Ferill 763. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1214 — 763. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um vátryggingarsamninga, nr. 30/2004, með síðari breytingum (upplýsingagjöf).
Frá fjármála- og efnahagsráðherra.
1. gr.
Gildissvið.
Með skaðatryggingu er átt við vátryggingu gegn tjóni eða eyðileggingu á hlut, réttindum eða öðrum hagsmunum, vátryggingu gegn skaðabótaábyrgð eða kostnaði og aðra vátryggingu sem ekki er persónutrygging.
Með persónutryggingu er í lögum þessum átt við líf- og heilsutryggingar. Vátryggingu má taka vegna lífs eða heilsu vátryggingartakans eða annarra. Þegar rætt er um líftryggingu í lögunum er einnig átt við heilsutryggingu án uppsagnarréttar nema annað sé tekið fram.
Með vátryggingatengdum fjárfestingarafurðum er átt við vátryggingarafurð með líftíma eða endurkaupsvirði og líftíminn eða endurkaupsvirðið er að öllu leyti eða hluta, beint eða óbeint, óvarið fyrir flökti á markaði, sbr. 21. tölul. 2. gr.
Ákvæði laga þessara gilda hvorki um endurtryggingar né um tryggingar lífeyrissjóða, samkvæmt lögum sem um þá gilda, eða tryggingar samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá gilda ákvæði um hópvátryggingar í lögunum ekki um persónutryggingar launþega samkvæmt kjarasamningum.
2. gr.
Í lögum þessum merkir:
1. Aðildarríki: Ríki sem er aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES), aðili að stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) eða Færeyjar.
2. Aðili sem dreifir vátryggingu sem aukaafurð: Einstaklingur eða lögaðili, sem ekki er lánastofnun skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, staðbundið fyrirtæki skv. 3. tölul. 1. mgr. 1. gr. a sömu laga, eða verðbréfafyrirtæki sem uppfyllir ekki skilyrði 3. mgr. 25. gr. sömu laga, og dreifir vátryggingu sem aukaafurð gegn endurgjaldi og eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
a. starfsemin er í meginatriðum önnur en vátryggingamiðlun,
b. einstaklingurinn eða lögaðilinn dreifir eingöngu vátryggingu sem er viðbót við sölu á vöru eða þjónustu,
c. vátryggingin er ekki líf- eða ábyrgðartrygging nema hún sé hluti af vöru eða þjónustu sem er seld.
3. Bundið vátryggingarverð: Fjárhæð sem samið er um sem fullnaðarbætur fyrir vátryggðan mun, óháð raunverulegu verðmæti hans.
4. Dreifing vátrygginga:
a. starfsemi sem felst í að veita ráðgjöf, gera tillögu um eða undirbúa gerð vátryggingarsamnings, gera slíkan samning eða aðstoða við umsýslu eða efndir samningsins,
b. starfsemi sem felst í að veita upplýsingar um vátryggingarsamning eftir forsendum sem viðskiptavinur velur, á vefsíðu eða öðrum miðlum; einnig að veita upplýsingar um vátryggingar sem eru í boði, þ.m.t. verð, samanburð eða afslátt þegar viðskiptavinur getur gert vátryggingarsamning, beint eða óbeint, á vefsíðunni eða miðlinum,
c. starfsemi sem felst í að kynna, gera tillögu um eða undirbúa gerð endurtryggingarsamnings, efna slíkan samning eða aðstoða við umsýslu eða efndir samningsins; sama gildir þegar starfsemin er hjá endurtryggingafélagi án íhlutunar endurtryggingamiðlara.
5. Dreifingaraðili: Vátryggingafélag, vátryggingaumboðsmaður, vátryggingamiðlari og aðili sem dreifir vátryggingu sem aukaafurð.
6. Félagið: Sá sem með samningi skuldbindur sig til að veita vátryggingu.
7. Hópvátrygging:
a. í skaðatryggingum; vátrygging þar sem réttindi og skyldur fyrir hópinn sem vátryggingin tekur til eru ákvörðuð með samningi sem vátryggingartaki gerir vegna eða til hagsbóta fyrir þá sem teljast til hópsins,
b. í persónutryggingum; vátrygging sem tekur til manna í nánar tilteknum hópi og eftir atvikum einnig maka þeirra, barna o.fl.
8. Höfuðstólstrygging: Vátrygging þar sem félagið skal greiða tiltekna fjárhæð sem þó getur verið skipt niður á fleiri en einn gjalddaga.
9. Lífeyristrygging: Vátrygging þar sem félagið á að greiða fjárhæð fyrir tiltekið tímabil svo lengi sem tilgreindur maður lifir eða þar til hann nær ákveðnum aldri.
10. Rétthafi: Sá sem vátryggingartaki tilgreinir í vátryggingarsamningi og á rétt til þess að fá vátryggingarfjárhæðina greidda eftir að vátryggingaratburður hefur orðið.
11. Varanlegur miðill: Tæki sem gerir viðskiptavini kleift að geyma upplýsingar, sem beint er til hans, óbreyttar þannig að hann geti afritað þær og flett upp í þeim í hæfilegan tíma.
12. Varúðarreglur: Fyrirmæli í vátryggingarsamningi um:
a. að vátryggður eða aðrir skuli gera tilteknar ráðstafanir sem fallnar eru til þess að fyrirbyggja eða takmarka tjón eða sjá til þess að þær verði gerðar,
b. að vátryggður eða aðrir skuli við notkun, geymslu eða viðhald vátryggðs hlutar uppfylla tiltekin skilyrði um hæfni eða hafa tilgreind réttindi,
c. að vátryggður eða aðrir skuli við notkun, geymslu eða viðhald vátryggðs hlutar gera það á tiltekinn hátt.
13. Vátryggður:
a. í skaðatryggingum sá sem samkvæmt vátryggingarsamningi á rétt á að krefja um bætur,
b. í ábyrgðartryggingum er hinn vátryggði sá sem nýtur vátryggingaverndar á skaðabótaskyldri háttsemi sinni,
c. í persónutryggingum er hinn vátryggði sá maður hvers lífs eða heilsu vátryggingin tekur til.
14. Vátryggingamiðlari: Einstaklingur eða lögaðili, með starfsleyfi samkvæmt lögum um dreifingu vátrygginga, sem dreifir frum- og eða endurtryggingum gegn gjaldi.
15. Vátryggingaratburður: Atvik sem samkvæmt vátryggingarsamningi veldur því að til greiðslu bóta getur komið.
16. Vátryggingaráhætta:
a. þeir hagsmunir sem njóta vátryggingaverndar samkvæmt vátryggingarsamningi ef vátryggingaratburður verður og
b. þeir þættir eða aðstæður sem leitt geta til þess að vátryggingaratburður verður.
17. Vátryggingarfjárhæð: Fjárhæð sem tilgreind er í vátryggingarsamningi og hagsmunir eru að hámarki vátryggðir fyrir.
18. Vátryggingarskírteini: Staðfesting vátryggingafélags á því að vátryggingarsamningur hafi verið gerður þar sem fram koma meðal annars upplýsingar um hvaða vátryggingu er að ræða, vátryggingartaka og vátryggðan, svo og þær upplýsingar sem greinir í 12. gr. c.
19. Vátryggingartaki: Sá sem gerir einstaklingsbundinn samning eða hópvátryggingarsamning við félagið. Sá telst einnig vátryggingartaki sem öðlast eignarrétt að vátryggingu.
20. Vátryggingarverðmæti: Verðmæti vátryggðra muna eða annarra hagsmuna þegar vátryggingaratburður verður.
21. Vátryggingatengd fjárfestingarafurð: Vátryggingarafurð með líftíma eða endurkaupsvirði og líftíminn eða endurkaupsvirðið er að öllu leyti eða hluta, beint eða óbeint, óvarið fyrir flökti á markaði og er ekki:
a. skaðatrygging skv. 20. eða 21. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016,
b. líftrygging þar sem bætur eru aðeins greiddar út við dauðsfall eða örorku vegna slysa eða sjúkdóma,
c. lífeyrisréttindi (afurð) með þann megintilgang að greiða út við starfslok tekjur með tilteknum kjörum,
d. starfstengd lífeyrisréttindi samkvæmt lögum um starfstengda eftirlaunasjóði eða lögum um vátryggingastarfsemi.
e. lífeyrisréttindi sem krefjast fjárframlags starfsmanns og hvorki vinnuveitandi starfsmannsins né starfsmaðurinn sjálfur hafa val um lífeyrissjóðinn eða réttindin.
22. Vátryggingasölumaður: Starfsmaður sem starfar við dreifingu vátrygginga á vegum vátryggingafélags, vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanns og á ábyrgð þeirra.
23. V átryggingaumboðsmaður: Einstaklingur eða lögaðili sem á grundvelli samnings dreifir vátryggingum á vegum eins eða fleiri vátryggingafélaga og á ábyrgð þeirra gegn endurgjaldi.
3. gr.
a. Orðin „I. hluta“ í 1. mgr. falla brott.
b. Í stað orðanna „laga þessara“ í inngangsmálslið 2. mgr. kemur: um skaðatryggingar.
4. gr.
5. gr.
Almenn upplýsingaskylda.
1. Heiti og heimilisfang hans og staðfestingu á því að hann sé vátryggingamiðlari.
2. Hvort ráðgjöf sé veitt um vátrygginguna sem um ræðir.
3. Hvernig hann getur lagt fram kvörtun vegna starfa vátryggingamiðlarans, sbr. 2. mgr. 32. gr. laga um dreifingu vátrygginga, og hvernig fara skuli með ágreiningsmál, sbr. 47. gr. sömu laga.
4. Hvar hann er skráður og hvernig hægt er að staðfesta skráninguna.
5. Hvort vátryggingamiðlarinn sé fulltrúi viðskiptavinar eða vátryggingafélags og þá hvaða.
Vátryggingafélag og umboðsmaður þess skal veita vátryggingartaka eftirfarandi upplýsingar tímanlega áður en vátryggingarsamningur er gerður:
1. Heiti og heimilisfang vátryggingafélags.
2. Hvort ráðgjöf sé veitt um vátrygginguna sem ræðir.
3. Hvernig hann getur lagt fram kvörtun vegna starfa þeirra, sbr. 2. mgr. 32. gr. laga um dreifingu vátrygginga, og hvernig fara skuli með ágreiningsmál, sbr. 47. gr. sömu laga.
Upplýsingar skv. 1. tölul. 2. mgr. skulu ávallt koma fram á upplýsingum eða tilkynningum til vátryggingartaka, svo og heiti og heimilisfang höfuðstöðva félagsins þegar um útibú er að ræða.
Aðili sem dreifir vátryggingu sem aukaafurð skal upplýsa vátryggingartaka um atriði skv. 1., 3. og 4. tölul. 1. mgr.
Þegar um ábyrgðartryggingu ökutækja er að ræða og veitt er þjónusta án starfsstöðvar skal nafn og heimilisfang þess fulltrúa félagsins sem annast tjónsuppgjör einnig koma fram.
Hver sá sem hefur með höndum sölu vátrygginga á vegum vátryggingafélags skal við störf sín framvísa fullnægjandi skilríkjum sem útgefin eru af því félagi eða félögum sem hann starfar fyrir.
6. gr.
Upplýsingar um hagsmunaárekstra, gagnsæi og endurgjald.
1. Hvort hann fari með virkan eignarhlut í vátryggingafélagi sem vátryggir, sbr. 44. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um vátryggingastarfsemi.
2. Hvort vátryggingafélag eða móðurfélag vátryggingafélags fari með virkan eignarhlut í vátryggingamiðluninni, sbr. 44. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um vátryggingastarfsemi.
3. Hvort hann, vegna vátryggingarsamninga sem hann leggur til eða gefur ráðgjöf um:
a. veiti ráðgjöfina á grundvelli hlutlausrar og persónulegrar þarfagreiningar,
b. sé samningsbundinn til að dreifa vátryggingum fyrir eitt eða fleiri vátryggingafélög; ef um fleiri vátryggingafélög er að ræða skulu nöfn þeirra tilgreind,
c. sé hvorki samningsbundinn einu eða fleiri vátryggingafélögum né veiti ráðgjöf á grundvelli hlutlausrar og persónulegrar greiningar; í slíkum tilvikum skal tilgreina nöfn þeirra vátryggingafélaga sem hann á viðskipti við.
4. Hvaða form sé á endurgjaldi sem hann fær vegna samningsins.
5. Hvort hann starfi:
a. gegn gjaldi sem viðskiptavinurinn greiði,
b. gegn því að fá umboðslaun af einhverju tagi, þ.e. að endurgjaldið sé innifalið í iðgjaldinu,
c. gegn annars konar endurgjaldi, þar á meðal hvers konar efnahagslegum ávinningi vegna vátryggingarsamningsins,
d. gegn samsetningu endurgjalds skv. a-, b- eða c-lið.
Ef vátryggingartaki greiðir endurgjald beint til vátryggingamiðlara skal hann upplýstur fyrir fram um fjárhæðina eða, ef það er ekki mögulegt, hvernig endurgjaldið er reiknað.
Vátryggingafélag skal, áður en vátryggingarsamningur er gerður, upplýsa vátryggingartaka með góðum fyrirvara um hvers konar endurgjald vátryggingasölumaður eða vátryggingaumboðsmaður fær vegna samningsins.
Ef vátryggingartaki greiðir aðrar greiðslur en iðgjöld og reglubundnar greiðslur vegna vátryggingarsamnings eftir lok hans skal upplýsa hann um slíkar greiðslur.
Aðili sem dreifir vátryggingu sem aukaafurð skal upplýsa vátryggingartaka um form á endurgjaldi, sbr. 4. tölul. 1. mgr.
Upplýsingar samkvæmt ákvæði þessu skal einnig veita við breytingu eða endurnýjun á vátryggingarsamningi.
7. gr.
Þarfagreining.
Ef ráðgjöf er veitt áður en vátryggingarsamningur er gerður skal dreifingaraðili vátrygginga veita vátryggingartaka persónulega ráðgjöf og útskýra hvers vegna tiltekin vátrygging hentar best þörfum hans. Þarfagreiningin skal taka mið af eðli vátryggingarinnar sem mælt er með og þekkingu vátryggingartaka á vátryggingunni.
Ef vátryggingamiðlari gerir þarfagreiningu skal ráðgjöfin byggjast á greiningu á nægilegum fjölda vátrygginga sem eru í boði sem gera honum kleift að veita faglega og persónulega ráðleggingu um hvaða vátrygging henti best þörfum vátryggingartaka.
Áður en vátryggingarsamningur er gerður og án tillits til þess hvort vátryggingarsamningurinn er hluti af pakka skv. 9. gr. skal dreifingaraðili vátrygginga veita vátryggingartaka upplýsingar um vátryggingu á því formi sem gerir honum kleift að taka upplýsta ákvörðun um hana.
8. gr.
Formskilyrði við upplýsingagjöf.
Gera skal vátryggingartaka kleift, fyrir gerð vátryggingarsamnings, að kynna sér skilmála vátryggingarinnar, vátryggingarverndina og kjör sem í boði eru. Upplýsingarnar skulu vera á íslensku eða öðru tungumáli sem vátryggingartaki samþykkir og settar skýrt fram án endurgjalds.
Ef upplýsingar eru veittar á varanlegum miðli eða á vefsvæði skal sá vátryggingartaki sem þess óskar fá eintak á pappír.
Heimilt er að veita upplýsingar á varanlegum miðli öðrum en pappír ef það er viðeigandi vegna viðskiptanna og vátryggingartaki kýs að fá upplýsingarnar þannig.
Dreifingaraðila vátrygginga er heimilt er að veita vátryggingartaka upplýsingar á vefsvæði sínu ef þeim er beint sérstaklega til hans eða eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
1. Viðeigandi er að veita upplýsingarnar vegna viðskiptanna á vefsvæðinu.
2. Vátryggingartaki samþykkir að upplýsingarnar séu veittar á vefsvæðinu.
3. Vátryggingartaki hefur verið upplýstur um vefsvæðið og hvar upplýsingarnar er að finna þar.
4. Upplýsingarnar eru aðgengilegar á vefsvæðinu svo lengi sem vátryggingartakinn þarf á þeim að halda.
Upplýsingar skv. 4. og 5. mgr. teljast fullnægjandi birtar á varanlegum miðli og vefsvæði ef unnt er að sýna fram á að vátryggingartaki hafi reglulegan aðgang að netinu. Litið skal á það sem sönnun ef vátryggingartaki hefur gefið upp netfang í því skyni að sinna viðskiptum vegna vátryggingarsamnings.
Við símsölu skal dreifingaraðili vátrygginga veita vátryggingartaka upplýsingar samkvæmt þessum kafla og 140. gr. d munnlega og skal þegar eftir gerð vátryggingarsamningsins senda vátryggingartaka staðlað upplýsingaskjal skv. 10. gr. eða upplýsingar skv. 11. gr. eftir því hvað við á. Upplýsingarnar skal senda á varanlegum miðli ef vátryggingartaki hefur valið að fá upplýsingarnar þannig.
9. gr.
Upplýsingar um efni löggjafar.
Val á löggjöf um vátryggingarsamning skv. XXI. kafla ásamt staðfestingu á að vátryggingartaki hafi fengið upplýsingar skv. 1. mgr. skal koma fram í samningnum sjálfum eða í fylgigögnum með honum.
10. gr.
Vátrygging með annarri vöru eða þjónustu.
Ef vátryggingaverndin yrði önnur ef vátrygging skv. 1. mgr. er tekin ein og sér skal dreifingaraðili gefa nákvæma lýsingu á því hvernig samsetningin breytir vátryggingaverndinni.
Þegar vátrygging er boðin sem viðbót með sölu eða þjónustu skal dreifingaraðili bjóða vátryggingartaka þann valkost að kaupa þjónustuna eða vöruna sér.
Fjármálaeftirlitið getur sett reglur um mat og eftirlit þegar vátrygging er seld með vöru eða þjónustu sem hluti af pakka eða í sama samningi. Í tilvikum sem um getur í 1. og 3. mgr. skal dreifingaraðili greina þarfir vátryggingartaka vegna vátrygginga sem eru hluti af pakka eða í sama samningi.
Ef sýnt er fram á að tiltekin sala vátrygginga með vöru eða þjónustu sem hluti af pakka eða sama samningi samkvæmt þessu ákvæði sé skaðleg hagsmunum neytenda getur Fjármálaeftirlitið gert auknar kröfur um söluna eða bannað hana.
11. gr.
Staðlað upplýsingaskjal vegna skaðatrygginga.
Staðlað upplýsingaskjal skal uppfylla eftirfarandi formkröfur:
a. vera sjálfstætt skjal,
b. vera stutt, skýrt og auðvelt aflestrar,
c. ef það er framleitt í lit skal það vera jafnauðvelt aflestrar og ef það er prentað eða ljósritað í svarthvítu,
d. vera á íslensku eða öðru tungumáli sem aðilar semja um,
e. vera nákvæmt og ekki villandi,
f. hafa yfirskriftina „upplýsingaskjal um vátryggingu“ efst á fyrstu blaðsíðu,
g. innihalda yfirlýsingu um að tæmandi upplýsingar hafi verið veittar áður en vátryggingarsamningur er gerður og að skilmálar samningsins komi fram í öðrum skjölum.
Staðlað upplýsingaskjal skal innihalda eftirfarandi upplýsingar:
a. tegund vátryggingarinnar sem um ræðir,
b. samantekt um vátryggingaverndina, þ.m.t. helstu áhættur sem eru tryggðar, vátryggingarupphæð og, eftir atvikum, landfræðilegt gildissvið og hvaða áhættur eru ekki bættar,
c. greiðslumáta iðgjalda og greiðslutíma,
d. helstu undanþágur frá bótakröfu,
e. skyldur aðila við upphaf samnings,
f. skyldur aðila á samningstímanum,
g. skyldur aðila vegna bótakröfu,
h. gildistíma samningsins, þ.m.t. upphafs- og lokadagsetningu,
i. skilyrði fyrir uppsögn samningsins.
Fjármálaeftirlitið skal setja reglur um form á stöðluðu upplýsingaskjali um vátryggingarsamninga.
12. gr.
Sérstök upplýsingaskylda vegna persónutrygginga.
a. allar tegundir bóta sem í samningnum felast og um rétt til breytinga á þeim á samningstímanum,
b. gildistíma líftryggingarinnar,
c. hvernig samningnum verði sagt upp,
d. hvernig iðgjöld skuli greidd, hve lengi og hvernig þeim verði breytt á samningstímanum,
e. hvernig ágóðahluti er reiknaður og hvernig og hvenær hann verði greiddur ef við á,
f. reglur um endurkaup og frítryggingu og að hvaða marki ábyrgst er að réttur til slíks sé fyrir hendi sé hann fyrir hendi,
g. sundurliðun iðgjalda á hverja grein líftrygginga (bótategunda) og vegna aukagreina þegar þær eru innifaldar,
h. um líftryggingar tengdar fjárfestingum, skilgreiningu á hlutaeiningum sem tengdar eru bótum,
i. um líftryggingar tengdar fjárfestingum, hvers eðlis eignir að baki hlutaeiningum eru,
j. hvernig háttað er rétti vátryggingartaka til að hætta við að taka líftrygginguna,
k. um skatta sem ber að greiða vegna líftryggingarinnar.
Auk líftryggingarskilmála, bæði almennra skilmála og sérskilmála, sem látnir skulu í té, skal vátryggingartaki á samningstíma líftryggingar upplýstur um eftirfarandi:
a. sérhverjar breytingar á atriðum sem snerta heiti félagsins, félagsform, heimilisfang aðalstöðva þess og þegar við á þess útibús sem samningur er gerður við,
b. sérhverjar breytingar varðandi vátryggingarskilmála eða breytingar á lögum sem snerta a–h-lið 1. mgr.,
c. árlega um stöðu inneignar vegna ágóðahluta, ef við á.
Heimilt er að veita upplýsingar skv. 1. og 2. mgr. á öðru tungumáli en segir í 1. mgr. að fenginni beiðni vátryggingartaka eða þegar vátryggingartaki hefur val um þá löggjöf sem gildir um samninginn.
Hafi samningur um líftryggingu til a.m.k. sex mánaða komist á og sé um einstaklingslíftryggingu að ræða skal félagið tilkynna vátryggingartaka um gildistöku samningsins. Vátryggingartaki skal hafa 30 daga frest til að segja vátryggingunni upp frá þeim tíma er honum barst tilkynningin. Sannanleg uppsögn leysir aðila undan öllum skyldum sem síðar hefði leitt af samningnum.
Réttaráhrif og skilyrði uppsagnar fara að öðru leyti eftir þeim lögum sem um samninginn gilda.
Almenningi skal heimill aðgangur að upplýsingum um þann grundvöll sem útreikningur líftryggingarskuldar og ágóðahlutar er reistur á.
13. gr.
Stóráhætta.
14. gr.
a. (12. gr. a.)
Skyldubundinn starfstengdur lífeyrir.
b. (12. gr. b.)
Skyldur vátryggingafélags við tjón.
c. (12. gr. c.)
Vátryggingarskírteini.
Í vátryggingarskírteini skal koma fram:
a. heiti vátryggingar,
b. gildistími vátryggingarsamnings,
c. hverjir séu aðilar að vátryggingarsamningnum,
d. iðgjald vegna vátryggingarinnar og gjalddagi þess,
e. árétting til vátryggingartaka um að hann kynni sér ákvæði skilmála vátryggingarinnar sem varða fyrirvara sem tengjast greiðslu iðgjalds, takmörkun ábyrgðar, varúðarreglur sem um vátrygginguna gilda og fresti til að tilkynna um vátryggingaratburð,
f. ákvæði vátryggingarsamningsins sem ekki koma fram í vátryggingarskilmálunum,
g. hvaða frestur sé til þess að tilkynna um vátryggingaratburð þegar hann hefur orðið, sbr. 1. mgr. 51. gr. og 1. mgr. 124. gr.
Ef rétthafi er tilnefndur við töku persónutryggingar skal hann tilgreindur í vátryggingarskírteini.
d. (12. gr. d.)
Upplýsingar við endurnýjun vátryggingar.
e. (12. gr. e.)
Vöruþróun og dreifing.
Vöruþróunarferli skal hafa samþykktarferli, skilgreindan markhóp fyrir vátrygginguna og meta sérstaklega áhættur sem skipta máli fyrir markhópinn. Dreifingaráætlun og markaðssetning skal vera í samræmi við markhópinn og gera skal ráðstafanir til að tryggja að markaðssetning beinist að honum.
Vátryggingafélag skal tryggja að innan félagsins sé skilningur á þeim vátryggingum sem eru í boði. Vátryggingin skal endurskoðuð reglulega, með tilliti til atburða sem gætu haft áhrif á áhættu markhópsins, svo unnt sé að meta hvort vátryggingin samræmist enn þörfum hans og hvort gera skuli ráðstafanir til að markaðssetningin beinst áfram að markhópnum.
Vátryggingafélag skal hafa aðgengilegar upplýsingar fyrir dreifingaraðila um nýjar vátryggingar, vöruþróunarferli og skilgreindan markhóp vátryggingarinnar.
Dreifingaraðili skal afla sér viðeigandi upplýsinga um vátryggingar sem hann veitir ráðgjöf um, sbr. 4. mgr., til að tryggja þekkingu á eiginleikum hennar og skilgreindum markhópi.
Ráðherra skal setja reglugerð um nánari útfærslu og ferla við upplýsingagjöf samkvæmt ákvæði þessu.
15. gr.
16. gr.
17. gr.
Gildissvið II. hluta.
18. gr.
19. gr.
20. gr.
21. gr.
22. gr.
23. gr.
a. 2. mgr. fellur brott.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Gildissvið III. hluta.
24. gr.
25. gr.
a. (140. gr. a.)
Gildissvið IV. hluta.
Í þessum hluta eru dreifingaraðilar: vátryggingamiðlari, vátryggingafélag og vátryggingaumboðsmaður.
b. (140. gr. b.)
Ráðstafanir til varnar hagsmunaárekstrum.
c. (140. gr. c.)
Hagsmunaárekstrar.
Ef verklag skv. 140. gr. b tryggir ekki svo óyggjandi sé hagsmuni viðskiptavinar skulu dreifingaraðilar, áður en vátryggingarsamningur er gerður, greina viðskiptavininum frá eðli hagsmunaárekstranna.
Upplýsingar skv. 2. mgr. skulu veittar á varanlegum miðli og gera viðskiptavini kleift að taka upplýsta ákvörðun um vátrygginguna sem hagsmunaáreksturinn varðar.
d. (140. gr. d.)
Upplýsingagjöf.
a. hvort hann muni fá reglulega þarfagreiningu,
b. mögulegar fjárfestingarleiðir, leiðbeiningar um þær og áhættur sem felast í hverri þeirra,
c. kostnað og tengd gjöld vegna sölunnar, þ.m.t. kostnað við ráðgjöf, ef við á, og kostnað við afurðina sem og hvernig viðskiptavinurinn getur greitt fyrir hana. Einnig skal upplýsa um allar greiðslur og þóknanir til þriðja aðila.
Upplýsingar um kostnað og gjöld, þ.m.t. kostnað við samning, sem eru ekki tilkomin vegna undirliggjandi markaðsáhættu, skulu vera á samanteknu formi svo viðskiptavininum sé kleift að átta sig á heildarkostnaðinum og samlegðaráhrifum á ávöxtun af fjárfestingunni. Ef viðskiptavinur óskar eftir því skal leggja fram sundurliðun á kostnaði og gjöldum. Upplýsingarnar skal veita reglulega og minnst árlega á líftíma fjárfestingarinnar.
Upplýsingagjöf samkvæmt þessari grein skal vera á samanteknu formi og gera viðskiptavini kleift að skilja eðli og áhættu afurðarinnar þannig að hann geti tekið upplýsta ákvörðun um fjárfestinguna. Upplýsingarnar má veita á stöðluðu formi.
Þrátt fyrir ákvæði 4. og 5. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 5. gr. geta dreifingaraðilar greitt eða fengið greidda þóknun, umboðslaun, eða gefið eða fengið ófjárhagslegan ávinning frá öðrum en viðskiptavini eða aðila sem kemur fram fyrir hans hönd ef greiðslan eða ávinningurinn:
a. skaðar ekki gæði þjónustunnar,
b. kemur ekki í veg fyrir að þeir uppfylli skyldur um að starfa heiðarlega, af sanngirni og faglega með hagsmuni viðskiptavinar að leiðarljósi.
e. (140. gr. e.)
Þarfagreining.
Þegar veitt er fjárfestingarráðgjöf sem felur í sér að vátrygging er boðin með vöru eða þjónustu, sem hluti af pakka eða í sama samningi skv. 9. gr., skal tryggt að heildarpakkinn samræmist þörfum viðskiptavinar.
f. (140. gr. f.)
Lágmarksupplýsingaöflun.
Ef afurð samræmist ekki þörfum viðskiptavinar skal hann upplýstur um það.
Ef viðskiptavinur veitir ekki upplýsingar skv. 1. mgr. eða veitir ófullnægjandi upplýsingar skal hann upplýstur um að ekki sé hægt að meta hvort afurðin samræmist þörfum hans. Slíkar upplýsingar geta verið á stöðluðu formi.
g. (140. gr. g.)
Varðveisla gagna og form upplýsingagjafar.
Að minnsta kosti árlega skal dreifingaraðili láta viðskiptavini í té á varanlegum miðli samantekt um veitta þjónustu þar sem fram koma upplýsingar um regluleg samskipti og aðrar upplýsingar sem miðast við hversu flókin vátryggingatengda fjárfestingarafurðin er og eðli þjónustunnar. Þegar við á skal tilgreina kostnað viðskiptavinar vegna viðskiptanna og þjónustunnar.
Þegar ráðgjöf er veitt um vátryggingatengda fjárfestingarafurð skal, áður en samningur er gerður, veita viðskiptavini samanteknar upplýsingar á varanlegum miðli sem tilgreinir hvaða ráðgjöf er veitt og hvernig sú ráðgjöf uppfyllir markmið og þarfir viðskiptavinarins skv. 1.–4. mgr. 7. gr.
Ef vátryggingarsamningur er gerður í fjarsölu eða á annað hátt þar sem ekki er unnt að veita upplýsingar fyrir samningsgerð má veita samanteknu upplýsingarnar á varanlegum miðli þegar samningurinn er kominn á, ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
a. viðskiptavinur hefur samþykkt að fá upplýsingarnar án ástæðulausrar tafar eftir að samningurinn er komin á og
b. viðskiptavini hefur verið gefin kostur á að fresta gerð samningsins til að fá upplýsingarnar fyrir gerð samningsins.
Þegar þarfagreining er gerð reglulega á samningstímanum skal niðurstaðan koma fram í samantekt skv. 2. mgr.
h. (140. gr. h.)
Reglugerðarheimild.
a. skilgreint hvaða kröfur eru gerðar til dreifingaraðila til að greina, koma í veg fyrir, stýra og birta upplýsingar um hagsmunaárekstra vegna dreifingar á vátryggingatengdum fjárfestingarafurðum,
b. tilgreind viðmið um þá hagsmunaárekstra sem kunna að skaða hagsmuni viðskiptavina.
Ráðherra getur sett reglugerð þar sem sett eru viðmið vegna endurgjalds skv. 140. gr. d:
a. um mat á því hvort endurgjald sem dreifingaraðili greiðir eða tekur við feli í sér söluhvata sem hafi skaðleg áhrif á gæði þjónustunnar,
b. um mat á því hvort dreifingaraðili, sem greiðir eða tekur við endurgjaldi sem felur í sér söluhvata, starfi af heiðarleika, sanngirni og faglega í samræmi við hagsmuni viðskiptavinarins.
Ráðherra skal setja reglugerð þar sem tilgreint er nánar hvernig vátryggingamiðlarar eða vátryggingafélög skulu fylgja meginreglum 140. gr. c – 140. gr. g, þ.m.t. hvaða upplýsingar skuli fá frá viðskiptavini við þarfagreiningu. Upplýsingarnar skulu taka mið af:
a. eðli þjónustunnar sem er veitt að teknu tilliti til tegundar, markmiðs, umfangs og tíðni viðskiptanna,
b. eðli afurðanna sem boðnar eru, þ.m.t. mismunandi tegundum vátryggingatengdra fjárfestingarafurða,
c. hvort viðskiptavinur hefur almenna þekkingu eða fagþekkingu.
26. gr.
27. gr.
Úrskurðarnefnd vegna dreifingar vátrygginga.
Úrskurðarnefndin kveður upp rökstudda úrskurði og verður þeim ekki skotið til stjórnvalda en aðilar máls geta lagt ágreining sinn fyrir dómstóla.
28 gr.
29. gr.
a. (145. gr. a.)
Eftirlit.
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með því að upplýsingagjöf í þjónustu án starfsstöðvar og útibúa hér á landi sé í samræmi við I. og IV. hluta laga þessara. Eftirlit skv. 1. og 2. mgr. skal vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. laga um dreifingu vátrygginga.
Um eftirlitið fer samkvæmt ákvæðum laga þessara, laga um vátryggingastarfsemi, laga um dreifingu vátrygginga og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Ef vátryggingamiðlari, vátryggingaumboðsmaður eða aðili sem dreifir vátryggingu sem aukaafurð og hefur starfsleyfi eða er skráður hér á landi en meginstarfsstöð er í öðru aðildarríki getur Fjármálaeftirlitið gert samkomulag við eftirlitsstjórnvald þess ríkis um að það komi fram sem eftirlitsstjórnvald viðkomandi aðila vegna ákvæða laga þessara. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna viðkomandi aðila og Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni um slíkt fyrirkomulag án tafar.
b. (145. gr. b.)
Stjórnvaldssektir.
1. 4. gr. um almenna upplýsingaskyldu,
2. 5. gr. um upplýsingar um hagsmunaárekstra, gagnsæi og endurgjald,
3. 6. gr. um þarfagreiningu,
4. 7. gr. um formskilyrði við upplýsingagjöf,
5. 1.–3. mgr. 9. gr. um kröfur þegar vátrygging er boðin með annarri vöru eða þjónustu,
6. 1.–3. mgr. 10. gr. um staðlað upplýsingaskjal vegna skaðatrygginga,
7. 11. gr. um sérstaka upplýsingaskyldu vegna persónutrygginga,
8. 1.–5. mgr. 12. gr. e um ferli við nýjar vátryggingar,
9. 140. gr. b um ráðstafanir til varnar hagsmunaárekstrum,
10. 1.–3. mgr. 140. gr. c um hagsmunaárekstra,
11. 140. gr. d um upplýsingagjöf,
12. 140. gr. e um þarfagreiningu,
13. 140. gr. f um lágmarksupplýsingaöflun,
14. 140. gr. g um varðveislu gagna og form upplýsingagjafar.
Sektir sem lagðar eru á einstaklinga geta numið frá 10 þús. kr. til 90 millj. kr. Sektir sem lagðar eru á lögaðila geta numið frá 50 þús. kr. til 650 millj. kr. en geta þó verið hærri eða allt að 5% af heildarveltu samkvæmt síðasta samþykkta ársreikningi lögaðilans eða 5% af síðasta samþykkta samstæðureikningi ef lögaðili er hluti af samstæðu eða allt að tvöfaldri fjárhæð hagnaðar eða taps sem komist er hjá vegna brotsins ef mögulegt er að ákvarða það. Við ákvörðun sekta skal meðal annars tekið tillit til alvarleika brots, hvað það hefur staðið lengi, samstarfsvilja hins brotlega aðila og hvort um ítrekað brot er að ræða. Ákvarðanir um stjórnvaldssektir skulu teknar af stjórn Fjármálaeftirlitsins og eru þær aðfararhæfar. Sektir renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna. Séu stjórnvaldssektir ekki greiddar innan mánaðar frá ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu.
Stjórnvaldssektum verður beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi.
c. (145. gr. c.)
Sátt.
d. (145. gr. d.)
Réttur einstaklinga.
e. (145. gr. e.)
Fyrning stjórnvaldssektar.
Frestur skv. 1. mgr. rofnar þegar Fjármálaeftirlitið tilkynnir aðila um upphaf rannsóknar á meintu broti. Rof frests hefur réttaráhrif gagnvart öllum sem staðið hafa að broti.
f. (145. gr. f.)
Tilkynning um brot.
Ef dreifingaraðili brýtur gegn skyldu sinni skv. 1. mgr. skal hann greiða starfsmanni skaðabætur samkvæmt almennum reglum. Þetta tekur bæði til beins fjártjóns og miska.
Skyldur og réttindi samkvæmt þessari grein eru ófrávíkjanleg og óheimilt er að takmarka þau í ráðningarsamningi á milli starfsmanns og fyrirtækis.
g. (145. gr. g.)
Innleiðing.
30. gr.
31. gr.
32. gr.
Gildistaka.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ráðherra skipar nefnd með fulltrúum frá dreifingaraðilum og Neytendasamtökunum sem er ætlað að koma með tillögu um skipulag, fjármögnun og málsmeðferðarreglur úrskurðarnefndarinnar. Nefndin skal ljúka störfum og skila tillögum til ráðherra fyrir árslok 2019.
Greinargerð.
Með frumvarpi þessu er lagðar til breytingar á lögum um vátryggingarsamninga. Frumvarpið byggist á ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/97 um dreifingu vátrygginga. Tilskipunin var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) 26. október 2018 með ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 214/2018. Tilskipunin kemur í stað tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2002/92/EB, um miðlun vátrygginga, sem fellur þar með úr gildi.
Frumvarpið er samið af nefnd sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði 4. október 2017. Í nefndinni sátu fulltrúar frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Fjármálaeftirlitinu og Samtökum fjármálafyrirtækja.
Tilskipunin gildir um alla sem dreifa vátryggingum, þ.m.t. sölumenn vátryggingafélaga og aðila sem dreifa vátryggingum sem er nýmæli. Með dreifingu vátrygginga er í fyrsta lagi átt við starfsemi sem felst í að gefa ráðgjöf um, gera tillögu um eða undirbúa gerð vátryggingarsamnings, gera slíkan samning eða aðstoða við umsýslu eða efndir samningsins. Í öðru lagi er átt við starfsemi sem felst í að veita upplýsingar um vátryggingarsamning eftir forsendum sem viðskiptavinur velur, á vefsíðu eða á öðrum miðlum. Einnig að gefa upplýsingar um vátryggingar sem eru í boði, þ.m.t. verð, samanburð eða afslátt á vátryggingu þegar viðskiptavinur getur gert vátryggingarsamning, beint eða óbeint, á vefsíðunni eða miðlinum. Í þriðja lagi er átt við starfsemi sem felst í að gefa ráðgjöf, gera tillögu um eða undirbúa gerð endurtryggingarsamnings, efna slíkan samning, eða aðstoða við umsýslu eða efndir samningsins. Sama gildir þegar starfsemin er hjá endurtryggingafélagi án íhlutunar endurtryggingamiðlara. Þeir sem dreifa vátryggingum eru dreifingaraðilar. Dreifingaraðilar eru vátryggingamiðlarar, vátryggingafélög, vátryggingaumboðsmenn og aðilar sem selja vátryggingu sem aukaafurð.
Í þessu frumvarpi er lagt til að þau ákvæði tilskipunarinnar sem varða upplýsingaskyldu vegna dreifingar á vátryggingum verði lögfest. Í lögum um vátryggingarsamninga eru ákvæði um upplýsingaskyldu vegna vátryggingarsamninga en ákvæði tilskipunarinnar eru mun fleiri og ítarlegri. Að auki er sérkafli í tilskipuninni um vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir og er lagt til að kafli um þær verði í frumvarpinu. Í frumvarpinu er lagt til að sérkafli verði um upplýsingaskyldu. Ákvæðin koma í stað ákvæða um upplýsingagjöf í lögum um vátryggingarsamninga og bætt er við nýjum ákvæðum sem byggjast á ákvæðum tilskipunarinnar. Með frumvarpinu verður aukin upplýsingagjöf til neytenda tryggð sem auk annarra ákvæða mun efla neytendavernd á markaðnum.
Þau ákvæði í tilskipuninni sem varða starfsemi dreifingaraðila verða lögð fram í frumvarpi til laga um dreifingu vátrygginga sem er lagt fram samhliða þessu frumvarpi
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Tilskipun (ESB) 2016/97 um dreifingu vátrygginga var tekin upp í EES-samninginn 26. október 2018 með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2018. Fyrir Alþingi hefur verið lögð þingsályktunartillaga til að staðfesta ákvörðunina. Ákvörðunin var tekin upp með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands sem þýðir að Ísland hefur sex mánaða frest frá töku ákvörðunarinnar til að aflétta fyrirvaranum, sbr. 103. gr. EES-samningsins.
Mikilvægt er að lagaumgjörð á vátryggingamarkaði á Íslandi sé vönduð og í samræmi við löggjöf annars staðar innan Evrópska efnahagssvæðisins. Ef tilskipunin yrði ekki innleidd í lög hér á landi yrðu reglur um dreifingu vátrygginga ekki í samræmi við reglur innan Evrópska efnahagssvæðisins og það myndi hafa áhrif á stöðu íslenskra fyrirtækja og hagsmuni íslenskra neytenda. Auk þess yrði Ísland brotlegt við skuldbindingar sínar samkvæmt EES-samningnum. Frumvarpið felur í sér inngrip í starfsemi vátryggingamiðlara og vátryggingafélaga auk þess sem það hefur ákvæði um vátryggingaumboðsmenn og aðila sem dreifa vátryggingum sem aukaafurð. Slík inngrip verða að íslenskri stjórnskipan að hafa stoð í lögum. Önnur úrræði en lagasetning koma því ekki til greina.
Lög um miðlun vátrygginga, nr. 32/2005, og lög um vátryggingarsamninga, nr. 30/2004, innihalda mörg ákvæði tilskipunarinnar. Sum ákvæðin í þeim lögum eru í samræmi við tilskipunina en öðrum þarf að breyta til að þau samræmist henni. Auk þess þarf að bæta við nýjum ákvæðum í íslenska löggjöf.
Tilskipunin kveður á um töluvert ítarlegri upplýsingagjöf dreifingaraðila en nú er í íslenskum rétti. Ákvæði um upplýsingagjöf við töku vátrygginga og gerð vátryggingarsamninga eru nú í lögum um miðlun vátrygginga og lögum um vátryggingarsamninga. Reglur tilskipunarinnar um upplýsingagjöf eru viðameiri og nýmæli eru mörg. Með frumvarpi þessu er lagt til að öll ákvæði sem varða upplýsingagjöf vegna dreifingu vátrygginga og vátryggingarsamninga verði í lögum um vátryggingarsamninga.
Meginmarkmið tilskipunar (ESB) 2016/97, um dreifingu vátrygginga, er að samræma ákvæði um dreifingu vátrygginga í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Þar sem tilskipunin hefur verið tekin upp í EES-samninginn gildir hún fyrir öll aðildarríki á EES-svæðinu.
Neytendavernd.
Áföll á fjármálamarkaði hafa undirstrikað mikilvægi þess að tryggja neytendavernd. Því þótti rétt að setja reglur í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins sem myndu auka traust almennings og samræma reglur um dreifingu vátrygginga svo unnt væri að tryggja betur vernd neytenda. Einnig þótti mikilvægt að hafa reglur um vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir til að tryggja starfs- og samkeppniskilyrði dreifingaraðila þeirra afurða.
Markmið tilskipunarinnar er að neytendur njóti sömu verndar óháð því hvar þeir kaupa vátryggingar og einnig að jafna starfsskilyrði þeirra sem dreifa vátryggingum. Þess vegna þótti nauðsynlegt að hafa í tilskipuninni ákvæði um alla aðila sem dreifa vátryggingum. Tilskipunin nær því auk vátryggingamiðlara til vátryggingafélaga og aðila sem selja vátryggingu sem aukaafurð. Ákvæði um vátryggingaumboðsmenn eru ekki í tilskipuninni en hefð er fyrir þeirri starfsemi hér á landi sem og í nokkrum öðrum aðildarríkjum.
Tilskipunin gildir um alla aðila sem dreifa vátryggingum til neytenda. Í því felst einnig sú starfsemi að veita upplýsingar um vátryggingarsamninga að ósk viðskiptavinar hvort sem slíkar upplýsingar eru veittar á vefsíðu eða öðrum miðli. Tilskipunin gildir hins vegar ekki um starfsemi þar sem veitt er tilfallandi ráðgjöf um vátryggingar með annarri þjónustu. Sem dæmi um slíka þjónustu er þjónusta lögmanna og endurskoðenda. Tilskipunin gildir heldur ekki um almenna upplýsingagjöf um vátryggingar að því gefnu að tilgangur starfseminnar sé hvorki að aðstoða við gerð vátryggingarsamnings né að efna hann. Þá gildir tilskipunin ekki um kröfur sem vátryggingafélag gerir, tjónamat eða sérfræðimat á kröfum.
Undanþegnir gildissviði tilskipunarinnar eru aðilar sem dreifa vátryggingu sem aukaafurð ef iðgjald vátryggingarinnar nær ekki tiltekinni fjárhæð og vátryggða áhættan er takmörkuð. Slíkir aðilar þurfa þó að uppfylla tilteknar grunnkröfur eins og að segja deili á sér, tilgreina hvernig unnt er að leggja fram kvörtun og taka tillit til þarfa viðskiptavinar.
Tilskipunin á að tryggja að neytendavernd sé sambærileg innan aðildarríkja EES-samningsins og hún á að stuðla að jafnari starfsskilyrðum innan þeirra. Þá er ætlunin að stuðla að jafnara starfsumhverfi vátryggingamiðlara hvort sem þeir eru tengdir vátryggingafélagi eða ekki. Það er til hagsbóta fyrir neytendur að geta keypt vátryggingar og þjónustu með mismunandi hætti og að geta valið milligöngu vátryggingamiðlara sem hafa mismunandi fyrirkomulag við að dreifa vátryggingum að því tilskildu að þeir starfi eftir sambærilegum reglum um neytendavernd.
Til að tryggja að vátryggingarafurðir uppfylli þarfir markhóps þeirra gerir tilskipunin ráð fyrir að vöruþróun vátryggingafélaga og eftir atvikum vátryggingamiðlara feli í sér sérstakt samþykktarferli fyrir hverja vátryggingu. Ef dreifingaraðili veitir ráðgjöf um, eða leggur til, vátryggingarafurð er mikilvægt að skilningur sé á eiginleikum vátryggingarinnar og hvaða markhópur er skilgreindur fyrir hana hvort sem dreifingaraðili hefur komið að vöruþróuninni eða ekki. Þess er því krafist að upplýsingar um vátryggingarafurðir séu fyrirliggjandi bæði til hags fyrir dreifingaraðila og vátryggingartaka Ákvæði í tilskipuninni eiga þó ekki að takmarka fjölbreytileika og sveigjanleika þeirra aðferða sem aðilar nota til að þróa nýjar vátryggingarafurðir.
Vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir eru boðnar viðskiptavinum sem mögulegir valkostir eða í staðinn fyrir aðrar fjárfestingarafurðir. Svo unnt sé að tryggja neytendavernd og forðast hættu á eftirlitshögnun er mikilvægt að um þær gildi reglur til viðbótar við reglur sem gilda um allar vátryggingar. Þetta á til dæmis við um viðskiptahætti, upplýsingagjöf og þarfagreiningu og eru ákvæði þar að lútandi í tilskipuninni.
Í tilskipuninni kemur fram að þörf er á því að hafa fullnægjandi og skilvirka kæru- og úrlausnarmeðferð utan réttar til að skera úr um ágreining milli dreifingaraðila og viðskiptavina þeirra. Ágreiningsmálin geta varðað réttindi og skyldur viðskiptavina og er ætlað að vera skjótari og ódýrari lausn deilumála milli dreifingaraðila og viðskiptavina en að fara með mál fyrir dómstóla.
Upplýsingagjöf.
Í tilskipuninni eru gerðar auknar kröfur um upplýsingagjöf til neytenda svo þeir séu upplýstir um eiginleika vátryggingarinnar sem þeir hyggjast kaupa og hvort hún sé í samræmi við þarfir þeirra.
Til að komast hjá því að neytendur kaupi vátryggingu sem þeir þurfa ekki er gert ráð fyrir því í tilskipuninni að dreifingaraðili fái upplýsingar hjá viðskiptavini um hvaða vátryggingar hann þurfi og hvers hann væntir. Allar vátryggingar sem viðskiptavini eru boðnar eiga að vera í samræmi við þarfir hans og kynntar honum á skiljanlegu formi svo hann geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup á vátryggingu.
Það er nauðsynlegt fyrir viðskiptavini að vita hvort þeir eigi viðskipti við vátryggingamiðlara sem veitir ráðgjöf á grundvelli hlutlausrar og persónulegrar greiningar. Í tilskipuninni er kveðið á um að leggja þurfi mat á það hvort fjöldi vátryggingarsamninga og vátryggjenda sem koma til álita sé nægur svo vátryggingamiðlari geti veitt hlutlausa og persónulega greiningu sem tekur tillit til þarfa viðskiptavinarins, fjölda vátryggjenda á markaðnum og markaðshlutdeild þeirra, fjölda vátryggingarafurða hjá hverjum vátryggjanda og eiginleika vátrygginganna.
Aukin umsvif hafa orðið í þeirri starfsemi sem vátryggingamiðlarar stunda og hefur það aukið líkurnar á hagsmunaárekstrum. Því þótti nauðsynlegt að hafa í tilskipuninni reglur sem eiga að tryggja að hagsmunaárekstrar hafi ekki neikvæð áhrif á hagsmuni viðskiptavinar. Í tilskipuninni kveðið á um að viðskiptavinur eigi að fá upplýsingar um mögulega hagsmunaárekstra dreifingaraðila áður en vátryggingarsamningur er gerður og hvernig þeir fá greitt fyrir störf sín. Tilgangur þess er að sýna fram á hvert sambandið er milli vátryggingafélags og vátryggingamiðlara og hvernig aðilinn fær greitt. Ef ráðgjöf er veitt áður en vátryggingarsamningur er gerður er tilgreint í tilskipuninni að hún skuli vera persónuleg og vera til viðbótar við þá skyldu að greina kröfur og þarfir viðskiptavinarins. Einnig þarf dreifingaraðili að útskýra af hverju tiltekin vátryggingarafurð uppfylli best kröfur og þarfir viðskiptavinar.
Til að bæta upplýsingagjöf við dreifingu vátrygginga er þess einnig krafist í tilskipuninni að vátryggingafélög veiti viðskiptavinum tilteknar upplýsingar, meðal annars um form á því endurgjaldi sem vátryggingasölumenn þeirra fá fyrir söluna. Slík ákvæði eru í gildandi rétti vegna vátryggingamiðlara. Þetta á að stuðla að heilbrigðri samkeppni vátryggingamiðlara og vátryggingafélaga.
Tilskipunin kveður á um vátryggingartaka séu veittar tilteknar upplýsingar um vátryggingu áður en vátryggingarsamningur er gerður, hvort sem viðskiptavinur fær þarfagreiningu eða ekki, til að gera honum kleift að taka upplýsta ákvörðun um þá vátryggingu sem boðin er. Til að tryggja að viðskiptavinur fái þessar upplýsingar við kaup á skaðatryggingu skal hann fá í hendur upplýsingaskjal þar sem fram koma staðlaðar upplýsingar. Því vátryggingafélagi sem býr til vátrygginguna er uppálagt að útbúa slíkt skjal.
Í tilskipuninni er kafli um vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir og er því nauðsynlegt að setja í lög hér á landi ákvæði um slíkar afurðir. Í frumvarpinu er lagt til að sérstakur hluti fjalli um vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir.
Til að viðskiptavini sé gert kleift að skilja samlegðaráhrif kostnaðar við kaup á vátryggingatengdum fjárfestingaafurðum er skylt samkvæmt tilskipuninni að veita upplýsingar um allan kostnað við kaupin.
Til að tryggja að endurgjald, sem getur verið þóknun, umboðslaun eða annar ófjárhagslegur ávinningur við dreifingu vátryggingatengdra fjárfestingarafurða, hafi ekki áhrif á gæði þjónustu við viðskiptavin er gert ráð fyrir því að dreifingaraðilar gefi viðskiptavinum reglulega upplýsingar um viðskiptin. Þá er gert ráð fyrir því að dreifingaraðilar þrói og endurskoði reglulega stefnur og ferli vegna hagsmunaárekstra til að tryggja gæði þjónustunnar sem viðskiptavinur fær og einnig til að tryggja að hann sé nægilega upplýstur um þóknanir, umboðslaun eða ávinning vegna sölunnar.
Tilskipunin kveður á um að viðskiptavinur eigi að geta valið um á hvaða miðli hann fær upplýsingar veittar. Það gerir það að verkum að unnt er að nota rafræn samskipti þegar það á við. Viðskiptavinur skal þó alltaf eiga þess kost á að fá upplýsingarnar á pappír. Allar upplýsingar sem eru veittar áður en vátryggingarsamningur er gerður skulu vera án endurgjalds. Í tilskipuninni koma fram lágmarksskyldur sem dreifingaraðili þarf að uppfylla þegar hann veitir viðskiptavini upplýsingar.
Samstarf eftirlitsstjórnvalda í aðildarríkjum.
Samstarf og upplýsingaskipti milli eftirlitsstjórnvalda eru mikilvæg til að vernda viðskiptavini og stuðla að traustri dreifingu vátrygginga í aðildarríkjum. Því þarf að gera ráð fyrir upplýsingaskiptum, bæði í skráningarferlinu og eftir það, til að tryggja að kröfur um faglega hæfni og þekkingu dreifingaraðila standist kröfur.
Til að tryggja gæði þjónustu og öfluga neytendavernd við dreifingu vátrygginga gerir tilskipunin ráð fyrir að eftirlitsstjórnvöld aðildarríkjanna hafi með sér samstarf til að framfylgja ákvæðum tilskipunarinnar. Eftirlitsstjórnvald hvers aðildarríkis ber ábyrgð á að starfsemi þar sé í samræmi við reglur tilskipunarinnar. Því eru í tilskipuninni ákvæði um að eftirlitsstjórnvald gistiríkis upplýsi eftirlitsstjórnvald heimaríkis ef ekki er farið að lögum vegna frjáls flæðis þjónustu eða vegna starfsemi útibúa og að eftirlitsstjórnvald heimaríkis geti þá gripið til viðeigandi ráðstafana.
3. Meginefni frumvarpsins.
Frumvarpið felur í sér samræmdar kröfur um upplýsingagjöf vegna dreifingar vátrygginga og er markmiðið að tryggja neytendavernd.
Í frumvarpinu er lagt til að tveimur nýjum hlutum verði bætt við lög um vátryggingarsamninga. Annars vegar hluta með almennum ákvæðum og hins vegar hluta með ákvæðum um vátryggingatengdar fjárfestingaafurðir. Nú gilda lögin um vátryggingarsamninga vegna skaða- og persónutrygginga en nýmæli verður að lögin gildi einnig um vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir.
Í I. hluta frumvarpsins með almennum ákvæðum eru tveir kaflar. Í I. kafla er lagt til að ákvæði um gildissvið laganna og skilgreiningar verði á einum stað í lögunum.
Í II. kafla eru almenn ákvæði um upplýsingaskyldu vegna dreifingar á vátryggingum. Þar sem í tilskipuninni eru margvísleg ný ákvæði vegna upplýsingaskyldu við dreifingu á vátryggingum er lagt til að almenn ákvæði um upplýsingaskyldu allra vátrygginga sem gildissvið laganna nær til verði í almenna hlutanum í stað þess að hafa þau með hverri tegund vátrygginga fyrir sig eins og nú er. Það einfaldar lögin og kemur í veg fyrir tvítekningu ákvæða. Í kaflanum eru ákvæði um almenna upplýsingaskyldu og nýmæli er ákvæði um hagsmunaárekstra og gagnsæi. Meðal annars er kveðið á um að vátryggingamiðlari skuli veita upplýsingar um virkan eignarhlut og ákvæði um upplýsingagjöf vegna endurgjalds fyrir dreifingu vátrygginga eru ítarlegri en í gildandi lögum. Meðal annars er gert ráð fyrir að upplýst sé ítarlega um eðli endurgjalds hjá vátryggingamiðlurum og vátryggingafélögum. Í kaflanum er einnig lagt til ákvæði um þarfagreiningu en það leggur þá skyldu á dreifingaraðila að greina þarfir viðskiptavinar til að tryggja að hann geti veitt hlutlausar upplýsingar. Ef ráðgjöf er veitt skal hún byggjast á nægilega miklum fjölda vátrygginga sem eru á markaði þannig að unnt sé að veita faglega ráðgjöf. Ákvæði um formskilyrði upplýsingar er mun ítarlegra en gildandi ákvæði og skal veita upplýsingar á pappír eða öðrum varanlegum miðli. Þannig er lagt til að veita megi upplýsingar á vefsvæði dreifingaraðila að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
Það er nýmæli í kaflanum um upplýsingaskyldu að hafa ákvæði um vátryggingu sem er boðin með vöru eða þjónustu sem hluti af pakka eða í sama samningi. Í slíkum tilfellum skal dreifingaraðili veita fullnægjandi upplýsingar um hvora afurð fyrir sig auk aðgreinds kostnaðar á sannanlegan hátt ef unnt er að kaupa þær í sitt hvoru lagi og tilgreina hvort það myndi breyta vátryggingaverndinni. Þá er það nýmæli að upplýsingagjöf vegna skaðatrygginga skal vera á sérstöku stöðluðu upplýsingaskjali og er ítarlega tilgreint hvað skuli vera í slíku skjali. Að lokum er lagt til að vátryggingafélögum og vátryggingamiðlurum sé skylt að hafa til staðar vöruþróunarferli þegar nýjar vátryggingar eru þróaðar eða verulegar breytingar gerðar á þeim. Í vöruþróunarferli skal skilgreina markhóp vátryggingarinnar og tryggja að dreifingaráætlun og markaðssetning sé til þess fallin að ná til hans. Upplýsingar um vátrygginguna, vöruþróunarferlið og markhópinn skulu vera aðgengilegar fyrir dreifingaraðila.
Ákvæði um skaðatryggingu verða í II. hluta laganna og ákvæði um persónutryggingar í III. hluta. Lagt er til að ákvæði um vátryggingatengdar fjárfestingaafurðir verði í IV. hluta. Í hlutanum eru ákvæði um ráðstafanir til varnar hagsmunaárekstrum þar sem dreifingaraðilum er gert skylt að hafa sérstakt fyrirkomulag til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra sem geta haft neikvæð áhrif á hagsmuni viðskiptavinar. Einnig er lagt til að dreifingaraðili hafi sérstakt verklag til að greina mögulega hagsmunaárekstra og að þeir upplýsi viðskiptavin ef verklagið tryggir ekki svo óyggjandi sé hagsmuni viðskiptavinar. Þá er lagt fyrir dreifingaraðila að veita tilteknar upplýsingar, auk almennrar upplýsingagjafar skv. I. hluta. Þessar tilteknu upplýsingar eru til dæmis hvort viðskiptavinur muni fá reglulega þarfagreiningu, upplýsingar um fjárfestingarleiðir og kostnað og gjöld vegna sölunnar. Upplýsingar um kostnað og gjöld skulu vera á samanteknu formi svo viðskiptavinurinn geti áttað sig á heildarkostnaðinum og samlegðaráhrifum á ávöxtun af fjárfestingunni. Í kaflanum eru gerðar viðbótarkröfur til þarfagreiningar vegna eðlis vátryggingatengdu fjárfestingaafurðanna. Þannig þarf dreifingaraðili að afla upplýsinga um reynslu og þekkingu viðskiptavinar á fjárfestingum og fjárhagsstöðu hans til að geta metið hvernig viðskiptavinur er í stakk búin til að taka á sig tap vegna fjárfestingarinnar. Þetta er gert til að dreifingaraðila geti mælt með hentugri afurð. Ef þarfagreining er ekki gerð þarf dreifingaraðili samt sem áður að fá upplýsingar um reynslu og þekkingu viðskiptavinar vegna afurðarinnar til að geta metið hvort afurðin henti viðskiptavininum. Ef dreifingaraðili kemst að þeirri niðurstöðu að afurðin henti ekki viðskiptavininum skal hann upplýsa um það. Í kaflanum er einnig lagt til að dreifingaraðili varðveiti öll skjöl sem liggja til grundvallar viðskiptunum og að hann láti viðskiptavin fá upplýsingar um þjónustuna á varanlegum miðli, þar sem fram koma regluleg samskipti og aðrar upplýsingar sem skipta máli. Þegar þarfagreining er gerð skal viðskiptavinur einnig fá á varanlegum miðli upplýsingar um hana og hvernig hún uppfyllir markmið og þarfir hans.
III. hluti laganna verður V. hluti og þar er lagt til það nýmæli að unnt sé að skjóta ágreiningi vegna réttinda og skyldna viðskiptavina til úrskurðarnefndar. Slíka úrskurðarnefnd þarf að setja á laggirnar og er lagt til að ráðherra skipi nefnd með fulltrúum frá dreifingaraðilum og Neytendasamtökunum sem er ætlað að koma með tillögu um skipulag, fjármögnun og málsmeðferðarreglur nefndarinnar.
IV. hluti verður VI. hluti og er þar lagt til að bætt verði við ákvæðum um eftirlit og viðurlög. Í gildandi lögum er kveðið á um að Fjármálaeftirlitið skuli fylgjast með því að upplýsingaskyldu samkvæmt þeim skuli fullnægt. Í þessu frumvarpi er lagt til að Fjármálaeftirlitið hafi eftirlit með starfsemi dreifingaraðila og upplýsingaskyldu. Það eftirlit nær einnig til starfsemi útibúa og frjáls flæðis þjónustu. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið geti lagt stjórnvaldssektir á dreifingaraðila þegar tilteknum ákvæðum er ekki fullnægt og eru þau ákvæði í samræmi við ákvæði tilskipunar (ESB) 2016/97 um dreifingu vátrygginga.
Í frumvarpinu er lagt til að samþykki, uppsagnir, tilkynningar, beiðnir og fyrirspurnir verði sannanleg í stað þess að vera skrifleg eins og kveðið er á um í lögunum. Með breytingunni er tekinn af allur vafi um að unnt er velja að hafa samskiptamáta rafrænan ef vilji aðila stendur til þess.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Með lögfestingu frumvarpsins verða tekin upp í lög hér á landi ákvæði tilskipunar (ESB) 2016/97 um dreifingu vátrygginga sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2018, frá 26. október 2018. Verði frumvarpið að lögum mun Ísland uppfylla þjóðréttarlegar skuldbindingar sínar vegna tilskipunarinnar.
Efni frumvarpsins gefur ekki tilefni til að ætla að það stangist á við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.
5. Samráð.
Frumvarpið var samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu með aðstoð nefndar sem ráðherra skipaði vegna innleiðingar á tilskipun (ESB) 2016/97 um dreifingu vátrygginga í íslenskan rétt. Í nefndinni sátu fulltrúar frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Fjármálaeftirlitinu og Samtökum fjármálafyrirtækja. Áform um lagasetningu voru send í innra samráð í Stjórnarráðinu í desember 2018 og bárust ekki athugasemdir. Áformin voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 8. janúar 2019 og barst þar ábending frá ráðgjafarnefnd um eftirlit á vegum hins opinbera, samkvæmt lögum nr. 27/1999, sem tekið var tillit til eftir því sem unnt var. Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 26. febrúar 2019. Frestur til umsagna var til 10. mars 2019.
Ein umsögn barst um frumvarpið frá Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF), dags. 8. mars 2019. Í umsögninni kemur fram að mikilvægt sé að tryggja að löggjöf standi ekki í vegi fyrir þróun í átt að auknum rafrænum viðskiptum á vátryggingamarkaði. Vísað er til 4. mgr. 8. gr. frumvarpsins þar sem fram kemur að heimilt verði að veita upplýsingar á varanlegum miðli öðrum en pappír ef það er viðeigandi vegna viðskiptanna og vátryggingartaki kýs að fá upplýsingarnar með þeim hætti. SFF tiltekur að unnt sé að skilja málsgreinina á þann hátt að upplýsingar geti aðeins verið afhentar á varanlegum miðli öðrum en pappír ef fyrir liggur samþykki viðskiptavinar og taka þurfi fram í greinargerð að heimilt sé að veita upplýsingar á rafrænu formi án þess að sérstakt samþykki þurfi að liggja fyrir. Af þessu tilefni er vakin athygli á því að í ákvæðinu kemur fram að heimilt sé að veita upplýsingar á varanlegum miðli öðrum en pappír ef vátryggingartaki kjósi að fá upplýsingar með þeim hætti. Með öðrum orðum verður vátryggingartaki að samþykkja það að fá upplýsingar afhentar á varanlegum miðli. Ákvæðið er í samræmi við b-lið 4. mgr. 23. gr. tilskipunar 2016/97/ESB þar sem það skilyrði er sett að til að unnt sé að afhenda vátryggingartaka upplýsingar á varanlegum miðli skuli hann hafa valið sjálfur að fá upplýsingarnar á því formi. Orðalagi ákvæðisins hefur verið breytt til að gera það skýrara ásamt athugasemdum með ákvæðinu. Þá er í umsögninni vísað til 13. gr. vegna ákvæðis um vátryggingarskírteini þar sem SFF telur með vísan til 8. gr. að afhending vátryggingarskírteinis eigi að geta verið á varanlegum miðli án sérstaks samþykkis vátryggingartaka. Miðað við efni tilskipunarinnar um að samþykki vátryggingartaka þurfi til að koma svo unnt sé að veita upplýsingar á varanlegum miðli þótti við samningu frumvarpsins ekki tilefni til að ganga lengra vegna afhendingar á vátryggingarskírteini og gildir því sú meginregla áfram að vátryggingartaki skuli gefa samþykki fyrir slíkum samskiptamáta. Athugasemdum með ákvæði 13. gr. hefur verið breytt til að auka skýrleika að þessu leyti.
Að lokum kemur fram í umsögn SFF að í frumvarpinu felist umfangsmiklar breytingar sem kalli á undirbúning hjá vátryggingafélögunum, m.a. breytingar á skilmálum. Því sé nauðsynlegt að nægur tími verði gefinn fyrir aðila sem falla undir frumvarpið til að laga sig að breyttu lagaumhverfi. SFF leggja til að gildistöku frumvarpsins verði frestað í að minnsta kosti sex mánuði. Tilskipun 2016/97/ESB um dreifingu vátrygginga hefur verið tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands sem þýðir að Ísland hefur sex mánaða frest frá töku ákvörðunarinnar til að aflétta fyrirvaranum. Gert er ráð fyrir að fyrirvaranum verði aflétt í september 2019. Í frumvarpinu verður lagt til að frumvarpið taki gildi 1. ágúst 2019 til að koma til móts við aðila á markaði.
6. Mat á áhrifum.
Með frumvarpinu verður tilskipun (ESB) 2016/97 um dreifingu vátrygginga innleidd í íslenskan rétt. Meginmarkmið tilskipunarinnar er að samþætta markaði og auka neytendavernd. Til að ná þessu markmiði eru gerðar auknar og samræmdar kröfur til þeirra sem dreifa vátryggingum. Kröfurnar ganga lengra og ná til fleiri aðila en núgildandi kröfur og því er líklegt að einhver breyting verði á rekstrarumhverfi þeirra sem dreifa vátryggingum. Ávinningurinn af fyrirhugaðri lagasetningu felst í því að starfsumhverfi dreifingaraðila innan Evrópska efnahagssvæðisins verður samræmt og verður það til þess fallið að jafna starfsskilyrði þeirra og auka samkeppni á markaðnum.
Áhrif á dreifingaraðila.
Ekki er gert ráð fyrir mælanlegum áhrifum á dreifingaraðila vegna frumvarpsins. Hvorki er talið að frumvarpið takmarki fjölda dreifingaraðila á markaði né hafi áhrif á möguleika þeirra eða frumkvæði til að mæta samkeppni. Eitt af markmiðum frumvarpsins er að samræma kröfur sem gerðar eru til dreifingaraðila vátrygginga, óháð rekstrarformi eða -fyrirkomulagi, og ætti það að öllu jöfnu að skapa samræmdan samkeppnisgrundvöll. Samræming þeirra krafna sem gerðar eru til dreifingaraðila leiðir óhjákvæmilega til þess að einhverjir aðilar munu þurfa að standast kröfur sem voru ekki gerðar til þeirra áður, enda er ekki markmiðið að slaka á kröfum sem gerðar eru til markaðarins í heild. Kröfur vegna aukinnar upplýsingagjafar til viðskiptavinar munu hafa einhvern aukinn kostnað í för með sér en kostnaður við að mæta kröfum sem lagðar eru á í frumvarpi þessu er ekki talinn verulegur. Kostnaður getur verið mismunandi milli dreifingaraðila en þar skiptir ekki eingöngu máli stærð aðila heldur einnig þeir vinnuferlar og innri kröfur sem fyrirtækin hafa gert í núverandi lagaumhverfi.
Ekki liggur fyrir hversu margir verða fyrir áhrifum enda eru margir nýir aðilar felldir undir gildissvið frumvarpsins í samanburði við núgildandi lög. Þessir nýju aðilar eru nú almennt utan þeirra gagna sem safnað er um markaðinn og því vandkvæðum bundið að áætla fjölda fyrirtækja sem verða fyrir áhrifum.
Gögn um starfsemi vegna dreifingar á vátryggingum munu verða tiltæk hjá dreifingaraðilum og ætti því að vera unnt að meta árangur vegna nýrra reglna þegar fram líða stundir.
Áhrif á ríkissjóð.
Fjármálaeftirlitið mun hafa eftirlit með framkvæmd laganna og felur frumvarpið í sér auknar skyldur Fjármálaeftirlitsins. Í langtímaáætlun Fjármálaeftirlitsins um rekstur þess fram til ársins 2023 er lagt mat á þær skyldur. Samkvæmt því er ekki gert ráð fyrir því að frumvarpið hafi fyrirséðar breytingar á tekjur eða útgjöld stofnunarinnar. Ekki er gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi önnur fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð.
Efnahagsáhrif.
Meginmarkmið frumvarpsins er að samþætta starfsskilyrði dreifingaraðila og kröfur til þeirra um upplýsingagjöf og þannig auka neytendavernd. Mismunandi lagaumhverfi vegna dreifingar vátrygginga innan Evrópska efnahagssambandsins hefur valdið hindrunum á frjálsu flæði starfseminnar. Frumvarpið er liður í því að efla slíkt flæði til að stuðla að opnari innri markaði fyrir dreifingu líf- og skaðatryggingaafurða.
Það er til hagsbóta fyrir neytendur ef vátryggingarafurðum er dreift með mismunandi leiðum og fyrir milligöngu vátryggingamiðlara sem hafa mismunandi fyrirkomulag á samvinnu við vátryggingafélög, að því tilskildu að allir dreifingaraðilar lúti sambærilegum reglum. Með frumvarpinu munu neytendur því njóta sömu verndar þrátt fyrir mismunandi leiðir við dreifingu vátrygginga.
Með frumvarpinu mun umgjörð regluverks á vátryggingamarkaði styrkjast. Viðskiptavinir munu fá ítarlegri upplýsingar um vátryggingar svo þeir geti áttað sig betur á hvað felst í þeim og hvort vátryggingin henti þeim.
Með fyrirhugaðri lagasetningu eru gerðar auknar kröfur til þeirra sem dreifa vátryggingum, með samkeppnissjónarmið og neytendaverndarsjónarmið að leiðarljósi. Ekki er talið að of langt sé gengið í þeim efnum til þess að ná settum markmiðum.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Um 5 gr.
Ákvæði 1.–5. mgr. eru einnig í samræmi við 2. mgr. 4. gr., 7. og 67. gr. gildandi laga og 6. mgr. er í samræmi við 8. og 68. gr. gildandi laga.
Um 6. gr.
Vátryggingamiðlari skal veita mjög ítarlegar upplýsingar svo fyrir liggi að ekki séu hagsmunaárekstrar hjá vátryggingamiðlaranum sem geti dregið úr trausti hans og að gagnsæi gagnvart vátryggingartakanum sé tryggt. Virkur eignarhlutur skv. 44. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, er bein eða óbein eignarhlutdeild í félagi sem nemur 10% eða meira af hlutafé eða atkvæðisrétti eða önnur hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi félags.
Upplýsingar um endurgjald starfsmanns vátryggingafélags og vátryggingaumboðsmanns felast til dæmis í því að upplýsa hvort starfsmaður er á föstum launum hjá vátryggingafélagi eða hvort hann fær þóknun vegna sölunnar og þá hvort þóknunin greiðist af iðgjaldi vátryggingarinnar eða hvort hún er greidd sérstaklega.
Síðasta málsgreinin um aðila sem dreifir vátryggingu sem aukaafurð er í samræmi við 21. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97.
Ákvæði um endurgjald eru nú í 32. gr. laga um miðlun vátrygginga, nr. 32/2005, en ákvæði frumvarpsins kveða á um mun ítarlegri upplýsingagjöf um endurgjald. Meðal annars er lagt til að vátryggingamiðlari skuli upplýsa um virkan eignarhlut, hvort ráðgjöf er veitt á hlutlausan hátt og í samræmi við þarfagreiningu og hvort vátryggingamiðlarinn er samningsbundinn vátryggingafélagi eða ekki. Einnig skal upplýsa ítarlega hvers eðlis endurgjald vátryggingamiðlarans er og tilgreina skal fjárhæðina ef vátryggingamiðlarinn fær endurgjaldið greitt.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Um 9. gr.
Um 10. gr.
Samkvæmt 4. mgr. getur Fjármálaeftirlitið sett reglur um mat og eftirlit þegar vátrygging er seld með vöru eða þjónustu sem hluti af pakka eða í sama samningi og tilgreint hvenær salan telst ekki í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Slíkar reglur myndu byggjast á viðmiðunarreglum Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar.
Um 11. gr.
Reglur Fjármálaeftirlitsins sem eru settar á grundvelli 4. mgr. skulu byggjast á tæknilegum framkvæmdastöðlum Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar 2017/1469/ESB.
Um 12. gr.
Um 13. gr.
Um 14. gr.
Ákvæðið er í samræmi við 5. mgr. 22. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og kveður á um að dreifingaraðili skuli veita starfsmanni upplýsingar samkvæmt ákvæðum kaflans ef starfsmaðurinn verður aðili að skyldubundnum starfstengdum lífeyri án þess að taka um það ákvörðun sjálfur. Fyrirkomulag þar sem vinnuveitandi er með skyldubundinn starfstengdan lífeyri fyrir starfsfólk sitt þekkist ekki hér á landi.
Um b-lið (12. gr. b).
Ákvæðið er nær samhljóða 2. mgr. 9. og 69. gr. gildandi laga. Eingöngu er um lítils háttar orðalagsbreytingar að ræða.
Um c-lið (12 gr. c).
1. mgr. er efnislega samhljóða 10. og 70. gr. gildandi laga. Eingöngu er um orðalagsbreytingar að ræða þar sem tvær greinar eru sameinaðar í eina. Afhending vátryggingarskírteinis samkvæmt ákvæðinu getur verið með rafrænum hætti, t.d. sendingu á tölvupósti milli aðila, enda gefi vátryggingartaki samþykki sitt fyrir slíkum samskiptamáta.
Um d-lið (12. gr. d).
Ákvæðið er samhljóða 11. gr. gildandi laga og kveður á um upplýsingagjöf vegna endurnýjunar vátrygginga.
Um e-lið (12. gr. e).
Ákvæðið er í samræmi við 25. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og kveður á um að vátryggingafélag og vátryggingamiðlari skuli hafa til staðar vöruþróunarferli þegar ný vátrygging er búin til og þegar vátryggingu er breytt. Vöruþróunarferlið skal fela í sér samþykktarferli, greiningu á viðeigandi áhættum og reglulega endurskoðun. Þá skal skilgreina markhóp vátryggingarinnar og tryggja að dreifingaráætlun og markaðssetning sé til þess fallin að ná til hans. Upplýsingar um eiginleika vátrygginga og skilgreindan markhóp skulu vera aðgengilegar og dreifingaraðilar sem veita ráðgjöf um vátryggingu skulu afla sér viðeigandi upplýsinga um vátrygginguna og markhóp hennar. Ráðherra setur reglugerð þar sem útfærðar eru nánar þær kröfur sem eru gerðar til vöruþróunarferlis og dreifingaráætlana og mun hún byggjast á afleiddri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/2358/ESB frá 20. janúar 2016 um dreifingu vátrygginga.
Um 15.–17. gr.
Um 18. gr.
Um 19. gr.
Um 20. gr.
Um 21. gr.
Um 22. gr.
Um 23. gr.
Um 24. gr.
Um 25. gr.
Í greininni er kveðið á um að þessi hluti laganna gildi til viðbótar öðrum ákvæðum í I. hluta frumvarpsins um dreifingu á vátryggingatengdum fjárfestingarafurðum. Ákvæðið er í samræmi við 26 gr. tilskipunar (ESB) 2016/97. Vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir eru áhættu- og söfnunarlíftryggingar með fjárfestingaráhættu og eru skilgreindar í 3. tölul. 1. mgr. 21. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016. Vátryggingarbæturnar geta falist í greiðslum í lifanda lífi frá tilteknum aldri, greiðslum við andlát, greiðslum í lifanda lífi frá tilteknum aldri eða við andlát, líftryggingum með endurgreiðslu iðgjalda eða lífeyrisgreiðslum. Þeir sem dreifa vátryggingatengdum fjárfestingarafurðum eru vátryggingamiðlarar, vátryggingafélög og vátryggingaumboðsmenn og eru þeir nefndir dreifingaraðilar í þessum hluta. Aðilar sem selja vátryggingar sem aukaafurð hafa ekki heimild til að dreifa vátryggingatengdum fjárfestingarafurðum.
Um b-lið (140. gr. b).
Greinin er í samræmi við 27. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og er þar kveðið á um að dreifingaraðilar skuli hafa sérstakt verklag á skipulagi og stjórnkerfi í starfseminni sem dreifir vátryggingatengdum fjárfestingarafurðum til að unnt sé að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra.
Um c-lið (140. gr. c).
Greinin er í samræmi við 28. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og er þar kveðið á um að dreifingaraðila skuli greina fyrir fram frá mögulegum hagsmunaárekstrum og að það skuli gert með ákveðnu verklagi. Verklagið skal meðal annars fela í sér að mat er lagt á hvort hagsmunir aðila sem nefndir eru í 1. mgr. stangist á við hagsmuni viðskiptavinar eða hafi áhrif dreifingaráætlun vátrygginga. Þá skal meta hvort aðilar skv. 1. mgr. hafi fjárhagslegan ávinning eða forðist fjárhagslegt tjón á kostnað viðskiptavinar, hvort hagsmunir tiltekins viðskiptavinar eða hóps viðskiptavina séu teknir fram yfir annan viðskiptavin eða hóp viðskiptavina. Ef fyrirkomulagið tryggir ekki á fullnægjandi hátt hagsmuni viðskiptavinar skal hann upplýstur um hvaða hagsmunaárekstrar geti orðið áður en hann gerir vátryggingarsamning.
Um d-lið (140. gr. d).
Ákvæðið er í samræmi við 29. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og í því er tilgreint hvaða upplýsingar skuli veita viðskiptavini áður en samningur er gerður um vátryggingatengda fjárfestingarafurð. Upplýsingar um greiðslur og þóknanir til þriðja aðila skv. c-lið geta til dæmis verið þóknanir til eignastýringaraðila.
Um e-lið (140. gr. e).
Ákvæðið er í samræmi við 1. mgr. 30. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og í því er tilgreint hvaða upplýsingar dreifingaraðilar þurfa að afla sér um viðskiptavin vegna þarfagreiningar þegar þeir veita ráðgjöf um vátryggingatengda fjárfestingarafurð til að þeir geti mælt með þeirri afurð sem hentar þeim viðskiptavini.
Um f-lið (140. gr. f).
Ákvæðið er í samræmi við 2. mgr. 30. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og í því er tilgreint að dreifingaraðilar verði að fá upplýsingar um þekkingu og reynslu viðskiptavinar um vátryggingatengda fjárfestingarafurð þrátt fyrir að þeir veiti ekki ráðgjöf svo unnt sé að meta hvort afurðin henti viðskiptavininum. Ef afurðin hentar ekki viðskiptavini skal upplýsa hann um það.
Um g-lið (140. gr. g).
Ákvæðið er í samræmi við 4. og 5. mgr. 30. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og í því er tilgreint hvaða upplýsingar dreifingaraðili skuli veita viðskiptavini þegar vátryggingarsamningur er gerður um vátryggingatengda fjárfestingarafurð. Þegar vátryggingarsamningur um vátryggingatengda fjárfestingarafurð er gerður í fjarsölu gilda ákvæði laga nr. 33/2005, um fjarsölu á fjármálaþjónustu.
Um h-lið (140. gr. h).
Ákvæðið er í samræmi við 4. mgr. 28. gr. og 6. mgr. 30. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97. Reglugerð ráðherra mun byggjast á afleiddri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/2359/ESB frá 21. september 2016 um upplýsingaskyldu vegna vátryggingatengdra fjárfestingarafurða.
Um 26. gr.
Um 27. gr.
Um 28. gr.
Um 29. gr.
Um a-lið (145. gr. a).
1. mgr. er efnislega samhljóða 12. og 72. gr. gildandi laga. 1.–3. mgr. eru í samræmi við 12. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97. 4. mgr. er í samræmi við 7. gr. sömu tilskipunar.
Um b-lið (145. gr. b).
Liðurinn er í samræmi við 31., 33. og 34. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og kveður á um að unnt sé að leggja á stjórnvaldssektir vegna tilgreindra brota á ákvæðum frumvarpsins.
Um c-lið (145. gr. c).
Ákvæðið er samhljóma ákvæði 49. gr. frumvarps til laga um dreifingu vátrygginga og veitir Fjármálaeftirlitinu heimild til að bjóða málsaðilum að ljúka málum með sátt um hæfilega sektargreiðslu. Til að unnt sé að ljúka máli með sátt verður samþykki málsaðila að liggja fyrir. Sátt eru bindandi fyrir aðila þegar hann hefur samþykkt sáttina og staðfest efni hennar með undirskrift sinni. Fjármálaeftirlitið hefur sett reglur um heimild Fjármálaeftirlitsins til að ljúka máli með sátt, nr. 728/2014, og gilda þær um sáttir sem gerðar eru samkvæmt þessu ákvæði.
Um d-lið (145. gr. d).
Greinin er samhljóða ákvæði 50. gr. frumvarps til laga um dreifingu vátrygginga og er þar kveðið á um rétt einstaklings til að fella sig ekki við sök við rannsókn á stjórnsýslustigi.
Um e-lið (145. gr. e).
Greinin er samhljóða 51. gr. frumvarps til laga um dreifingu vátrygginga og er þar kveðið á um að heimild Fjármálaeftirlitsins falli niður þegar fimm ár eru liðin frá því að háttsemi lauk. Við afmörkun þess hvenær háttsemi lauk ber að taka mið af meginreglum refsiréttar og fjármálamarkaðsréttar um það atriði. Af því leiðir að ef um samfellda brotastarfsemi eða ástandsbrot er að ræða telst broti ekki lokið fyrr en hinu ólögmæta ástandi linnir og upphaf fyrningarfrests telst þá einnig frá þeim tíma. 2. mgr. kveður á um að tilkynning Fjármálaeftirlitsins til aðila um rannsókn á meintu broti rjúfi fyrningu. Einnig er kveðið á um að rof fyrningarfrests hafi réttaráhrif gagnvart öllum sem staðið hafa að broti. Af því leiðir að þótt rannsókn beinist í upphafi að einum aðila hindra fyrningarreglur ekki að lögð verði stjórnsýsluviðurlög á aðra aðila sem síðar kemur í ljós að stóðu einnig að broti. Þótt réttur Fjármálaeftirlitsins til álagningar stjórnvaldssekta sé fyrndur koma ákvæði þessarar greinar ekki í veg fyrir að Fjármálaeftirlitið fjalli efnislega um mál og kveði upp úr um hvort tiltekin háttsemi hafi falið í sér brot gegn lögum um miðlun vátrygginga.
Um f-lið (145. gr. f).
Ákvæðið er í samræmi við b-lið 35. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97 og er nýmæli. Í ákvæðinu er einnig lagt til að dreifingaraðili sem brýtur gegn skyldu sinni til að vernda starfsmann sem í góðri trú hefur tilkynnt um brot eða mögulegt brot skuli greiða starfsmanni skaðabætur samkvæmt almennum reglum. 2. og 3. mgr. eiga fyrirmynd í 60. gr. b laga um um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
Skv. 13. gr. a laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 87/1998, er Fjármálaeftirlitinu skylt að hafa ferla til staðar að taka við og fylgja eftir tilkynningum um brot, möguleg brot og tilraunir til brota á lögum þessum og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra. Það ákvæði er í samræmi við 1. mgr. og a- og b-lið 2. mgr. 35. gr. tilskipunarinnar.
Um g-lið (145. gr. g).
Ákvæðið þarfnast ekki skýringar.
Um 30.–32. gr.
Um ákvæði til bráðabirgða.