Ferill 668. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1084  —  668. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um máltækni fyrir íslensku.

Frá Kötlu Hólm Þórhildardóttur.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að heimila undanþágur frá höfundalögum í þágu máltækni til að geta nýtt efni innan kjarnaverkefna máltækninnar sem varin eru með höfundarétti, sbr. skýrsluna Máltækni fyrir íslensku 2018–2022: verkáætlun?
     2.      Hvernig miðar vinnu við kjarnaverkefni verkáætlunarinnar í ljósi þess að fullnægjandi aðgangur að íslensku efni er ekki til staðar?


Skriflegt svar óskast.