Ferill 655. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1068  —  655. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, frá 9. maí 1992, og fella inn í samninginn eftirtaldar gerðir:
     1.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/438, frá 17. desember 2015, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar skyldur vörsluaðila.
     2.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1212, frá 25. júlí 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðlaðar málsmeðferðir og form fyrir framlagningu upplýsinga í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018, frá 23. mars 2018, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn eftirtaldar gerðir:
     1.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/438 frá 17. desember 2015 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar skyldur vörsluaðila.
     2.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1212 frá 25. júlí 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðlaðar málsmeðferðir og form fyrir framlagningu upplýsinga í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB.
    Þar sem lagastoð var ekki fyrir hendi fyrir framangreindum gerðum var ákvörðun nr. 63/2018 tekin af sameiginlegu EES-nefndinni með stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu. Í tillögu þessari er gerð nánari grein fyrir því hvað felst í slíkum fyrirvara, sbr. 103. gr. EES-samningsins. Jafnframt er gerð grein fyrir efni gerðanna sem hér um ræðir. Þær fela ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar sem hér um ræðir er prentuð sem fylgiskjal með tillögu þessari ásamt gerðunum sjálfum.

2. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Þó er um að ræða tiltölulega lágt hlutfall af heildarfjölda þeirra gerða sem ESB samþykkir. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins, Gengið til góðs – skref í átt að bættri framkvæmd EES-samningsins, kemur fram að á tímabilinu frá árinu 1994 til ársloka 2016 tók Ísland upp 13,4% þeirra gerða sem ESB samþykkti á sama tímabili.
    Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Á Íslandi hefur stjórnskipulegur fyrirvari almennt einungis verið gerður þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES-samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.

3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/438, frá 17. desember 2015, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar skyldur vörsluaðila.
    Í reglugerðinni er kveðið á um nánari útfærslu á tilteknum ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB, um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði, sem nefnd hefur verið UCITS IV, þ.e. með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á þeirri tilskipun með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/91/ESB, sem nefnd hefur verið UCITS V.
    Þannig er kveðið á um hvað eigi að koma fram í skriflegum samningi milli vörsluaðila og rekstrarfélags verðbréfasjóðs eða verðbréfasjóðs. Þá er kveðið nánar á um hlutverk vörsluaðila, meðal annars varðandi áskrift, innlausn og verðmat hlutdeildaskírteina og hluta, vöktun sjóðsstreymis og vörslu vörsluaðila á eignum sjóðs. Jafnframt er kveðið á um eftirlitsferla vegna útvistunar ákveðinna verkefna vörsluaðila til þriðja aðila. Loks er fjallað nánar um ábyrgð vörsluaðila, skaðabótaábyrgð þegar fjármálagerningar í vörslum tapast og í hvaða tilvikum vörsluaðili telst ekki ábyrgur sem og um hvernig tryggja eigi sjálfstæði vörsluaðila.

4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1212, frá 25. júlí 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðlaðar málsmeðferðir og form fyrir framlagningu upplýsinga í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB.
    Í reglugerðinni er útlistað hvaða ferlar skulu viðhafðir við að veita upplýsingar frá eftirlitum innan aðildarríkja til meðal annars Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA) á grundvelli tilskipunar 2009/65/ESB. Reglugerðin hefur jafnframt að geyma stöðluð form um hvernig slíkar upplýsingar skulu sendar.

5. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
    Með umræddum reglugerðum er sem fyrr segir að finna nánari útfærslu á framkvæmd ákvæða tilskipunar 2009/65, eins og henni hefur verið breytt með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/91/ESB, sem nefnd hefur verið UCITS V. Fyrirhugað er að innleiða síðastnefnda tilskipun með breytingum á lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingasjóði og fagfjárfestasjóði, nr. 128/2011. Stefnt er að því að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvarp þess efnis á næsta löggjafarþingi.
    Gert er ráð fyrir að nefndar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar, nr. 2016/438 og nr. 2016/1212, verði innleiddar með setningu reglugerða í kjölfar samþykkis þess frumvarps.

6. Samráð við Alþingi.
    Í reglum Alþingis um þinglega meðferð EES-mála er kveðið á um að ESB-gerðir, sem fyrirhugað er að fella inn í EES-samninginn en munu ekki taka gildi á Íslandi nema að undangengnu samþykki Alþingis, skuli sendar utanríkismálanefnd til umfjöllunar. Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/438 og 2016/1212 voru sendar utanríkismálanefnd til samræmis við framangreindar reglur. Í bréfi utanríkismálanefndar, dags. 7. mars 2018, kemur fram að nefndin hafi fjallað um gerðirnar og fylgir bréfinu álit efnahags- og viðskiptanefndar þar sem gerðirnar fengu efnislega umfjöllun. Í bréfinu eru ekki gerðar athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn.



Fylgiskjal I.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 63/2018, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/149/fylgiskjol/s1068-f_I.pdf




Fylgiskjal II.


Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/438, frá 17. desember 2015, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar skyldur vörsluaðila.

www.althingi.is/altext/pdf/149/fylgiskjol/s1068-f_II.pdf




Fylgiskjal III.


Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1212, frá 25. júlí 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðlaðar málsmeðferðir og form fyrir framlagningu upplýsinga í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB.

www.althingi.is/altext/pdf/149/fylgiskjol/s1068-f_III.pdf