Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1054 — 420. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um kærur og málsmeðferðartíma.
1. Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
a. áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema,
b. málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna,
c. mennta- og menningarmálaráðuneyti?
a. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema starfar samkvæmt reglum nr. 1152/2006 skv. 20. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006. Ráðuneytið hefur ekki tæmandi upplýsingar um allar kærur frá árinu 2013. Upplýsingar sem fyrir liggja í ráðuneytinu eru eftirfarandi. Ítreka skal að þessi listi er ekki tæmandi.
| Ár | Fjöldi |
| 2013 | 1 kæra |
| 2014 | 5 kærur |
| 2016 | 4 kærur |
| 2017 | 4 kærur, meðalafgreiðslutími um 15 vikur |
b. Málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna:
| Ár | Fjöldi |
| 2013 | 65 kærur |
| 2014 | 30 kærur |
| 2015 | 32 kærur |
| 2016 | 31 kæra |
| 2017 | 21 kæra |
| 2018 | 13 kærur |
c. Mennta- og menningarmálaráðuneyti:
| Ár | Fjöldi |
| 2013 | 18 kærur |
| 2014 | 13 kærur |
| 2015 | 21 kæra |
| 2016 | 7 kærur |
| 2017 | 24 kærur |
| 2018 | 11 kærur |
2. Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
a. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema: Meðalafgreiðslutími um 15 vikur.
b. Málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna:
| Ár | Meðalafgreiðslutími | Stysti (frávísun/efnisúrskurður) | Lengsti |
| 2013 | 4 mánuðir og 10 dagar | 5 dagar/3 mánuðir 5 dagar | 10 mánuðir |
| 2014 | 4 mánuðir og 2 vikur | 2 vikur/2 mánuðir og 2 vikur | 12 mánuðir |
| 2015 | 4 mánuðir og 1 vika | 6 vikur/2 mánuðir og 2 vikur | 9 mánuðir |
| 2016 | 5 mánuðir og 1 vika | 2 vikur/2 mánuðir og 3 vikur | 22 mánuðir og 2 vikur |
| 2017 | 5 mánuðir | 1 vika/3 mánuðir og 1 vika | 9 mánuðir |
| 2018 | 5 mánuðir | 2 vikur/3 mánuðir | 14 mánuðir |
c. Mennta- og menningarmálaráðuneyti:
| Ár | Meðalafgreiðslutími | Stysti (frávísun/efnisúrskurður) | Lengsti |
| 2013 | 15 vikur | 5 dagar | 26 vikur |
| 2014 | 14 vikur | 7 dagar | 34 vikur |
| 2015 | 18 vikur | 10 dagar | 45 vikur |
| 2016 | 8 vikur | 4 vikur | 13 vikur |
| 2017 | 17 vikur | 4 dagar | 37 vikur |
| 2018 | 42 vikur | 3 vikur | 136 vikur |
3. Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?
a. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema: Ekki hafa borist upplýsingar um hvort einhverjar kærur séu óafgreiddar frá nóvember 2018. Ráðuneytið sendi fyrirspurn þess efnis til núverandi formanns en hefur ekki fengið viðbrögð.
b. Málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna: 4 mál.
c. Mennta- og menningarmálaráðuneyti: 7 mál.