Ferill 604. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1005  —  604. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um sifjadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

Frá Helgu Völu Helgadóttur.


     1.      Hyggst ráðherra bregðast við þeirri slæmu stöðu sem verið hefur um langt árabil á sifjadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna manneklu og mikils málafjölda?
     2.      Hefur ráðherra áform um að tryggja meira fé til embættisins svo hægt sé að hraða málsmeðferð þeirra mála sem undir sifjadeild heyra?