Ferill 831. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1325 — 831. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um flotvörpuveiðar á norsk-íslenskri vorgotssíld.
Frá Ingu Sæland.
1. Á hvaða svæðum og tímabilum leyfðist íslenskum skipum að stunda veiðar með flotvörpu úr norsk-íslenska vorgotssíldarstofninum á árunum 2000–2019? Svæði óskast sýnd á kortum.
2. Hver var árleg heildarveiði íslenskra skipa á norsk-íslenskri vorgotssíld á árunum 2000–2019?
3. Hversu mikið veiddu íslensk fiskiskip af norsk-íslenskri vorgotssíld í flotvörpu árlega 2000–2019? Svar óskast gefið upp í tonnum og prósentuhlutfalli af heildarveiði þessara skipa úr stofninum hvert fiskveiðiár.
Skriflegt svar óskast.