Ferill 585. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1210  —  585. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 242/2018 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon og Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 242/2018, frá 5. desember 2018, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, frá 2. maí 1992, og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/720 frá 29. apríl 2015 um breytingu á tilskipun 94/62 að því er varðar að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti.
    Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 6. júní 2019. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Í tilskipun (ESB) 2015/720 eru lagðar skyldur á aðildarríki Evrópusambandsins að minnka notkun á plastpokum sem eru þynnri en 0,05 millimetrar en undir það falla bæði þunnir grænmetispokar og hefðbundnir innkaupapokar úr plasti. Þá ber að gera ráðstafanir til að minnka notkun á þeim þar sem aðildarríki hafa visst sjálfræði um hvaða aðgerða verður gripið til. Í þeim ráðstöfunum gæti falist að nota landsbundin markmið um minni notkun, að viðhalda eða innleiða efnahagsleg stjórntæki, sem og markaðshindranir að því tilskildu að þær séu hóflegar og án mismununar. Í tilskipuninni er kveðið á um að slíkar ráðstafanir geti verið mismunandi eftir umhverfisáhrifum af endurnýtingu þunnra burðarpoka úr plasti eða af förgun þeirra, eiginleikum þeirra hvað varðar myltingu, endingu þeirra eða sértækri fyrirhugaðri notkun.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar og hefur umhverfis- og auðlindaráðherra á yfirstandandi löggjafarþingi lagt fram lagafrumvarp til innleiðingar á tilskipuninni. Í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar eru í frumvarpinu lagðar til ráðstafanir til að tryggja að eigi síðar en 31. desember 2019 verði fjöldi burðarpoka úr plasti sem hver einstaklingur notar að jafnaði árlega 90 pokar eða færri og eigi síðar en 31. desember 2025 verði fjöldinn 40 pokar eða færri. Þá er lagt til að frá 1. júlí 2019 verði óheimilt að afhenda burðarpoka, þ.m.t. úr plasti, án endurgjalds á sölustöðum vara og þess krafist að gjaldið verði sýnilegt á kassakvittun.

    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Þorgerður K. Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 25. mars 2019.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
form.
Ari Trausti Guðmundsson,
frsm.
Ásgerður K. Gylfadóttir.
Bryndís Haraldsdóttir. Gunnar Bragi Sveinsson. Logi Einarsson.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Smári McCarthy.