Ferill 800. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1261 — 800. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um sviðslistir.
Frá mennta- og menningarmálaráðherra.
I. kafli
Markmið og yfirstjórn.
1. gr.
Markmið.
Ráðherra fer með yfirstjórn sviðslistamála samkvæmt lögum þessum.
II. kafli
Þjóðleikhús.
2. gr.
Hlutverk.
3. gr.
Helstu verkefni.
4. gr.
Þjóðleikhússtjóri.
Þjóðleikhússtjóri stýrir starfsemi og rekstri Þjóðleikhússins og markar listræna stefnu þess. Hann ræður aðra starfsmenn leikhússins og er í fyrirsvari fyrir það.
5. gr.
Þjóðleikhúsráð.
Ráðherra skipar fimm manna þjóðleikhúsráð til fimm ára í senn. Fagfélög sviðslistafólks tilnefna þrjá fulltrúa en ráðherra tvo án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Ekki er heimilt að skipa sama aðalmann í þjóðleikhúsráð lengur en tvö samfelld starfstímabil.
Þjóðleikhúsráð setur sér starfsreglur, fylgist með starfsemi Þjóðleikhússins, veitir ráðherra reglulega umsögn um stefnu og áætlun um starfsemi Þjóðleikhússins.
6. gr.
Samstarf.
Leikhúsið skal eftir föngum veita leikfélögum áhugamanna lið og gera sviðslistanemendum kleift að fylgjast með leikhússtarfinu. Leikhúsið stuðlar einnig að listuppeldi og fræðslustarfi í samvinnu við menntastofnanir og gerir nemendum og almenningi kleift að kynna sér starfsemi leikhússins eftir því sem við verður komið.
7. gr.
Önnur notkun hússins.
8. gr.
Fjárhagur og gjaldtaka.
III. kafli
Íslenski dansflokkurinn.
9. gr.
Hlutverk.
10. gr.
Helstu verkefni.
11. gr.
Listdansstjóri.
Listdansstjóri stýrir starfsemi og rekstri Íslenska dansflokksins og markar listræna stefnu hans. Hann ræður aðra starfsmenn flokksins og er í fyrirsvari fyrir hann.
12. gr.
Listdansráð.
Listdansráð setur sér starfsreglur, fylgist með starfsemi dansflokksins og að hún sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli, veitir ráðherra reglulega umsögn um stefnu og áætlun um starfsemi Íslenska dansflokksins í samræmi við önnur lög og fylgist með framkvæmd þeirra.
13. gr.
Samstarf.
14. gr.
Fjárhagur og gjaldtaka.
IV. kafli
Önnur sviðslistastarfsemi.
15. gr.
Sviðslistaráð.
16. gr.
Hlutverk.
a. veita umsögn um þau mál sem ráðherra vísar til þess,
b. gera tillögu til ráðherra um stefnu og helstu áherslur í starfi sviðslistasjóðs til þriggja ára í senn,
c. gera tillögu til ráðherra um úthlutunarreglur sviðslistasjóðs, og
d. úthluta árlega styrkjum úr sviðslistasjóði.
17. gr.
Sviðslistasjóður.
18. gr.
Kynningarmiðstöð sviðslista.
19. gr.
Óperustarfsemi.
20. gr.
Gildistaka.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ráðherra skal fyrir 1. janúar 2020 skipa nefnd sem falið verður að gera tillögur um stofnun þjóðaróperu. Nefndin skal skila ráðherra tillögum sínum eigi síðar en í árslok 2020.
Greinargerð.
1. Inngangur.
Frumvarp þetta er samið í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Það er byggt á frumvarpi til laga um sviðslistir, sem lagt var fram á Alþingi í tvígang, þskj. 1049, 655. mál á 140. löggjafarþingi 2011–2012 og þskj. 202, 199. mál á 141. löggjafarþingi 2012–2013. Brýn þörf er á að skýra lagaramma um sviðslistir með heildarlögum, líkt og hefur verið gert fyrir önnur listasvið.
Núgildandi leiklistarlög eru nr. 138/1998. Frá gildistöku þeirra hefur lagaumhverfi á Íslandi gjörbreyst með tilkomu fjölmargra laga sem tekið hefur verið tillit til við samningu frumvarpsins. Sem dæmi má nefna lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, en í 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um að jafnrétti kynjanna skuli ávallt haft að leiðarljósi í sviðslistum. Þá höfðu lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, og lög um opinber fjármál, nr. 123/2015, talsverða þýðingu, t.d. við útfærslu ákvæðis um þjóðleikhússtjóra og listdansstjóra. Síðarnefndu lögin hafa einnig áhrif á heimild ríkisins til gerðar samninga. Þá var litið til laga á öðrum sviðum lista sem fyrirmynda við gerð frumvarpsins.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Frá setningu leiklistarlaga, nr. 138/1998, hafa orðið breytingar sem kalla á endurskoðun þeirra. Nefna má að starfsumhverfi stofnana hefur breyst og ábyrgð stjórnenda er skýrari. Þá er brýnt að ein heildarlög nái yfir allar sviðslistir.
Með frumvarpinu er leitast við að gera löggjöf á sviði sviðslista sambærilega breytingum mennta- og menningarmálaráðuneytis á sviði bókmennta, myndlistar og tónlistar. Á þeim sviðum eru skipaðar stjórnir eða ráð fyrir viðkomandi listgrein sem eru ráðherra til ráðgjafar um málefni hverrar greinar. Þá hafa einnig verið stofnaðir sjóðir til eflingar hverri listgrein með styrkveitingum og grundvöllur skapaður fyrir rekstur skrifstofu/miðstöðvar sem stendur að kynningu á listgreininni hér á landi og erlendis. Reynslan sýnir að þetta fyrirkomulag auðveldar stjórnsýslu, yfirsýn og samvinnu sjóðanna.
Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að ákvæði um Íslenska dansflokkinn verði lögfest í fyrsta sinn. Frá stofnun hefur dansflokkurinn einungis starfað á grundvelli reglna sem ráðherra setti starfseminni, fyrst nr. 878/1999 (brottfallnar) og nú nr. 14/2002, með áorðnum breytingum.
3. Meginefni frumvarpsins.
Frumvarpið skiptist í fjóra kafla.
Í I. kafla er kveðið á markmið laganna auk þess sem hugtakið sviðslistir er skilgreint.
Í II. kafla eru ákvæði um Þjóðleikhúsið. Verði frumvarpið að lögum mun hlutverk þess að mestu leyti vera óbreytt. Nokkrar breytingar verða þó frá gildandi leiklistarlögum.
Í fyrsta lagi má nefna að skv. 3. gr. verður megináhersla í starfsemi leikhússins á íslensk og erlend leikverk og að stuðla að frumsköpun í íslenskum sviðslistum.
Samkvæmt gildandi lögum eru aðalverkefni Þjóðleikhússins flutningur íslenskra og erlendra sjónleikja auk þess sem leikhúsið skal standa að flutningi á óperum, söngleikjum og listdanssýningum. Sú skylda er felld niður en Þjóðleikhúsi heimilt að standa að þannig sviðsetningum.
Í öðru lagi eru gerðar breytingar á ákvæðum um skipun þjóðleikhússtjóra. Ríkari kröfur eru gerðar til menntunar auk þess sem mælt er fyrir um skipunartíma og mögulega endurskipun að fyrirmynd ákvæðis um safnstjóra Listasafns Íslands í myndlistarlögum, nr. 64/2012. Ætíð skal auglýsa embættið laust til umsóknar í lok hvers skipunartímabils.
Í þriðja lagi er ákvæði um þjóðleikhúsráð breytt. Lagt er til að fagfélög sviðslistafólks tilnefni þrjá fulltrúa í þjóðleikhúsráð en í núgildandi lögum tilnefna Félag íslenskra leikara og Félag leikstjóra á Íslandi hvorn sinn fulltrúa í ráðið. Hlutverk ráðsins er lagað að lagaramma sem gildir um störf forstöðumanna og lögð áhersla á ráðgjafarhlutverk ráðsins. Því er fellt á brott ákvæði um að því sé ætlað að samþykkja starfs- og rekstraráætlanir.
Í fjórða lagi er lagt til að 8. gr. gildandi laga verði felld brott þar sem stjórnun starfseminnar og skipulag, þ.e. innra starfsskipulag, er á valdi þjóðleikhússtjóra samkvæmt erindisbréfi og ákvæðum laga um opinber fjármál.
Í fimmta lagi er felld brott 13. gr. núgildandi leiklistarlaga. Í sjötta og síðasta lagi eru gerðar breytingar á 12. gr. núgildandi laga til samræmis við sambærileg ákvæði laga um aðrar listgreinar.
Í III. kafla er fjallað um Íslenska dansflokkinn sem starfar samkvæmt sérstökum reglum um starfsemi hans. Uppbygging kaflans er hliðstæð kaflanum um Þjóðleikhúsið. Gert er ráð fyrir þriggja manna ráði eins og hefur verið hingað til og að fagfélög sviðslistafólks tilnefni tvo þeirra.
Lagt er til að III. og IV. kafla núgildandi laga verði slegið saman í einn kafla sem verður IV. kafli. Í kaflanum er fjallað um aðra sviðslistastarfsemi en þá sem fellur undir ríkisaðila, þ.e. Þjóðleikhúsið og Íslenska dansflokkinn. Í þessum kafla eru einnig ákvæði um sviðslistaráð og sviðslistasjóð. Talsverðar breytingar eru frá ákvæðum núgildandi laga hvað þennan kafla varðar enda hafa tekið gildi lög um opinber fjármál, nr. 123/2015. Í þeim má finna stoð fyrir samningagerð sem og fjárheimild ríkisins til stuðnings annarrar sviðslistastarfsemi en ríkisaðila. Verði frumvarpið að lögum mun sviðslistaráð úthluta úr sviðslistasjóði. Lagt er til að sviðslistasjóður skiptist í tvær deildir, deild atvinnuhópa og deild áhugahópa í sviðslistum. Hlutverk sviðslistasjóðs verður samkvæmt frumvarpinu að veita fjárhagslegan stuðning til verkefna á sviði sviðslista til að efla hana og koma á framfæri hér á landi og erlendis. Þá er í kaflanum kveðið á um sviðslistaráð, sem mun taka við af leiklistarráði, og heimild ráðherra til að fela þriðja aðila að annast kynningarmál á íslenskum sviðslistum hér á landi og erlendis og efla alþjóðlegt samstarf íslenskra sviðslistamanna og stofnana.
Við samningu frumvarpsins var tekið mið af sáttmála ríkisstjórnarinnar en í honum kemur fram að landsmenn eiga að hafa jafnan aðgang að þjónustu og atvinnutækifærum. Aðgengi að menningu er mikilvægur þáttur þess og máli skiptir að allir landsmenn geti notið lista og menningar og tekið þátt í slíku starfi.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Frumvarpið hefur ekki gefið tilefni til sérstaks mats á samræmi þess við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
5. Samráð.
Við fyrstu gerð frumvarpsins var haft samráð við helstu hagsmunaaðila auk þess sem drög að frumvarpinu voru höfð til almennrar kynningar á vef ráðuneytisins haustið 2011 þar sem kostur gafst á að senda athugasemdir eða ábendingar um efni þess. Þá var haft samráð við ýmsa hagsmunaaðila við áframhaldandi vinnslu frumvarpsins í ráðuneytinu og tekið tillit til margra athugasemda.
Í samræmi við 1. gr. samþykktar ríkisstjórnarinnar, dags. 10. mars 2017, hafa áform um lagasetningu og frummat á áhrifum verið kynnt á fundi ráðuneytisstjóra allra ráðuneyta og bárust engar athugasemdir. Í 3. gr. samþykktarinnar er kveðið á um opið samráð um áform til lagasetningar og í 9. gr. er mælt fyrir um opið samráð um frumvarpsdrög. Hinn 27. september 2018 voru áform og frummat á áhrifum kynnt í samráðsgátt stjórnvalda, sbr. 3. gr. áðurnefndrar samþykktar, og gafst almenningi þá kostur á að gera athugasemdir. Var frestur til að skila ábendingum í samráðsgátt stjórnvalda lengdur til 27. nóvember 2018 að ósk hagsmunaaðila. Alls bárust sjö umsagnir. Tekin var afstaða til þeirra við vinnslu frumvarpsins og nokkrar breytingar gerðar á því með hliðsjón af athugasemdum. Þau frumvarpsdrög sem liggja fyrir hafa verið kynnt í samráðsgátt í samræmi við fyrrgreinda samþykkt ríkisstjórnar. Að auki hafa verið haldnir fundir með hagsmunaaðilum undanfarin ár auk þess sem samráðsfundur var haldinn 17. janúar 2018 með helstu hagsmunaaðilum þessa frumvarps þar sem þeim voru kynnt frumvarpsdrög og gefinn kostur á að koma athugasemdum til ráðuneytisins að þeim fundi lokum. Tvær skriflegar athugasemdir bárust og var tekið mið af þeim við lokafrágang frumvarpsins. Athugasemdirnar lutu að tilnefningaraðilum í þjóðleikhúsráð og listdansráð og var tekið tillit til þess.
Þegar áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda, dags. 27. september 2018, bárust alls 6 umsagnir. Athugasemdirnar lutu að því hvernig styrkja mætti uppbyggingu á atvinnustarfsemi í sviðslistum utan stærstu þéttbýliskjarnanna, starfsemi sviðslistasjóðs og skipun í sviðslistaráð. Starfsemi Þjóðleikhússins, endurráðningu þjóðleikhússtjóra og hlutverk þjóðleikhúsráðs auk stöðu óperustarfsemi á Íslandi. Frumvarpsdrög voru birt í samráðsgátt stjórnvalda, dags. 31. október 2018. Þrettán umsagnir bárust um frumvarpsdrögin fyrir lok samráðsfrests. Flestir umsagnaraðilar fögnuðu fyrirhuguðu frumvarpi, sérstaklega var ánægja með að tilvist Íslenska dansflokksins yrði festur í lög. Íslenska óperan kom með athugasemd um að staða íslensku óperunnar væri veik í frumvarpsdrögunum og óskuðu eftir hún yrði tryggð til lengri tíma. Að auki bárust athugasemdir um starfsemi Þjóðleikhússins, endurráðningu þjóðleikhússtjóra og starfsemi Þjóðleikhúsráðs og hvort hlutverk þess ætti ekki fyrst og fremst að vera eftirlitshlutverk. Þá var hvatning um að stofna kynningarmiðstöð sviðslista. Ráðuneytið fékk til liðs við sig sérfræðing í sviðslistum sem undirbjó í samstarfi við ráðuneytið lokadrög frumvarpsins þar sem leitast var við að taka tillit til flestra athugasemda.
6. Mat á áhrifum.
Meginmarkmið lagasetningarinnar er að laga starfsramma Þjóðleikhússins að ríkjandi starfssviði, skapa lagastoð fyrir starfsemi Íslenska dansflokksins og skapa heildstæðari og skýrari lagagrundvöll fyrir sviðslistir og styrkja starfsemi sviðslista. Þá er jafnframt stefnt að því að skýra betur hlutverk forstöðumanna Þjóðleikhússins og Íslenska dansflokksins, og þjóðleikhúsráðs og stjórnar Íslenska dansflokksins. Verði frumvarpið að lögum ætti það minnka stjórnsýslubyrði mennta- og menningarmálaráðuneytis en auka stjórnsýslubyrði sviðslistaráðs sem kemur í stað leiklistarráðs skv. gildandi lögum. Sú byrði ætti þó að vera óveruleg. Umsýsla sviðslistasjóðs verður að öllu leyti utan mennta- og menningarmálaráðuneytisins og ákvarðanir um styrkveitingar endanlegar á stjórnsýslusviði. Þær munu því ekki sæta kæru til ráðherra. Ráðuneytinu ætti að gefast betra tóm til að sinna eftirlitshlutverki sínu. Ekki er gert ráð fyrir að breytingar sem snúa að Þjóðleikhúsinu og Íslenska dansflokknum kalli á aukin útgjöld, en ef það kæmi til ætti það ekki að kalla á aukin ríkisútgjöld heldur tekið af framlögum þeirra. Varðandi kostnað sviðslistaráðs þá er gert ráð fyrir að hann verði tekin af framlögum til sviðslistasjóðs og ætti því ekki að auka ríkisútgjöld nema tekin verði ákvörðun um aukin framlög til sviðslistasjóðs. Rétt er að benda á að gert er ráð fyrir heimild til að fela þar til bærum aðila að reka sérstaka skrifstofu, kynningarmiðstöð. Rekstur slíkrar skrifstofu gæti kostað 20–30 m.kr. á ári. Ef slík heimild verður nýtt má gera ráð fyrir að óskað verði eftir hækkun á framlagi í sviðslistasjóð úr ríkissjóði.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni eru sameinuð ákvæði 1. og 2. gr. núgildandi leiklistarlaga. Þá er tilgreint að ráðherra fari með yfirstjórn sviðslistamála í stað leiklistarmála í gildandi lögum. Hugtakið vísar til breiðara sviðs þannig að allar sviðslistir, þ.e. leiklist, listdans, óperuflutningur, brúðuleikur og skyld liststarfsemi sem ekki heyrir undir lög um aðrar listgreinar, falla hér undir.
Þau nýmæli eru í frumvarpinu frá því það var áður lagt fram að nú er kveðið á um að jafnrétti kynjanna skuli ávallt haft að leiðarljósi í sviðslistum.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Eins og í gildandi lögum er gert ráð fyrir að þjóðleikhússtjóri ráði aðra starfsmenn leikhússins í samræmi við ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Um 5. gr.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir fimm manna þjóðleikhúsráði eins og verið hefur. Lagt er til að fagfélög sviðslistafólks tilnefni þrjá fulltrúa og ráðherra skipi tvo án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður. Ráðið setur sér starfsreglur. Hlutverk ráðsins er lagað að þeim lagaramma sem gildir um störf forstöðumanna. Nánar tiltekið er hér átt við ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins um stöðu og ábyrgð forstöðumanna og ákvæði laga um opinber fjármál, nr. 123/2017. Þá var höfð til hliðsjónar umsögn fjármála- og efnahagsráðuneytis um eldri útgáfu frumvarpsins, þar sem sagði nánar tiltekið: „Fjármálaráðuneytið fær […] ekki séð að þörf sé fyrir að sérstakt ráð hafi fjárhagsáætlanir til umsagnar við þessa stofnun fremur en aðrar og telur að það geti hamlað fjárhagslegri ábyrgð forstöðumanns á starfseminni þótt tilefni gæti þótt vera fyrir umfjöllun slíks ráðs um faglega eða listræna stefnumörkun.“ Undir þessa athugasemd tók Ríkisendurskoðun í skýrslu um ítrekaða eftirfylgni frá mars 2014.
Um skipan og starfshætti ráðsins gilda vanhæfisákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, með síðari breytingum, II. kafli, 3.–6. gr.
Ráðinu er fengið það hlutverk að fylgjast með starfsemi Þjóðleikhússins og að tilkynna til ráðherra komi í ljós rökstuddur grunur um að svo sé ekki. Þá er ráðinu jafnframt fengið það hlutverk að fjalla um stefnu Þjóðleikhússins til næstu þriggja ára og áætlun um starfsemi þess fyrir komandi fjárlagaár samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, og eftirlitshlutverk fyrir hönd ráðherra, sbr. 60.–63. og 65. gr. sömu laga, sem og að fylgjast með framkvæmd áætlunarinnar.
Um 6. gr.
Þá er bætt við ákvæði um að leikhúsið skuli stuðla að listuppeldi og fræðslustarfi í samstarfi við menntastofnanir og að það skuli gera nemendum og almenningi kleift að kynna sér starfsemi leikhússins eftir því sem við verður komið. Hér er verið að festa í sessi mikilvægt starf sem leikhúsið hefur í ríkari mæli reynt að sinna.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Um 9. gr.
Í greininni er hlutverk Íslenska dansflokksins skilgreint á ný í ljósi ferils flokksins og stöðu. Auk þess að sýna listdans ber flokknum að stuðla að nýsköpun í innlendri listdanssmíði og þróun danslistar á Íslandi. Flokkurinn hefur hingað til verið öflugur vettvangur þessa, m.a. með því að ráða til sín danshöfunda, íslenska og erlenda, standa fyrir listdanssmiðju og ýmsum þróunarverkefnum.
Vakin er athygli á að dansarar dansflokksins eru nú allir háskólamenntaðir og á því sólarlagsákvæðið sem staðið hefur í reglugerð ekki lengur við. Tryggja á í kjarasamningi og viðurkenna að laun dansara séu hærri og uppsagnarfrestur lengri en gildir almennt um dansara á almennum vinnumarkaði. Þetta er sjónarmið kjara- og mannauðssýslu sem lengi hefur kallað eftir breytingum.
Um 10. gr.
Um 11. gr.
Um 12. gr.
Um 13. gr.
Um 14. gr.
Um 15. gr.
Við mat á umsóknum er sviðslistaráði heimilt að leita umsagnar fagaðila en vísast í því samhengi til 6. málsl. 17. gr. Slíkt er í samræmi við önnur lög á sviði listgreina.
Um 16. gr.
Frá fyrri útgáfum frumvarpsins hefur hlutverki sviðslistaráðs verið breytt þannig að ráðinu er ekki ætlað að annast kynningarmál enda sætti það fyrirkomulag talsverðri gagnrýni. Af þessu leiðir að sá kostnaður sem hlýst af kynningarmálum mun ekki dragast af þeirri fjárhæð sem er ráðstafað til sviðslistarsjóðs.
Um 17. gr.
Hlutverk sjóðsins er skilgreint vítt en gert ráð fyrir að sviðslistaráð geri tillögur til ráðherra um áherslur og stefnu í starfi sjóðsins og ákveði hvernig fjármunum hans verði varið til styrkja á grundvelli umsókna, verkefna eða áhersluatriða sviðslistaráðs og umsýslukostnaðar.
Lagt er til að skipta hlutverki sviðslistasjóðs í tvær deildir, deild atvinnuhópa og deild áhugastarfsemi, og mynda þannig einn öflugan sjóð sem styrkir einstök verkefni eða starfsemi atvinnuhópa og áhugastarfsemi á sviði sviðslista í landinu öllu. Heildarframlag úr sjóðnum til áhugastarfsemi skal að lágmarki vera 18% og er þá miðað við þá fjárhæð sem ráðstafað er annars vegar til stuðnings við starfsemi áhugaleikhópa um land allt og hins vegar með rekstrarsamningi milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Félags íslenskra leikfélaga.
Sjóðnum er ætlað að sjá um styrkveitingar á vegum ráðuneytisins til sviðslistastarfsemi. Ráðherra er ætlað að setja sviðslistasjóði starfsreglur. Í þeim skal m.a. gert ráð fyrir að hægt sé að leita eftir umsögnum fagaðila um einstök mál.
Með vísan til nýlegra laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, er ekki talin þörf á ákvæði á borð við 14. og 16. gr. núgildandi laga, enda skal ríkisstjórnin leggja fram fjármálastefnu fyrir Alþingi um markmið í opinberum fjármálum til eigi skemmri tíma en fimm ára í senn, sbr. 4. gr. þeirra laga.
Um 18. gr.
Um 19. gr.
Um 20. gr.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Í athugasemdum við frumvarpið í samráðsgátt stjórnvalda komu fram óskir um að staða Íslensku óperunnar yrði tryggð til lengri tími. Hafa kostir og gallar við stofnun þjóðaróperu þegar verið kannaðir að einhverju leyti en þarfnast ítarlegri skoðunar. Því er gerð tillaga um að ráðherra skipi nefnd sem falið verði að skila honum tillögum um stofnun þjóðaróperu fyrir árslok 2020.