Ferill 651. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1064  —  651. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um úttekt á InterRAI-mælitækjum og færni- og heilsumati.

Frá Guðjóni S. Brjánssyni.


     1.      Mun heilbrigðisráðuneytið fylgja eftir öllum þeim ábendingum sem embætti landlæknis setti fram í minnisblaði, dagsettu 18. júní 2018, í framhaldi af úttekt KPMG á InterRAImælitækjum og færni- og heilsumati? Ef ekki, þá hvaða ábendingum og af hverju?
     2.      Hefur vinnuhópur um RAI-NH verið stofnaður eins og lagt er til í minnisblaðinu? Ef svo er, hefur fulltrúum þjónustuveitenda verið boðið að hafa fulltrúa í þeim vinnuhópi?
     3.      Er endurskoðun hafin á reglugerð um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma nr. 466/2012 eins og bent er á í minnisblaðinu að nauðsynlegt sé?


Skriflegt svar óskast.