Ferill 641. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Prentað upp.

Þingskjal 1047  —  641. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðgengi fólks utan höfuðborgarsvæðisins að sérfræðiþjónustu.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.


     1.      Hefur ráðherra áform um að breyta reglum um ferðakostnað sjúkratryggðra og greiða fyrir aðgengi fólks utan höfuðborgarsvæðisins að sérfræðiþjónustu þar sem Tryggingastofnun ríkisins tekur nú aðeins þátt í kostnaði við tvær ferðir sjúklings á 12 mánaða tímabili?
     2.      Hafa undanþágur verið veittar frá fyrrnefndri reglu?