Ferill 732. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1413  —  732. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um auglýsingar á samfélagsmiðlum.


     1.      Hvaða útgjöld hafa ráðuneytið og stofnanir sem undir það heyra haft ár hvert frá árinu 2015 vegna auglýsinga eða kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum, svo sem á Facebook, Instagram, YouTube og Twitter?
    Leitað var svara hjá Geislavörnum ríkisins, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Hjúkrunarheimilinu Sólvangi, embætti landlæknis, Landspítala, Lyfjastofnun, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Sjúkratryggingum Íslands og aðalskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins.
    Fjórtán stofnanir af sextán sem haft var samband við sáu sér fært að svara fyrirspurn þingmannsins. Í töflunni hér á eftir má sjá upplýsingar um kostnað frá þeim stofnunum sem greiddu fyrir auglýsingar eða dreifingar á samfélagsmiðlum á tímabilinu 2015–2018.
Ár Heilbrigðisstofnun Norðurlands Lyfjastofnun Embætti landlæknis Sjúkratryggingar Íslands Landspítali Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
2015 – – – – – –
2016 – 12.226 – – 50.719 28.572
2017 8.095 22.001 370.282 40.000 1.081.290 99.541
2018 63.409 73.264 246.910 – 3.490.546 112.319
Alls: 71.504 107.491 617.192 40.000 4.622.555 240.433

     2.      Hvaða stefnu hefur ráðherra að því er snertir auglýsingakaup á samfélagsmiðlum?
    Ráðherra hefur ekki mótað sér stefnu um kaup auglýsinga á samfélagsmiðlum. Auglýsingar hafa jafnan þann tilgang að koma upplýsingum og skilaboðum sem talin eru mikilvæg á framfæri við almenning eða tiltekna markhópa. Ráðherra telur eðlilegt að velja auglýsingamiðla með hliðsjón af því hvað líklegast er að nái best augum og eyrum þeirra sem upplýsingarnar eru ætlaðar. Hefðbundnir prent- og ljósvakamiðlar ásamt netútgáfum þeirra halda gildi sínu sem auglýsingamiðlar en auglýsingar á samfélagsmiðlum geta átt rétt á sér sem viðbót við hefðbundnu miðlana, sérstaklega ef ætla má að margir færu annars varhluta af mikilvægum upplýsingum.

     3.      Hvernig telur ráðherra það að kaupa auglýsingar eða kostaða dreifingu á erlendum samfélagsmiðlum samræmast stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla íslenska fjölmiðla?
    Þótt auglýsingar séu flestum fjölmiðlum mikilvæg tekjulind telur ráðherra ekki rétt að líta á auglýsingakaup fyrir almannafé sem leið stjórnvalda til þess að efla íslenska fjölmiðla. Til þess þurfi að fara aðrar leiðir sem hafi það tiltekna markmið, byggist á skýrri stefnu og feli í sér sanngirni og jafnræði.