Ferill 689. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1396  —  689. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Álfheiði Eymarsdóttur um vinnu afplánunarfanga.


     1.      Hvaða forsendur liggja að baki ákvörðun um fjárhæð þóknunar fyrir störf afplánunarfanga í fangelsum?
    Samkvæmt 1. mgr. 27. gr. laga um fullnustu refsinga ákveður ráðherra fjárhæð dagpeninga með gjaldskrá og skal hún miðast við að fangi eigi fyrir brýnustu nauðsynjum til persónulegrar umhirðu. Með setningu reglugerðar nr. 162/2017 um þóknun fyrir vinnu og nám og dagpeninga fyrir fanga var gerð sú breyting að sama tímagjald er nú greitt fyrir öll störf fanga og skólasókn í stað mismunandi tímagjalds fyrir mismunandi störf.

     2.      Hverjar eru tekjur og gjöld Fangelsismálastofnunar vegna vinnu afplánunarfanga? Svar óskast sundurliðað eftir kostnaðar- og tekjuliðum sl. 10 ár.
    Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun ríkisins er ekki hægt að sundurliða gjöld vegna vinnu afplánunarfanga sérstaklega. Margir þættir eru ekki skilgreindir sér, sem dæmi má nefna að laun fangavarða sem eru eftirlitsaðilar og leiðbeinendur á öllum vinnustöðum eru ekki skilgreind sérstaklega sem gjöld á móti tekjum heldur eru laun þeirra hluti af heildarrekstrarkostnaði fangelsanna. Þá er ýmis afleiddur kostnaður við vinnu fanga, svo sem rafmagn, hiti, leiga, fasteignagjöld, viðhald húsnæðis og ýmis annar rekstrarkostnaður sem fellur til hluti af heildarrekstrarkostnaði hvers fangelsis fyrir sig.

     3.      Geta fangar verið aðilar að stéttarfélagi? Ef svo er, hversu margir fangar sem starfa innan fangelsa eiga aðild að stéttarfélagi?
    Lög um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, takmarka ekki aðild fanga að stéttarfélagi. Aðild að stéttarfélagi er ekki tengd afplánun með neinum hætti og af þeim sökum hefur ráðuneytið ekki upplýsingar um hversu margir fangar sem starfa innan fangelsa eigi aðild að stéttarfélagi.

     4.      Greiða fangar í lífeyrissjóði?
    Fangelsismálastofnun ríkisins greiðir ekki í lífeyrissjóði fyrir fanga en lög um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, standa ekki í vegi fyrir að fangar greiði sjálfir í lífeyrissjóði. Fangar geta greitt í lífeyrissjóði vegna vinnu í fangelsi sem yfirvöld fangelsismála útvega og greiða þóknun fyrir skv. 1. mgr. 25. gr., sbr. 1. mgr. 27. gr. laganna eða vegna launa sem þeir fá fyrir aðra vinnu, þ.e. þá vinnu sem þeir útvega sér sjálfir og aðrir en fangelsismálayfirvöld greiða fyrir, sbr. 4. mgr. 25. gr. laganna.