Ferill 563. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1107  —  563. mál.




Svar


ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Ásgerði K. Gylfadóttur um stafrænar smiðjur.


     1.      Hvaða hlut á Nýsköpunarmiðstöð Íslands í uppsetningu og rekstri stafrænna smiðja (Fab Lab-smiðja) á landinu?
    Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ) stóð að opnun fyrstu Fab Lab-smiðjunnar hér á landi í Vestmannaeyjum árið 2008 og hefur hún verið starfandi frá þeim tíma. Í Vestmannaeyjum er haldið utan um samstarfsnet Fab Lab-smiðja á landinu, undir heitinu Fab Lab Ísland. Smiðjan er tengiliður í samstarfi við meginmiðstöð stafrænna smiðja í heiminum, Fab Foundation við MIT háskólann í Bandaríkjunum, og heldur utan um Fab Academy, þar sem fram fer kennsla á sviði stafrænnar framleiðslutækni og annars konar færni fyrir atvinnulíf 21. aldar. Fab Lab-smiðjan í Vestmannaeyjum er alfarið rekin af NMÍ.
    Auk smiðjunnar í Vestmannaeyjum hefur NMÍ á síðustu 10 árum stutt við stofnun stafrænna smiðja víðsvegar um landið í samvinnu við framhaldsskóla á viðkomandi svæðum, atvinnulífið og einstök sveitarfélög og verið leiðandi á sviði fræðslu og rekstri smiðjanna. Smiðjan á Sauðárkróki sem hefur verið starfandi frá 2009 er alfarið rekin af NMÍ, en miðstöðin hefur einnig komið að stofnun og rekstri stafrænna smiðja á Akureyri, Ísafirði, Selfossi, Höfn, Suðurnesjum og Akranesi og í Reykjavík og Fjarðabyggð (sjá töflu).
    Samhliða þessari starfsemi veitir NMÍ, í samvinnu við menntamálayfirvöld, ýmsan stuðning við nemendur og kennara á grunn- og framhaldsskólastigi þegar kemur að menntun á sviði nýsköpunar og frumkvöðlamenntar. Má þar nefna nýsköpunarkeppni grunnskólanna og nýsköpunarkeppni framhaldsskólanna. Markmiðið er að auka langtímagetu samfélagsins á sviði sköpunar og samkeppnishæfni.

     2.      Hver er stefna ráðuneytisins um stuðning við nýsköpun og önnur þau verkefni sem fram fara í stafrænum smiðjum?
    Starfsemi stafrænna smiðja er í samræmi við stefnu stjórnvalda um aukna nýsköpun í atvinnulífi og aukið samstarf milli menntakerfis og atvinnulífs. Stafrænar smiðjur eru ekki fjármagnaðar sérstaklega með fjárlögum en atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur haft aðkomu að málefninu gegnum stuðning og ráðgjafarstarf NMÍ. Í ráðuneytinu er unnið að nýsköpunarstefnu fyrir Ísland sem m.a. hefur það að markmiði að stuðla að aukinni skilvirkni í stuðningskerfi nýsköpunar hér á landi og verður starfsemi stafrænna smiðja skoðuð í tengslum við þá stefnumótunarvinnu.
    Mikilvægt er að umgjörð um starfsemi stafrænna smiðja sé skýr og því hefur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðherra farið af stað með undirbúning áætlunar um uppbyggingu og rekstur stafrænna smiðja í samræmi við þingsályktun um aðgengi að stafrænum smiðjum, nr. 19/148, sem samþykkt var á Alþingi í maí 2018.

     3.      Hver er stefna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands varðandi aðkomu að stafrænum smiðjum?
    NMÍ hefur hlutverki að gegna við að miðla þekkingu og veita stuðningsþjónustu fyrir frumkvöðla, sprota- og nýsköpunarfyrirtæki. Í því ljósi er stefna NMÍ varðandi aðkomu að stafrænum smiðjum að vera miðpunktur þekkingar og þróunar á sviði stafrænna smiðja og öflugur stuðningsaðili stafrænna smiðja á öllu landinu. NMÍ leggur áherslu á mikilvægi stafrænna smiðja er kemur að nýsköpunar- og frumkvöðlamenntun á ólíkum skólastigum og þá ekki síst á framhaldsskólastigi. Í stafrænum smiðjum er sköpunarfærni, -kraftur og -kjarkur leyst úr læðingi og þar er kjörinn vettvangur til að þjálfa upp færni sem nýtist atvinnulífinu, skapar betra samfélag og eykur samkeppnishæfni landsins.

     4.      Hvernig hefur þróunin verið undanfarin tíu ár í stuðningi og rekstraraðstoð Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands við stafrænar smiðjur?
    Fyrsta stafræna smiðjan fór af stað 2008 í Vestmannaeyjum og í kjölfarið fylgdu smiðjur á Sauðárkróki og á Akranesi. Árið 2014 bættust fjórar smiðjur í stuðningsnet NMÍ, en alls hafa 10 stafrænar smiðjur notið stuðnings- og rekstraraðstoðar frá NMÍ. Aðkoma NMÍ er mismikil og á mismunandi stigum, sbr. yfirlit í eftirfarandi töflu. Í flestum samningum er miðað við að fjárhagslegur stuðningur frá NMÍ minnki eftir því sem líður á samningstímann en meiri áhersla verði lögð á faglega leiðsögn. Þannig hafa verið gerðir samningar við einstaka smiðjur með sólarlagsákvæði til þriggja ára um fjárhagslegan stuðning.

Yfirlit yfir fjárhagslegan stuðning NMÍ við stafrænar smiðjur.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.