Ferill 840. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1397 — 840. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Smára McCarthy um hugbúnaðarkerfið LÖKE.
Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað upplýsinga frá embætti ríkislögreglustjóra.
1. Hver er formlegur eigandi höfundarréttar að hugbúnaðarkerfinu LÖKE?
Í útboði á smíði lögreglukerfisins var kveðið á um að verkkaupi, þ.e. dóms- og kirkjumálaráðuneytið, væri eigandi hugverkaréttinda lögreglukerfisins. Með tilfærslu verkefna tölvumiðstöðvar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins til ríkislögreglustjóra færðist eignarréttur að lögreglukerfinu til embættis ríkislögreglustjóra.
2. Hver er heildareignarhaldskostnaður ríkisins af hugbúnaðarkerfinu LÖKE, sundurliðað eftir upprunalegum þróunarkostnaði, viðhaldskostnaði og kostnaði við útvíkkun á eiginleikum?
Á árunum 2003–2007 var kostnaður vegna innkaupa, viðhalds og útvíkkunar á virkni kerfisins á árunum bókfærður í bókhaldi ríkisaðila sem lagðir hafa verið niður eða tekið breytingum og er því ekki hægt að draga þann kostnað saman.
Áætlaður árlegur kostnaður við viðhald kerfisins og útvíkkun á eiginleikum þess hefur verið um 15–17 millj. kr. á árunum 2007–2018 eða um 165–187 millj. kr. á 11 ára tímabili.
3. Hvers vegna hefur kóðinn að hugbúnaðinum ekki verið gefinn út opinberlega, í samræmi við stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað?
Það er liður í öryggisráðstöfunum að aðeins tölvudeild ríkislögreglustjóra hafi aðgang að kóðanum og þannig hindra að óviðkomandi aðilar komist inn á lokað tölvunet lögreglunnar þar sem má nálgast viðkvæmar persónuupplýsingar.
4. Er auðkenningarkerfi notað til að stýra aðgangi að hugbúnaðinum og ef svo er, hvert er það kerfi?
Enginn getur ræst upp lögreglukerfið nema vera þekktur í Active Directory. Hluti af lögreglukerfinu er umsjónarhluti þar sem aðgangi er stýrt að hinum einstöku hlutum þess. Allar fyrirspurnir og aðgerðir notandans eru færðar í ferilskrá þar sem fram kemur hvaða flettingar einstaklingur hefur gert, þ.e. í hvaða hluta kerfisins, hvaða skjámynd unnið var í og netheiti tölvunnar sem unnið var í.