Ferill 486. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1014  —  486. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og lögum um gjaldeyrismál (aflandskrónulosun og bindingarskylda á fjármagnsinnstreymi).

(Eftir 2. umræðu, 27. febrúar.)


I. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, nr. 37/2016, með síðari breytingum.

1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði laga þessara:
     1.      Er heimilt að taka aflandskrónueignir í formi innstæðna út af reikningum háðum sérstökum takmörkunum eða innleysa innstæðubréf Seðlabankans til að kaupa erlendan gjaldeyri hjá fjármálafyrirtæki hér á landi eða alþjóðlegri verðbréfamiðstöð sem lagður er á reikning hjá erlendu fjármálafyrirtæki erlendis.
     2.      Er heimilt að taka aflandskrónueignir út af reikningum háðum sérstökum takmörkunum eða aflétta kvöðum skv. 5. og 6. gr. af aflandskrónueignum, enda sé uppfyllt það skilyrði að þær hafi verið í samfelldri eigu frá 28. nóvember 2008.
     3.      Er einstaklingi sem er skráður eigandi aflandskrónueigna heimilt að taka út af reikningi háðum sérstökum takmörkunum eða innleysa innstæðubréf Seðlabankans fyrir allt að 100 millj. kr., enda sé uppfyllt það skilyrði að einstaklingurinn sé raunverulegur eigandi þeirra fjármuna sem um ræðir.
    Ráðstafanir skv. 2. og 3. tölul. 1. mgr. eru háðar staðfestingu Seðlabanka Íslands.
    Seðlabanka Íslands er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis. Reglurnar skulu samþykktar af ráðherra og birtar í Stjórnartíðindum.

II. KAFLI
Breyting á lögum um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum.
2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða III í lögunum:
     a.      2. mgr. orðast svo:
                  Bindingarhlutfall af bindingargrunni ákvarðar bindingarfjárhæð. Bindingarfjárhæð helst óbreytt út upphaflegan bindingartíma. Skyldu til bindingar reiðufjár skal uppfylla:
                  1.      með kaupum fjármálafyrirtækis, sem er aðili að stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands, á sérstöku innstæðubréfi Seðlabankans fyrir bindingarfjárhæð, að frumkvæði fjárfestis, og sölu á innstæðubréfinu samhliða til Seðlabankans með afhendingu að bindingartíma liðnum á verði sem ákvarðast af vöxtum á innstæðubréfinu. Samningi um framvirka sölu verður ekki breytt á bindingartíma. Fjármálafyrirtæki miðlar kjörum og bindingartíma til fjárfestis, svo sem beint með framsali innstæðubréfs eða óbeint með afleiðuviðskiptum eða bindingu á reikningi, eða
                  2.      með ráðstöfun fjárfestis á bindingarfjárhæð inn á bundinn reikning hjá innlánsstofnun hér á landi. Innlánsstofnun skal leggja fjárhæð sem samsvarar allri bindingarfjárhæðinni á bundinn reikning hjá Seðlabanka Íslands innan sama viðskiptadags. Bindingu reiðufjár lýkur þegar bindingartími er liðinn, óháð því hvort nýtt innstreymi erlends gjaldeyris sem myndar bindingargrunn hefur verið losað með sölu eða endurgreiðslu. Úttektir af bundnum reikningum eru óheimilar á bindingartíma. Innlegg á bundna reikninga innlánsstofnana hjá Seðlabanka Íslands skulu háð sama bindingartíma og samsvarandi bindingarfjárhæð. Óheimilt er að veðsetja bindingarfjárhæð og innlán innlánsstofnana á bundnum reikningum hjá Seðlabanka Íslands.
     b.      Í stað „3. málsl.“ í 1. tölul. 3. mgr. kemur: 2. tölul.
     c.      Við 3. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: skilmála og kjör innstæðubréfa og endurhverfra viðskipta með innstæðubréf skv. 1. tölul. 2. mgr.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.