Ferill 640. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1276 — 640. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um sláturafurðir.
1. Hvað fellur árlega til mikið magn af sláturafurðum hér á landi og hve stóran hluta þess mætti nýta?
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 96/1997, um slátur og sláturafurðir, er sláturafurð skilgreind sem kjöt og slátur af öllum sláturdýrum. Á árinu 2017 voru framleidd 32.256.517 kg af kjöti, þ.e. alifuglakjöti, hrossakjöti, nautakjöti, lambakjöti og svínakjöti, og 20.776 tonn af óslægðum fiski úr eldi.
Matvælastofnun annast opinbert eftirlit með meðferð, skoðun og mati á sláturafurðum. Einungis er heimilt að markaðssetja þær sláturafurðir sem eru framleiddar og markaðssettar í samræmi við ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæli sem um afurðina gilda. Stjórnandi matvælafyrirtækis ber ábyrgð á að uppfylltar séu kröfur laga og stjórnvaldsreglna sem gilda um starfsemi þess á hverjum tíma, sbr. 8. gr. b laga um matvæli, nr. 93/1995.
Þær afurðir sem ekki teljast til sláturafurða eru skilgreindar sem sláturúrgangur. Sláturúrgangur eru afurðir sem falla til við slátrun sláturdýra og eru ekki nýttar til manneldis, sbr. 3. gr. laga nr. 96/1997. Ekki liggja fyrir opinberar tölur um magn sláturúrgangs en að mati Matís gæti það verið um 5000–6000 tonn. Þá liggja ekki fyrir upplýsingar um hve stóran hluta sláturúrgangs mætti nýta.
2. Hve stór hluti þess magns er vottaður af sláturleyfishöfum þannig að flokkun hráefna sé í samræmi við reglugerðir, hve stóran hluta væri hægt að votta og hvað kemur í veg fyrir að votta megi allar sláturafurðir?
Samkvæmt 11. gr. laga um slátrun og sláturafurðir skal gerð heilbrigðisskoðun á öllum sláturdýrum áður en slátrað er. Auk þess skal heilbrigðisskoðun gerð á sláturhúsi áður en frekari vinnsla allra sláturafurða fer fram í sláturhúsi eða þær eru afhentar til dreifingar. Slíkt eftirlit er í höndum héraðsdýralæknis eða eftirlitsdýralæknis sem fara með daglegt eftirlit í sláturhúsum samkvæmt reglugerð nr. 103/2010 um gildistöku reglugerðar (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli og reglugerð 105/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 854/2004 um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem ætlaðar eru til manneldis. Með vísan til þessa er eftirlit eða vottun ekki í höndum sláturleyfishafanna sjálfra, sbr. einnig reglugerð um gildistöku tilskipunar ráðsins 96/93/EB um vottun dýra og dýraafurða, nr. 606/2010.
Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 500/2017 um gæðamat, flokkun og merkingu sláturafurða er skylt að flokka og merkja, eftir tegundum og gæðum samkvæmt viðeigandi stöðlum, allar sláturafurðir sem settar eru á markað eða til dreifingar og neyslu innan lands. Að öðrum kosti telst afurð ekki framleidd og telst því sláturúrgangur, sbr. 3. gr. laga nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir. Um flokkun sláturúrgangs gilda reglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis, sbr. reglugerð nr. 108/2010, með síðari breytingum.
3. Hve stór hluti sláturafurða er urðaður eða hent og hver er skýringin á því að ekki er meira nýtt?
Ekki liggja fyrir upplýsingar um hve stór hluti sláturafurða er urðaður eða hent.
4. Hvað stendur í vegi fyrir útflutningi á sláturafurðum?
Í íslenskri löggjöf er ekki að finna hindranir fyrir útflutningi á sláturafurðum.
5. Hvað stendur í vegi fyrir útflutningi á afurðum sem falla til vegna orkugerðar og annarrar vinnslu á sláturafurðum í víðum skilningi þess orðs?
Í íslenskri löggjöf er ekki að finna hindranir fyrir slíkum útflutningi.