Ferill 689. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1113 — 689. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um vinnu afplánunarfanga.
Frá Álfheiði Eymarsdóttur.
1. Hvaða forsendur liggja að baki ákvörðun um fjárhæð þóknunar fyrir störf afplánunarfanga í fangelsum?
2. Hverjar eru tekjur og gjöld Fangelsismálastofnunar vegna vinnu afplánunarfanga? Svar óskast sundurliðað eftir kostnaðar- og tekjuliðum sl. 10 ár.
3. Geta fangar verið aðilar að stéttarfélagi? Ef svo er, hversu margir fangar sem starfa innan fangelsa eiga aðild að stéttarfélagi?
4. Greiða fangar í lífeyrissjóði?
Skriflegt svar óskast.