Ferill 819. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1380  —  819. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um geislavirkni í hafi.


     1.      Hvaða rannsóknir eru gerðar hér á landi á geislavirkni í hafinu umhverfis landið? Með hvaða hætti eru þessar rannsóknir framkvæmdar, hvar og hvaða tegund geislavirkni er mæld?
    Rannsóknir á geislavirkum efnum í hafinu umhverfis Ísland eru í höndum Geislavarna ríkisins. Reglulegar mælingar á Cs-137 í sýnum af sjó, þangi og fiski hafa verið gerðar frá því um 1990.
    Sjósýni til mælinga á geislavirkum efnum eru tekin árlega í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar. Nokkuð fer eftir aðstæðum hve mörg sýni nást en algengt er að þau séu á annan tug ár hvert og er þeirra aflað á föstum mælipunktum Hafrannsóknastofnunar í hafinu allt umhverfis landið. Styrkur gammageislandi efna, einkum sesíns 137 (Cs-137), er mældur hjá Geislavörnum. Styrkur Cs-137 hefur verið mjög lágur og farið lækkandi frá því mælingar hófust. Sýni hafa verið send til mælinga hjá samstarfsaðilum í Noregi og Danmörku til samanburðar, og til mælinga á kjarntegundum sem einkum gefa frá sér betageislun, svo sem strontín 90 (Sr-90) og teknetín 99 (Tc-99).
    Fisksýna hefur í gegnum tíðina verið aflað í samvinnu við Hafrannsóknastofnun, Matís og fleiri aðila. Þangsýna hefur verið aflað frá sex stöðum við strönd landsins, allt upp í fjórum sinnum á ári, en vegna þess hve styrkur Cs-137 í þeim hefur farið lækkandi hefur sýnataka á þangi verið minnkuð og er það í takt við það sem verið hefur hjá norrænum samstarfsaðilum, til dæmis í Noregi.
    Auk reglulegrar vöktunar taka Geislavarnir þátt í ýmsum rannsóknaverkefnum og nú stendur til dæmis yfir vinna við samnorrænt verkefni sem snýst um mælingar á náttúrulegum geislavirkum efnum í sjávarfangi.

     2.      Hefur ráðherra gert áætlanir um að láta mæla fleiri tegundir geislavirkni í hafinu umhverfis landið en hingað til?
    Nei, ekki hafa verið gerðar áætlanir um slíkt. Þess má geta að mælingar á beta- og alfageislandi efnum krefjast bæði mælitækja og búnaðar sem er ekki fyrir hendi hjá Geislavörnum auk sérþekkingar í geislaefnafræði sem er heldur ekki fyrir hendi við stofnunina. Ekki er heldur vitað til þess að slíkur búnaður sé fyrir hendi í landinu eða sérþekking í geislaefnafræði. Stofnkostnaður við framangreint væri mikill og gæti numið allt að 20–30 millj. kr. Sömuleiðis gæti árlegur kostnaður verið á bilinu 15–20 millj. kr. Miðað við núverandi aðstæður hafa önnur verkefni í málaflokknum meiri forgang.

     3.      Hvað væri að mati ráðherra viðunandi vöktun skaðlegrar geislavirkni í hafinu umhverfis landið? Þess er óskað að svarið taki til tíðni mælinga, tegunda efna sem mæld yrðu og fjölda sýnatökustaða.
    Það er mat ráðherra að núverandi fyrirkomulag vöktunar hjá Geislavörnum með áherslu á sesín 137 sé viðunandi miðað við það fjármagn sem fyrir hendi er, sbr. svar við 1. lið.

     4.      Hverjir aðrir en Íslendingar hafa staðið fyrir mælingum á geislavirkni í hafinu umhverfis landið? Hvaða rannsóknir hafa verið gerðar í þessu sambandi og hverjar eru niðurstöður þeirra?
    Norðmenn og Danir hafa staðið fyrir mælingum á geislavirkni í hafinu um áratugaskeið.
    Norðmenn halda úti umfangsmiklum mælingum á geislavirkni í hafinu, einkum í Skagerrak, Norðursjó, Noregshafi og Barentshafi, auk þess sem sýni eru tekin í fjörðum og á föstum stöðvum við strendur Noregs. Helstu kjarntegundir eru Tc-99, Cs-137, Sr-90, Am-241, Ra-226 og samsætur plútóns. Einnig eru mæld sýni af sjávarseti og lífverum, svo sem þangi og sjávardýrum. Mæligildi eru lág og fara heldur lækkandi. Nýjasta skýrsla norsku geislavarnanna um þessar mælingar er fyrir árin 2012–2014 (https://www.dsa.no/filer/ 7e34b27879.pdf). Enn fremur hafa starfað rannsóknahópar sem hafa meðal annars skoðað geislamengun í Barentshafi sérstaklega (Joint Norwegian-Russian Expert Group (JNREG)) og gefið út ítarlegar skýrslur (https://www.dsa.no/publikasjon/10-years-of- joint-monitoring-of-radioactive-substances-in-the-barents-sea.pdf).
    Danir hafa staðið fyrir mælingum á geislavirkum efnum í Norður-Atlantshafi, einkum á hafsvæðum við Grænland og Færeyjar og við strendur Danmerkur. Mælingar eru gerðar á ýmsum kjarntegundum í sýnum þaðan, svo sem Cs-137, Sr-90, Tc-99, Pu-239, Pu-240 og Np-237, en einnig náttúrulegum kjarntegundum, svo sem Po-210 og Pb-210. Danir hafa einnig mælt geislavirk efni í Norðursjó, við Noregsstrendur, í Norður-Íshafi, Eystrasalti og víðar. Mæligildi eru lág og fara heldur lækkandi.
    Um geislavirkni á Norðurslóðum er fjallað í nýlegri skýrslu starfshóps á vegum Norðurskautsráðsins, www.amap.no/documents/doc/amap-assessment-2015-radioactivity-in-the-arctic/1457. Þar segir meðal annars að styrkur geislavirkra efna í hafinu á Norðurslóðum sé lítill nú miðað við styrk þeirra fyrir nokkrum áratugum og fari lækkandi. Aftur á móti er til athugunar hvort auka eigi þátttöku Íslands í vöktunarverkefnum tengdum Norðurslóðasamstarfi.
    Hafinn er undirbúningur að uppfærðri AMAP-matsskýrslu um geislavirkni á Norðurslóðum og stefnt að útgáfu hennar árið 2023.

     5.      Er vitað um þá staði í Norður-Atlantshafi og nálægum hafsvæðum þar sem geislavirkum úrgangi hefur verið sökkt? Ef svo er, hvenær, í hvaða magni, hvaða tegund úrgangs er um að ræða og með hvaða umbúnaði var það gert?
    Vitað er um þá staði í Norður-Atlantshafi og nálægum hafsvæðum þar sem geislavirkum úrgangi hefur verið sökkt, hvenær, í hvaða magni, hvaða tegund úrgangs er um að ræða og með hvaða umbúnaði það var gert.
    Í skýrslu Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar frá 1999 (IAEA-TECDOC-1105, „Inventory of radioactive waste disposals at sea“) er meðal annars fjallað um þá staði í Norður-Atlantshafi og nálægum hafsvæðum þar sem geislavirkum efnum hefur verið sökkt. Þar kemur meðal annars fram að á árunum 1946–1993 hafi 14 ríki sökkt geislavirkum efnum í heimshöfin á meira en 80 stöðum (sjá mynd úr skýrslunni hér á eftir) og að geislavirkni þeirra hafi verið um 85 Peta Becquerel. Um 50% þess var lágeislavirkur úrgangur á föstu formi, meðal annars frá sjúkrahúsum og iðnaði sem átta Evrópuríki og Bandaríkin sökktu í Norður-Atlantshaf, og um 43% geislavirkninnar er vegna kjarnaofna með notuðu brennsluefni sem fyrrum Sovétríkin sökktu í Karahaf. Þann 20. febrúar 1994 tók gildi algjört bann við að sökkva geislavirkum úrgangi í hafið samkvæmt „London Convention“.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Mynd: Staðir þar sem geislavirkum efnum var sökkt í hafið 1946–1993.


     6.      Hafa stjórnvöld sérstakan viðbúnað komi upp skaðleg geislavirkni í hafinu umhverfis landið? Ef ekki, er slíkur viðbúnaður í bígerð?
    Sérstakur viðbúnaður er fyrir hendi ef upp kemur grunur um aukna geislavirkni í hafinu umhverfis Ísland.
    Ef grunur liggur á að aukning sé á geislavirkni í hafinu umhverfis landið þá geta Geislavarnir með skjótum hætti aukið sýnatöku til mælinga eftir því sem þarf. Einnig er hægt að skima yfirborð sjávar úr lofti með næmum skimunarbúnaði sem stofnunin hefur yfir að ráða. Leitað verður aðstoðar frá Hafrannsóknastofnun, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands og eftir atvikum frá erlendum samstarfsaðilum við að gera dreifispár og leggja mat á uppsprettu og útbreiðslu geislavirkra efna í hafinu.
    Geislavarnir hafa á undanförnum árum meðal annars tekið þátt í ýmsum norrænum verkefnum um viðbrögð við geislavá á hafi á norðurslóðum.
    Ísland er aðili að alþjóðlegum samningi um aðstoð við alvarlegt kjarnorkuslys eða ef upp kemur alvarleg geislavá, „Convention on Assistance in the Case of a Nuclear Accident or Radiological Emergency“. Á grundvelli samningsins getur Ísland leitað til Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar um aðstoð sem meðal annars getur falið í sér aðstoð við mælingu sýna, túlkun á mæliniðurstöðum og skimun eftir geislamengun sem og ráðgjöf um viðbrögð og aðgerðir sem gæti þurft að grípa til.