Ferill 613. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1203  —  613. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Unni Brá Konráðsdóttur um uppbyggingu og framþróun Hornafjarðarflugvallar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver eru áform ráðherra varðandi frekari uppbyggingu og framþróun Hornafjarðarflugvallar? Eru uppi áform um að tryggja að hægt verði að sinna þaðan millilandaflugi?

    Öflugar flugsamgöngur eru forsenda ýmissa annarra atvinnugreina og blómlegs mannlífs í landinu. Örðugt hefur reynst að tryggja rekstrargrundvöll flugvallakerfisins innan lands. Viðhald og nýframkvæmdir hafa setið á hakanum en uppsöfnuð þörf fyrir viðhald flugvalla innan lands nemur um 7–8 milljörðum kr. með nauðsynlegri endurnýjun flugbrauta og flughlaða. Þeirri þróun verður að snúa við og því er eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar að gera innanlandsflugið að hagkvæmari kosti fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Frá því að ríkisstjórnin tók við hefur meira fjármagn verið veitt til viðhalds flugvalla en hefur verið gert á síðustu árum. Fjármunum er forgangsraðað í brýnustu verkefni, rekstur og viðhald áætlunarflugvalla í grunnneti en gera þarf betur því að innanlandsflug þarf að vera hluti af almenningssamgöngum sem þarf að tengja betur við alla landshluta og verða hagkvæmari kostur svo að allir fái sem jafnasta þjónustu. Í samgönguáætlun og í tillögu að fjármálaáætlun fyrir árin 2020–2024 er kveðið á um að Isavia taki yfir rekstur og viðhald allra alþjóðaflugvalla landsins frá 1. janúar 2020 og reki sem eitt net og tryggi þannig fjármögnun rekstrar þeirra og viðhalds. Slíkt stuðlar að aukinni dreifingu ferðamanna um landið og gefur fjárhagslegt svigrúm til viðhalds á öðrum innanlandsflugvöllum.
    Varðandi Hornafjarðarflugvöll þá er stefnt að endurnýjun ljósabúnaðarins ásamt því að setja upp nýjan flugleiðsögubúnað á þessu eða næsta ári. Kostnaður er áætlaður 115 millj. kr. Þá þarf að endurnýja slitlag flugbrautarinnar innan fárra ára. Áætlaður kostnaður er um 132 millj. kr.
    Miklar fjárfestingar eru fyrirhugaðar á helsta millilandaflugvelli landsins í Keflavík. Fjöldi ferðamanna fjórfaldaðist á árunum 2010–2018 þegar ríflega 2,3 milljónir ferðamanna heimsóttu landið. Samkvæmt farþegaspá Isavia, sem birt var í janúar, er útlit fyrir 2,4% fækkun erlendra ferðamanna í ár sem skapar óvissu til skemmri tíma.
    Nú eru fjórir flugvellir á Íslandi sem uppfylla kröfur til millilandaflugvalla, þ.e. Keflavíkurflugvöllur, Reykjavíkurflugvöllur, Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur. Fjárfestingar og rekstrarkostnaður þessara flugvalla er mun hærri en flugvalla sem ætlaðir eru eingöngu fyrir innanlandsflug.
    Flugvöllum á Íslandi er skipt í þrjá flokka:
     *      Í fyrsta flokki eru millilandaflugvellir sem þurfa að uppfylla kröfur samkvæmt reglugerð nr. 75/2016.

     *      Í öðrum flokki eru vellir sem lúta að ýmsu leyti vægari reglum en millilandaflugvellir, sbr. reglugerð nr. 464/2007, III. hluta, og þar er hvorki reiknað með landamærastöð né aðaltollhöfn.
     *      Í þriðja flokki eru skráðir lendingarstaðir en til þeirra eru gerðar minni kröfur, sbr. reglugerð nr. 464/2007, IV. hluta.
    Hornafjarðarflugvöllur er skilgreindur sem lendingarstaður.
    Til að hægt væri að sinna millilandaflugi um Hornafjarðarflugvöll þyrfti að færa hann upp í flokk millilandaflugvalla og þar með uppfylla ríkar kröfur á ýmsum sviðum, svo sem um öryggissvæði, flugvernd, rekstrarhandbækur og vegna gæða og öryggismála sem leiðir til umfangsmeiri reksturs.
    Til að gera Hornafjarðarflugvöll að millilandaflugvelli, sem gæti tekið á móti farþegaþotum, gerir Isavia ráð fyrir að ráðast þurfi í fjárfestingar fyrir um 4–5 milljarða kr. og að rekstrarkostnaður á ári, fyrir afskriftir og vexti, yrði á bilinu 400–600 millj. kr. á ári.
    Millilandaflugvellir þurfa að uppfylla miklar rekstrarkröfur um öryggi og gæði. Flugvallaryfirvöld þurfa að tryggja skimun farþega og farangurs þeirra, bæði handfarangurs og farangurs í lest. Þá þarf að tryggja aðskilnað skimaðra og óskimaðra farþega, þ.e. farþega í millilandaflugi annars vegar og farþega í innanlandsflugi hins vegar. Einnig þarf að tryggja að starfsmenn með tiltekna vottun komist um öryggissvæði en aðrir ekki. Loks þarf aðstöðu fyrir landamæravörslu og tolleftirlit. Vegna þessara atriða þyrfti að leggja í fjárfestingar í mannvirkjum auk þess sem rekstraraðili þarf fleiri starfsmenn til að tryggja þessa þætti á millilandaflugvelli. Sama gildir væntanlega um aðra aðila sem þar gegna hlutverki svo sem lögreglu og tollyfirvöld.
    Þótt minnka mætti fjárfestingarþörfina með því að þjóna eingöngu minni loftförum hlypi fjárfestingarkostnaður engu síður á milljörðum króna og rekstrarkostnaðurinn yrði mun hærri en á flugvelli sem þjónaði innanlandsflugi eingöngu. Þá er ljóst að tekjur slíks flugvallar stæðu seint undir rekstri hvað þá fjárfestingum.
    Hugsanlega má veita undanþágu frá gildandi reglum fyrir einstök flug minni einkavéla en aðeins ef sérstök öryggisrök lægju til grundvallar og að fengnu samþykki Samgöngustofu. Engin áform eru um að fjölga millilandaflugvöllum, hins vegar voru síðastliðið vor starfshópar settir á fót til að móta flugstefnu sem mun taka á öllum þáttum er varða flugstarfsemi hér á landi. Um fyrstu flugstefnu á Íslandi er að ræða og er henni ætlað að skapa umhverfi sem viðheldur grunni fyrir flugrekstur og flugtengda starfsemi hér á landi. Þá eru unnið að eigandastefnu Isavia eins og stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir.