Ferill 716. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1398  —  716. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um eldri eiðstaf dómara.


     1.      Hafa allir starfandi dómarar undirritað nýtt drengskaparheit eftir að orðalaginu um að vera „trú/r og hlýðin/n stjórnvöldum“ var breytt árið 2010 og héraðsdómarar, hæstaréttardómarar og nú landsréttardómarar hófu að undirrita samhljóða heit um „að halda stjórnarskrá lýðveldisins Íslands“, sbr. svar ráðherra á þskj. 900 (475. mál)? Ef ekki, hve margir dómarar á hverju dómstigi hafa ekki undirritað hinn nýja eiðstaf?
    Allir starfandi dómarar við Hæstarétt Íslands og Landsrétt undirrituðu nýrri útgáfu drengskaparheits þegar þeir voru skipaðir í embætti. Starfandi héraðsdómarar sem undirrituðu eldri útgáfu drengskaparheits eru 17.

     2.      Ef enn eru starfandi dómarar sem ekki hafa undirritað nýjan eiðstaf lítur ráðherra þá svo á að þeir dómarar skuli vera trúir og hlýðnir ráðherra?
    Samkvæmt 61. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, skulu dómendur í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögunum. Í 1. mgr. 43. gr. laga um dómstóla, nr. 50/2016, segir enn fremur að dómarar séu sjálfstæðir í dómstörfum og leysi þau af hendi á eigin ábyrgð. Við úrlausn máls fari þeir eingöngu eftir lögum og lúti þar aldrei boðvaldi annarra. Samhljóða ákvæði var að finna í 1. mgr. 24. gr. eldri laga um dómstóla, nr. 15/1998.
    Það er afstaða ráðherra að dómurum beri í störfum sínum að halda trúnað við stjórnarskrá lýðveldisins og landslög öll. Það er ekki afstaða ráðherra að dómarar hafi trúnaðar- eða hlýðniskyldum að gegna gagnvart honum. Í því sambandi skal áréttað að í 2. gr. stjórnarskrárinnar er kveðið á um þrískiptingu ríkisvalds. Af því leiðir að ekki er á valdsviði ráðherra að gefa dómurum fyrirmæli um störf sín og bæri þeim engin skylda til að gegna slíkum fyrirmælum væru þau gefin. Texti í drengskaparheiti um að dómari heiti að vera stjórnvöldum landsins trúr og hlýðinn víkur fyrir ákvæðum stjórnarskrár og landslaga samræmist hann þeim ekki.

     3.      Ef enn eru dómarar sem starfa samkvæmt drengskaparheiti um að vera trúir og hlýðnir stjórnvöldum telur ráðherra að þurfi að leysa þá undan slíku heiti til að tryggja sjálfstæði dómara í samræmi við 2. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands um þrískiptingu ríkisvaldsins og 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar um óháða og óhlutdræga dómstóla?
    Ráðherra lítur ekki svo á að leysa þurfi héraðsdómara sem undirrituðu eldri útgáfu af drengskaparheiti undan því en ástæður þess má lesa um í svari við tölulið 2. Til viðbótar því sem þegar hefur verið rakið í svari við 2. tölul. er bent á að dómarar eru skipaðir ótímabundið í embætti og að skv. 61. gr. stjórnarskrárinnar verður dómendum ekki vikið úr embætti nema með dómi. Sjálfstæði dómara í embætti er því fyllilega tryggt hér á land í samræmi við kröfur 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.