Ferill 722. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1150  —  722. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um úthaldsdaga og flugtíma hjá Landhelgisgæslunni.

Frá Ingu Sæland.


     1.      Hversu margir hafa árlegir úthaldsdagar skipa Landhelgisgæslunnar verið frá árinu 2016, sundurliðað eftir árum og skipum?
     2.      Hversu margir hafa árlegir flugtímar flugvéla Landhelgisgæslunnar verið frá árinu 2009, sundurliðað eftir árum og flugvélum?
     3.      Hversu margir voru árlegir flugtímar TF-SIF frá því að vélin kom fyrst til landsins sumarið 2009 á meðan vélin var í leigu erlendis, sundurliðað eftir árum fram til 2019?


Skriflegt svar óskast.