Ferill 653. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1066  —  653. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um birtingu dóma og úrskurða héraðsdómstóla.

Frá Jóni Þór Ólafssyni.


     1.      Hversu oft hafa dómstjórar nýtt ákvæði 2. mgr. 3. gr. reglna dómstólasýslunnar um birtingu dóma og úrskurða á vefsíðu héraðsdómstólanna, nr. 3/2018, um að þegar sérstaklega standi á geti dómstjóri ákveðið að vikið skuli frá ákvæði 1. mgr. 3. gr. um takmarkanir á birtingu? Yfirlit óskast um öll slík tilvik frá því að þessi eða sambærileg regla tók fyrst gildi.
     2.      Hver hefur eftirlit með réttmæti slíkrar ákvörðunar dómstjóra skv. 1. tölul.?
     3.      Hafa borist beiðnir um að aflétta nafnbirtingu þegar eitt ár er liðið frá birtingu dóms, sbr. 4. gr. reglna nr. 3/2018, og ef svo er, hvernig er skipting á milli brotaflokka?


Skriflegt svar óskast.