reglum sú ábyrgð hvílir á þeim.
Skriflegt svar óskast.