Ferill 656. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1069 — 656. mál.
Stjórnartillaga.
Tillaga til þingsályktunar
um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2018, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Frá utanríkisráðherra.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2018 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 9. maí 1992 og fella inn í samninginn eftirtaldar gerðir:
1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/14/ESB frá 21. maí 2013 um breytingu á tilskipun 2003/41/EB um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri, tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) og tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða að því er varðar oftraust á lánshæfismöt.
2. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/91/ESB frá 23. júlí 2014 um breytingu á tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) að því er varðar störf vörsluaðila, starfskjarastefnu og viðurlög.
Greinargerð.
Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2018 frá 9. febrúar 2018 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og til að fella inn í samninginn eftirtaldar gerðir:
1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/14/ESB frá 21. maí 2013 um breytingu á tilskipun 2003/41/EB um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri, tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) og tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða að því er varðar oftraust á lánshæfismöt.
2. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/91/ESB frá 23. júlí 2014 um breytingu á tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) að því er varðar störf vörsluaðila, starfskjarastefnu og viðurlög.
Þar sem lagastoð var ekki fyrir hendi fyrir framangreindum gerðum var ákvörðun nr. 20/2018 tekin af sameiginlegu EES-nefndinni með stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu. Í tillögu þessari er gerð nánari grein fyrir því hvað felst í slíkum fyrirvara, sbr. 103. gr. EES-samningsins. Jafnframt er gerð grein fyrir efni gerðanna sem hér um ræðir. Þær fela ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast. Ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar sem hér um ræðir er prentuð sem fylgiskjal með tillögu þessari ásamt gerðunum sjálfum.
2. Um stjórnskipulegan fyrirvara.
Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Þó er um að ræða tiltölulega lágt hlutfall af heildarfjölda þeirra gerða sem ESB samþykkir. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins, Gengið til góðs – skref í átt að bættri framkvæmd EES-samningsins, kemur fram að á tímabilinu frá árinu 1994 til ársloka 2016 tók Ísland upp 13,4% þeirra gerða sem ESB samþykkti á sama tímabili.
Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
Að því er Ísland varðar hefur stjórnskipulegur fyrirvari almennt einungis verið gerður þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES-samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.
3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/14/ESB frá 21. maí 2013 um breytingu á tilskipun 2003/41/EB um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri, tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) og tilskipun 2011/61/ESB, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða að því er varðar oftraust á lánshæfismöt.
Með tilskipuninni eru gerðar breytingar á þremur tilskipunum á sviði sjóða, þ.e. tilskipun 2003/41, um starfstengda eftirlaunasjóði, tilskipun 2009/65, um verðbréfasjóði (sem nefnd er UCITS IV), og tilskipun 2011/61, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Tilskipunin kveður á um breyttar reglur hvað varðar notkun lánshæfismata hjá sjóðunum. Henni er ætlað að sporna gegn oftrausti á lánshæfismötum og koma í veg fyrir að treyst sé eingöngu eða vélrænt á lánshæfismöt eða þau notuð sem eina breytan við áhættumat í tengslum við fjárfestingar sjóða. Þannig á ekki að notast eingöngu við lánshæfiseinkunn þriðja aðila þegar áhætta á fjárfest-ingum er metin. Er tilgangur þess að auka gæði fjárfestinga nefndra sjóða og þar af leiðandi að auka fjárfestavernd.
Samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar bar að innleiða hana í ríkjum ESB eigi síðar en 21. desember 2014.
4. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/91/ESB frá 23. júlí 2014 um breytingu á tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) að því er varðar störf vörsluaðila, starfskjarastefnu og viðurlög.
Með tilskipuninni, sem nefnd er UCITS V, eru gerðar breytingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði, sem nefnd er UCITS IV. Tilskipuninni er ætla að bæta upp þá veikleika sem hafa komið í ljós í UCITS IV-regluverkinu og sem leitt hafa til eignataps fyrir fjárfesta.
Með tilskipuninni er leitast við að auka öryggi fjárfesta verðbréfasjóða með þrenns konar hætti:
Í fyrsta lagi inniheldur tilskipunin ákvæði um vörsluaðila. Hlutverk vörsluaðila er skýrt frekar og ákvæði um ábyrgð þeirra endurbætt. Skilgreint er hvaða aðilar geti sinnt því að vera vörsluaðilar og skilyrði sett fyrir útvistun á verkefnum vörsluaðila til þriðja aðila. Þá er bótaábyrgð vörsluaðila skýrð nánar en markmið þess er meðal annars að koma í veg fyrir að fjárfestar í verðbréfasjóðum þurfi að standa í langdregnum málaferlum til að skera úr um ábyrgð vörsluaðila þegar eignir í umsjón þeirra tapast.
Í öðru lagi felast í tilskipuninni nýjar reglur um starfskjarakerfi lykilstarfsmanna, þ.e. að rekstrafélögum beri að setja sér sérstaka starfskjarastefnu fyrir starfsmenn og aðra aðila sem taka ákvarðanir sem hafa áhrif á áhættutöku verðbréfasjóða og rekstrarfélaga.
Í fjármálakreppunni 2007–2008 kom í ljós að opinberir eftirlitsaðilar í aðildarríkjum Evrópusambandsins beittu sér á mismunandi vegu gagnvart brotum á reglum um verðbréfasjóði. Í þriðja lagi er í tilskipuninni þannig kveðið á um samræmingu á lágmarks valdheimildum eftirlitsaðila.
Samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar bar að innleiða hana í ríkjum ESB eigi síðar en 18. mars 2016. Tilskipunin mælir fyrir um heimildir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) til setningar frekari undirgerða sem útfæra ákvæði tilskipunarinnar, jafnt framseldra gerða og framkvæmdagerða.
5. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
Sem fyrr segir kallar innleiðing tilskipana 2013/14/ESB og 2014/91/ESB á lagabreytingar hér á landi. Gert er ráð fyrir að tilskipanirnar verði báðar innleiddar með breytingu á lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingasjóði og fagfjárfestasjóði, nr. 128/2011, auk afleiddra breytinga.
Stefnt er að því að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvarp þessa efnis á haustþingi 2019. Innleiðing gerðanna er fallin til þess að auka gæði fjárfestinga verðbréfasjóða og þar af leiðandi að auka fjárfestavernd.
6. Samráð við Alþingi.
Í reglum Alþingis um þinglega meðferð EES-mála er kveðið á um að ESB-gerðir, sem fyrirhugað er að fella inn í EES-samninginn en munu ekki taka gildi á Íslandi nema að undangengnu samþykki Alþingis, skuli sendar utanríkismálanefnd til umfjöllunar. Tilskipanir 2013/14/ESB og 2014/91/ESB voru sendar utanríkismálanefnd til samræmis við framangreindar reglur. Í bréfum utanríkismálanefndar, dags. 18. nóvember 2014 og 6. apríl 2017, kemur fram að nefndin hafi fjallað um gerðirnar og fylgja bréfunum álit efnahags- og viðskiptanefndar þar sem gerðirnar fengu efnislega umfjöllun. Í bréfunum eru ekki gerðar athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn.
Fylgiskjal I.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2018 frá 9. febrúar 2018 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónustu) við EES-samninginn.
www.althingi.is/altext/pdf/149/fylgiskjol/s1069-f_I.pdf
Fylgiskjal II.
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/14/ESB frá 21. maí 2013 um breytingu á tilskipun 2003/41/EB um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri, tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) og tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða að því er varðar oftraust á lánshæfismöt.
www.althingi.is/altext/pdf/149/fylgiskjol/s1069-f_II.pdf
Fylgiskjal III.
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/91/ESB frá 23. júlí 2014 um breytingu á tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) að því er varðar störf vörsluaðila, starfskjarastefnu og viðurlög.
www.althingi.is/altext/pdf/149/fylgiskjol/s1069-f_III.pdf