Ferill 700. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1124 — 700. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um kostnað undirstofnana vegna kaupa og notkunar á Microsoft-hugbúnaði.
Frá Álfheiði Eymarsdóttur.
Hversu miklum fjármunum hefur verið ráðstafað árlega undanfarin fimm ár í leyfisgjöld til Microsoft vegna nota af hugbúnaði og stýrikerfum í undirstofnunum sem heyra undir ráðherra? Svar óskast sundurliðað fyrir hverja undirstofnun og jafnframt eftir leyfum vegna Windows-stýrikerfa, leyfum vegna Microsoft Office-hugbúnaðarsvítu og leyfum vegna annars hugbúnaðar frá Microsoft.
Skriflegt svar óskast.