Ferill 389. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1109  —  389. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um útgáfu á ársskýrslum.



    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða stofnanir og fyrirtæki sem heyra undir ráðuneytið gefa út ársskýrslu á pappírsformi og hver var kostnaðurinn sem lagðist á ráðuneytið vegna þessa árið 2017?

    Ráðuneytið bar engan kostnað af útgáfu ársskýrslna stofnana og fyrirtækja, á pappírsformi, á árinu 2017.
    
    Alls fór ein vinnustund í að taka þetta svar saman.