Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1433 — 512. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum (EES-reglur, burðarpokar).
(Eftir 2. umræðu, 3. maí.)
1. gr.
Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvæði laga þessara um burðarpoka ná til starfsemi sem felur í sér sölu á vörum.
2. gr.
Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Burðarpoki úr plasti er poki, með eða án halda, gerður úr plasti, sem afhentur er neytanda á sölustað vara.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
a.
7. tölul. orðast svo: töluleg markmið um notkun burðarpoka úr plasti.
b.
10. tölul. orðast svo: burðarpoka, þ.m.t. um merkingu og útreikning á notkun þeirra.
4. gr.
Á eftir X. kafla laganna kemur nýr kafli, X. kafli A,
Burðarpokar, með fjórum nýjum greinum, 37. gr. a – 37. gr. d, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:
a. (37. gr. a.)
Markmið um notkun burðarpoka úr plasti.
Stefnt skal að því að ná tilteknum tölulegum markmiðum um notkun burðarpoka úr plasti.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um töluleg markmið varðandi notkun burðarpoka úr plasti, sbr. 5. gr. Við setningu tölulegra markmiða skal m.a. höfð hliðsjón af kröfum í löggjöf Evrópusambandsins, stefnu um meðhöndlun úrgangs og svæðisáætlunum sveitarfélaga.
b. (37. gr. b.)
Afhending burðarpoka.
Óheimilt er að afhenda burðarpoka án endurgjalds á sölustöðum vara og skal gjaldið vera sýnilegt á kassakvittun.
c. (37. gr. c.)
Bann við afhendingu burðarpoka úr plasti.
Óheimilt er að afhenda burðarpoka úr plasti, hvort sem er gegn endurgjaldi eða ekki, á sölustöðum vara.
d. (37. gr. d.)
Merkingar.
Aðilar sem afhenda burðarpoka við sölu á vöru skulu tryggja að burðarpokar séu merktir í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur, sbr. 5. gr.
5. gr.
Innleiðing.
Lög þessi eru sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/720 frá 29. apríl 2015 um breytingu á tilskipun
94/62/EB að því er varðar að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti, sem vísað er til í 7. tölul. XVII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr.
242/2018 frá 5. desember 2018.
6. gr.
Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2019, nema ákvæði b-liðar 4. gr. (37. gr. b) sem öðlast gildi 1. september 2019 og c-liðar 4. gr. (37. gr. c) sem öðlast gildi 1. janúar 2021.