Ferill 694. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1118 — 694. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um kostnað ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna kaupa og notkunar á Microsoft-hugbúnaði.
Frá Álfheiði Eymarsdóttur.
Hversu miklum fjármunum hefur verið ráðstafað árlega undanfarin fimm ár í leyfisgjöld til Microsoft vegna nota af hugbúnaði og stýrikerfum í ráðuneytinu og undirstofnunum þess? Svar óskast sundurliðað fyrir ráðuneytið og hverja undirstofnun og jafnframt eftir leyfum vegna Windows-stýrikerfa, leyfum vegna Microsoft Office-hugbúnaðarsvítu og leyfum vegna annars hugbúnaðar frá Microsoft.
Skriflegt svar óskast.