Ferill 618. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1023  —  618. mál.




Fyrirspurn


til forseta Alþingis um lækkun á kostnaðargreiðslum þingmanna.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.


     1.      Hvaða greiðslur til alþingismanna voru lækkaðar í kjölfar úrskurðar kjararáðs um hækkun launa alþingismanna haustið 2016 þegar þáverandi forseti Alþingis lagði til lækkun fastra kostnaðargreiðslna til þingmanna með tillögu sem var samþykkt í forsætisnefnd 31. janúar 2017?
     2.      Eru greiðslur sem voru lækkaðar skattskyldar?
     3.      Var metið af hálfu forsætisnefndar hvað lækkunin jafnaðist á við háa greiðslu fyrir skatt?
     4.      Hversu mikil var lækkunin í króntölu annars vegar fyrir landsbyggðarþingmenn og hins vegar þingmenn af höfuðborgarsvæðinu?
     5.      Hver hefur þróun greiðslna til þingmanna, þ.e. þingfararkaups og fastra mánaðarlegra greiðslna, verið frá því að kjararáð hóf að úrskurða um þingfararkaup árið 2006?


Skriflegt svar óskast.